Íþróttablaðið - 01.02.1995, Side 28
ANNA GUÐRÚN
EINARSDÓTTIR
fyrirliði HK í blaki
NÁM: Stúdentspróf og 1/2 ár í
sjúkraþjálfun — tvisvar.
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ VERÐA:
Hæst í liðinu, eða 182 sm (núna er ég
169 sm).
KÆRASTI: Meðalmaður á hæð,
dökkhærður, sætur, rómantískur og
heitir Biggi.
AF HVERJU BLAK: Af því að
keppnisbuxurnar eru svo þröngar og
sexí.
AÐRAR ÍÞRÓTTAGREINAR:
Tennis, frjálsar og svo stefni ég í
sumo-glímu.
VIÐURKENNINGAR: íslands-
meistari með 2. og 3. flokki, lék með
unglingalandsliðinu 1987 og1989 og
A-landsliðinu 1994. Viðurkenningar-
skjöldurfyrirað hafa leikiðlOO leiki í
deildinni.
HVERT STEFNIRÐU: Á toppinn,
hvar sem hann er.
FLEYGUSTU ORÐ: „Koma stelp-
ur". (SJ)
HVERJUM I LIÐINU MYNDIRÐU
ALDREI LÁNA BÍLINN ÞINN: Siggu,
hún er svo „öruggur" bílstjóri.
VIÐ HVERN I LIÐINU MYND-
IRÐU ALDREI RÍFAST: Ragnhildi,
því hún er miklu stærri og sterkari en
ég-
HVERJUM MYNDIRÐU ALDREI
LÁNAPENING: Dagnýju, þvíég veit
að hún myndi borga til baka á Visa
raðgreiðslum.
HVERJUM MYNDIRÐU ALDREI
LÁNA ÆFINGABÚNING: Heiðu,
hann væri þremur númerum of lítill.
VERSTI DAGURINN í BLAKINU:
Rútuferðin á milli Egilsstaða og Nes-
kaupstaðar 7. október 1994. Hún tók
3 klukkustundir.
HVERS GÆTIRÐU EKKI VERIÐ
ÁN: Kærastans, Roberts Downey Jr.
og mínútugrillsins.
HVAÐ ER ÞAÐ VERSTA SEM HEF-
UR KOMIÐ FYRIR ÞIG: Að hafa
aldrei fengið 5 rétta í lottóinu.
HVAÐA BREYTINGAR VILTU SJÁ
í BLAKl: Miklu fleiri áhorfendur.
(Þeir eru venjulega frá 0-10.)
HVAÐ TEKURÐU MEÐ ÞÉR í
BAÐ: Andrés blöð og lukkutröllið
mitt.
HVAÐ FINNST ÞÉR VANTA Á ÍS-
LANDI: U.þ.b. 30-35 stiga hita
sumrin.
HVAÐA ÍÞRÓTTIR HORFIR ÞÚ Á
[þau tvö
Og
HVER KENNDI ÞER ALLT SEM ÞU
KANNT: Allir sem ég þekki, þó
staklega mamma.
HVAÐA „LITLA" ATWi^IEFUCT
BREYTT MIKLU í LÍFI ÞrJJm^ar
ég kynntist kærastanum.
ÆÐSTA TAKMARK: Að véfða
betri i öllu en Særún Jóhannsdóttir
líka í sáltræðinni.
K
28