Íþróttablaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 31
HEILBRIGÐI
OG NÝ ÍMYND
Reykjavíkurmaraþon verður háð í
áttunda sinn sunnudaginn 18. ágúst
nk. Áhugi og umræða meðal al-
mennings hefur aldrei verið meiri.
Vitað er um nokkra hópa skemmti-
skokkara, sem hófu æfingar snemma
í vor og sumar gagngert til þess að
taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu.
Forvarna- og endurhæfingastöðin
Máttursýnirgottfordæmi með þvíað
skipuleggja sérstaka undirbúnings-
og æfingadagskrá. Þar er skokkurum
skipt niður eftir getu hvers og eins.
Reykjavíkurmaraþon á vaxandi
vinsældum að fagna ár frá ári. Þátt-
takendum hefur fjölgað og er búist
við að þeir verði um 2000 í ár. Er það
áttföldun frá fyrsta maraþoninu 1984,
en þá voru þátttakendur 250. Nú er
svo komið að fyrirtæki og stofnanir
sækjast eftir samstarfi við Reykjavík-
urmaraþon ogeru tilbúin til að leggja
fram fjármuni til þess að stuðla enn
frekar að markvissri og öruggri fram-
kvæmd þess. Frá upphafi hefur verið
lögð á það mikil áhersla að undir-
búningur og framkvæmd hlaupsins
séu eins hnökralaus og nokkur kostur
er. Þess vegna hefur hlaupið fengið
alþjóðaviðurkenningu og er kynnt
sem slíkt erlendis. Gott samstarf við
marga aðila gerir þetta mögulegt.
Skemmtiskokk er hluti af heil-
brigði og nýrri ímynd íslendinga.
Einnig þess vegna hefur Reykjavíkur-
maraþon fest sig í sessi sem vinsæll
og skemmtilegur viðburður er fleiri
og fleiri bíða eftir með óþreyju á
hverju hausti.
Á annan tug hlaupa eru nú í boði
víða um land ogeru þau góður undir-
búningur fyrir Reykjavíkurmaraþon-
ið, hvort sem valið stendur um
skemmtiskokkið, sem er 7 km, eða
hálft maraþon, sem er rúmir 21 km.
Langan og markvissan undirbúning
Knútur Óskarsson.
þarf hins vegar fyrir heilt maraþon
sem er 42,195 km. Reynsla undanfar-
innaáraersú, að þeim fjölgarjafntog
þétt er taka þátt í skemmtiskokki og
hálfu maraþoni.
í miðborg Reykjavíkur mun ríkja
hátíðarstemmning sunnudaginn 18.
ágúst, þar sem við rásmarkið verða
samankomnir um 2000 skokkarar af
mörgum þjóðernum og vonandi
tvöfaldur sá fjöldi áhorfenda hróp-
andi hvatningarorð til þátttakenda.
Knútur Óskarsson
form. Reykjavíkurmaraþons
SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ
NAFN (Name)
(Sex M/F) FÆÐINGARDAGUR/ÁR (Date of birth)
HEIMILI PÓSTNÚMER SÍMI ÞJÓÐERNI (Nationality)
Ég skrái mig til þátttöku í:
□ MARAÞONHLAUPI
□ HÁLF-MARAÞONHLAUPI
□ SKEMMTISKOKKI
□ SVEITAKEPPNI í SKEMMTISKOKKI (3 í SVEIT)
Nafn sveitar:--------------------------
Ég undirritaður/undirrituð leysi hér með framkvæmdaraðila
Reykjavíkurmaraþons undan allri ábyrgð á tjóni, meiðslum eða
veikindum, sem ég gæti orðið fyrir í viðkomandi hlaupi. Ég
staðfesti það einnig að ég er bæði líkamlega og andlega fær um
að Ijúka viðkomandi vegalengd.
□ SVEITAKEPPNI I HÁLF-MARAÞONHLAUPI (3 í SVEIT)
Nafn sveitar:---------------------------
Undirskrift (signature)
Dagsetning (date)
31