Íþróttablaðið - 01.06.1991, Blaðsíða 83
mælistika á það hversu mikið það
kostar að „ala upp" einn leikmann
hjá félagi yrði upphæðin hærri en
menn geta gert sér í hugarlund. Það
kostar nefnilega peninga að ráða
þjálfara, kaupa keppnistreyjur, fara í
keppnisferðir o.s.frv. og safnast þegar
saman kemur. „Gömlu" félögin fá
því varla sem svarar kostnaði þess að
ala upp leikmennina þegar þeir
hverfa á braut - oft til andstæðinga á
knattspyrnuvellinum í sömu deild -
og þá þurfa félögin að sætta sig við
það að fyrrum leikmenn þeirra geri
sér skráveifur á leikvellinum sem og
utan hans.
MÖNNUM BOÐIN
ÝMIS FRÍÐINDI
Eins og áður segir er það ekki ótítt
að menn fái einhverjar greiðslur fyrir
að skipta um félög - og þá kemur að
því sem mönnum hefur sviðið sárast:
Leikmenn, sem uppaldir eru hjá fé-
lögunum, verða að sætta sig við það
að horfa upp á leikmenn úr öðrum
liðum komayfir ísín liðogfá greiðslu
fyrir það. M.ö.o. aðkomumennirnir
fá peninga fyrir að spila fótbolta en
heimamennirnir ekkert. Kann þetta
oft á tíðum ekki góðri lukku að stýra
og mismunun af þessu tagi er ekki til
þess fallin að hjálpa aðkomumönn-
um til að aðlagast hinum nýju liðum.
Það eykur síður en svo á ánægju
heimamanna að horfa upp á mis-
munun af þessu tagi. Og það eru ekki
einungis peningar sem menn fá fyrir
að skipta um félag. Heyrst hefur af
alls konar ívilnunum og hlunnindum
sem menn eiga í vændum skipti þeir
um félög, svo sem bílum, loforðum
um góða vinnu, útborgun í íbúðum
og jafnvel hafa mönnum verið boðin
lóðarréttindi í viðkomandi bæjarfé-
lagi láti þeir til leiðast að skipta um
félag.
En það getur verið fleira heldur en
peningar og önnur veraldleg gæði
sem spila inn íað leikmenn skipti um
félög. Landsbyggðarmenn skipta t.d.
gjarnan um félög þegar þeir komast á
menntaskóla- eða háskólaaldur því
að þeir stunda nám sitt oft á tíðum í
skóla, staðsettum á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu. Einnig er til í dæminu að
menn fái einhver freistandi vinnutil-
Willum Þór Þórsson í leik með KR gegn Breiðabliki. Hvort að honum hefur
litist svona vel á búninginn eða honum hafa verið boðin lóðarréttindi skal hér
ósagt látið — en alltént leikur hann nú með Kópavogsfélaginu.
boð frá öðrum stöðum en heimaslóð-
unum og slái þá til og færi sig um set.
HRINGAMYNDUN
í vissum tilfellum hefur þetta kom-
ið af stað eins konar hringamyndun í
leikmannaskiptum, svo sem t.d.
þegar Birkir Kristinsson skipti yfir í
Fram. Þá var laus markmannsstaða
hjá ÍA og þangað fór Ólafur Gott-
skálksson, en ekki var lengur pláss
fyrir Fram-markvörðinn, Friðrik
Friðriksson, hjá sínu gamla félagi
þegar hann sneri aftur frá Danmörku
og leikur nú Friðrik með Þór frá Akur-
eyri.
Ef litið er á þá sextán leikmenn,
sem skipuðu landsliðshóp Islendinga
gegn Tékkum fyrr í sumar, kemur í
Ijós að tíu þeirra leika nú með öðrum
liðum en þeir ólust upp hjá og þar af
eru níu þeirra í byrjunarliðinu -
aðeins Sævar Jónsson og Rúnar Krist-
insson voru „heimamenn" íeiginleg-
um skilningi þess orðs.
ÁHANGENDUR
LIÐANNA HAFA í
HÓTUNUM
Það er greinilegt að mörgum svíð-
ur sárt að sjá á bak leikmönnum yfir í
önnur félög. Svívirðingar og háðs-
glósur heyrast jafnan frá áhorfenda-
83