Íþróttablaðið - 01.02.1995, Page 14
Texti: Þorgrímur Þráinsson
Myndir: Hreinn Hreinsson
Sunddrottningin EYDÍS KON-
RÁÐSDÓTTIR er glæsilegur fulltrúi
íslenskrar íþróttaæsku. Hún hefur
allt til að bera til að komast í fremstu
röð — rétt hugarfar, mikla einbeit-
ingu og sigurvilja og hún stundar
íþrótt sína eins og best verður á kos-
ið miðað við það sem hér er í boði.
Það leynir sér ekki að Eydís er þrosk-
aður persónuleiki og hógvær og það
er gaman að spjalla við hana. Stóru,
brúnu augun segja meira en mörg
orð og brosið er einlægt.
Það sýnir sömuleiðis styrk hennar
og hæfileika að hún skyldi, aðeins 16
ára gömul, vera valinn íþróttamaður
Suðurnesja árið 1994 þar sem bestu
körfuknattleiksmenn landsins leika
og sömuleiðis hátt skrifaðir knatt-
spyrnumenn. En hún er ekki aðeins
frábær íþróttamaður heldur líka góð-
ur sellóleikari því hún hefur lokið 7
stigum af 8 í sellónámi.
Eydís bjó í Svíþjóð fyrst sexu ár
ævinnar þar sem faðir hennar stund-
aði framhaldsnám í læknisfræðum.
Hún á eldri bróður og yngri systur
sem bæði stunda sund og skara fram
úr. „Ég hermdi eftir bróður mmum og
fór í sundið en á þeim tíma stundaði
ég líka fimleika. Sundið hentaði mér
betur og ég tók það líka fram yfir af
því að ég náði betri árangri í því en
fimleikum. Svo finnst mér sundið af-
skaplega heillandi og það er gaman
að vera í góðri þjálfun og líða vel
líkamlega. Stundum, þegar ég er að
synda, finn ég hvað ég elska þessa
íþrótt en það er erfitt að útskýra þessa
EYDÍS KONRÁÐSDÓTTIR, sunddrottning og íþróttamaður
Suðurnesja, í spjalli um sjálfa sig, sundið og svolítið fleira.