Íþróttablaðið - 01.02.1995, Side 41
LEIK-stúfar
* ELVAR ÓSKARSSON hefur hald-
ið fyrsta sætinu allt þar til núna. Elvar
hefur verið einstaklega heppinn því
enginn leikmaður í hans liði hefur
meiðst.
* Margir sjá eftir því að hafa valið
CHRIS MULLIN í sitt lið því þegar
íþróttablaðið fór í prentun hafði hann
aðeins leikið tvo leiki fyrir Colden
State og aðeins gefið 51 stig.
* SHAQUILLE O'NEAL hefur gefið
flest stig allra eða 1747. Á eftir hon-
um koma þeir David Robinson, Hak-
eem Olajuwon, Karl Malone og
Scottie Pippen.
* Hvað eigá þeir Brad Daugherty,
Frank Brickowski, Laphonso Ellis,
Gerald Wilkins og Terry Porter sam-
eiginlegt? Þeir hafa allir átt við
meiðsli að stríða og hafa gefið liðum
sínum 0 stig.
* CHARLES BARKLEY dælir nú inn
stigum fyrir þá er hann völdu. Bark-
ley átti í byrjun tímabils við bak-
meiðsli að stríða en hefur nú geíið
992 stig.
* Þeir sem völdu CHARLES OAK-
LEY í sitt iið fá nú engin stig. Oakley,
sem ekki hefur meiðst íára raðir, situr
nú á bekknum vegna támeiðsla.
* Aðeins einn kvenmaður hefur
verið að blanda sér í toppbaráttuna.
Hún situr nú í 11. sæti og heitir SIG-
URRÓS HILMARSDÓTTIR.
* HERBERT ARNARSON leikmað-
ur með Í.R.-ingum í DHL deildinni
væri nú í fyrsta sæti NBA leiksins ef
hann væri áskrifandi að íþróttablað-
inu. Herbert fyllti út seðil að gamni
sínu en gerðist ekki áskrifandi svo
umsókn hans telst ekki gild. Félagi
hans Þorsteinn Gíslason brunar nú
upp listann og gæti allt eins unnið
ferðina til NEW YORK. Hann býður
þá kannski Herberti með sér?
ÞEKKTI NÖFNIN
— sagði Valgeir
Viðarsson
Nú þegar NBA tímabilið er u.þ.b.
hálfnað er Valgeir Viðarsson í efsta
sæti í NBA leiknum. Valgeir hefur allt
t'rá upphat'i verið fast á hæla Elvars
Óskarssonar sem sat, þar til nú, sem
fastast á toppnum. Viðar Ólafsson,
pabbi Valgeirs, er áskrit'andi að
íþróttablaðinu og þegar Valgeir sá
leikinn notaði hann tækit'ærið. Val-
geir valdi eftirtalda leikmenn í sitt Iið:
Shaquille O'Neal, Vin Baker, Karl
Malone, Horace Grant, Jamal Mash-
burn, Detlet' Schrempf, John Stock-
ton, Gary Payton, Mitch Richmond
ogjim Jackson. En hvernig valdi Val-
geir liðið? „Ég þekkti flest nöfnin á
listanum og valdi aðallega eftir minn-
inu."
— Af hverju ákvaðstu að vera
með? „Það var nú aðallega til að
komast á leikinn í New York."
— Áttu þér uppáhaldslið í NBA
körfunni? „Seattle Supersonics er
mitt uppáhaldslið og ég íylgist vel
með því. Shawn Kemp er bestur þar í
annars mjög góðu liði."
— Hefurðu æft körfubolta? „Nei
ég hef ekki æft neitt. Stundum spilum
við strákarnir bara sjálfir en ég hef
aldrei farið á æfingu."
ÞÚ GETUR FYLGST MEÐ
ÞÍNU LIÐI MEÐ ÞVÍ AÐ
HRINGJA í FRÓÐALÍNUNA
í SÍMA 99-1445
(Verð aðeins 39,90 mínútan)
vetur.
Svo er að sjá hvort Valgeir Viðars-
son heldur sæti sínu á toppnum eða
hvort Elvar skjóti honum at'tur fyrir
sig.
BESTA LIÐIÐ
Þrátt fyrir mörg mismunandi lið
valdi enginn þátttakandi alla þá leik-
menn sem hat'a staðið sig best nú í ár.
Lítum aðeins á hverjir hafa staðið sig
best úr hverjum hópi.
Hópur 1. Shaquille O'Neal 1747
Hópur 2. Kevin Willis 1179
Hópur 3. Karl Malone 1550
Hópur 4. Larry Johnson 1178
Hópur 5. Scottie Pippen 1303
Hópur 6. Detlef Schrempf 1035
Hópur 7. Anfernee Hardaway 1290
Hópur 8. Gary Payton 1149
Hópur 9. Mitch Richmond 1233
Hópur 10. |im Jackson 1334
Þetta liö gæfi 12998 stig en Viðar
Ólafsson er efstur með 12336 stig.
41