Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 54

Íþróttablaðið - 01.02.1995, Síða 54
Alexander Popov heimsmethafi í sundi. RÚSSNESKA RAKETTAN Texti: Guðmundur Þ. Harðarson Alexander Popov er einn hæfileikaríkasti sundmaður heims enda heimsmeistari Rússneski sundmaðurinn Alexander Popov er álitinn einn hæfileikarfkasti sundmaður heims. Þessi 198 sm hái geðþekki sundmaður hefur staðið sig frábærlega á heimsbikarmótum vetr- arins. Popov er sá sundmaður sem hefur sigrað í flestum sundgreinum á heimsbikarmótunum. Þar með vann hann sér inn meira verðlaunafé en nokkur annar sundmaður. Hann fékk greitt í verðlaunafé alls 31.000 Bandaríkjadali fyrir sigrana og sem aukaverðlaun fyrir heimsmetin sem hann setti á mótunum í vetur. Rússneska rakettan, eins og hann hefur verið nefndur, setti alls sex heimsmet á tímabilinu frá áramótum til loka marsmánaðar. Hann vann það ótrúlega afrek að setja fjögur heimsmet í 100 m skriðsundi í 25 m laug á aðeins tæpum þremur mánuð- um. Fyrst bætti hann metið á móti í Hong Kong þann 1. janúar og synti á 47,83 sek., síðan á 47,82 sek., nokkr- um dögum síðar í Beijing í Kína þann 5. janúar, þar næst á 47,12 sek. í Desenzano á Ítalíu þann 12. mars og að lokum bætti hann metið í fjórða sinn og synti á 46,74 sek. á Heims- bikarmóti í Gelsenkirchen í Þýska- landi þann 19. mars. Auk þessa setti hann heimsmet í 50 m baksundi (24,66 sek.) og 50 m skriðsundi (21.50 sek.) þann 13. mars í Desenzano en í þeirri sundgrein er Litháinn Raimundas Mazuolis helsti keppinautur Popovs. Á síðasta Heimsbikarmóti vetrar- ins, sem haldið var í París 26. mars, bætti Popov síðan Evrópumetið f 100 m baksundi synti á 52,58 sek. Þetta er 54

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.