Íþróttablaðið - 01.02.1995, Page 62
Johann Olav Koss ásamt fátækum drengjum frá Eretreu.
Sannur íþróttamaður
Eittvirtasta íþróttatímaritheims, SPORTS
ILLUSTRATED, kaus Norðmanninn,
JOHANN OLAV KOSS, íþróttamann ársins
1994 ásamt BONNIE BLAIR, en þau slógu
svo eftirminnilega í gegn í skautahlaupi á
vetrarólympíuleikunum í Lillehammer fyrir
ári. Það þykir mikil virðing að hljóta þessa
útnefningu en bæði Blair og Koss eiga hana
sannarlega skilið. I einu af desemberheftum
Sports Illustrated er viðtal við Koss þar sem
hann segir meðal annars frá eftirminnilegri
ferð sem hann fór til Eritreu fimm mánuðum
fyrir Ólympíuleikana.
„Mér hafði gengið illa á æfingum, ég fann
til í tánni, skautarnir meiddu mig, lærið pirr-
aði mig og mér leiddist. Mér fannst allt vinna
á móti mér. Þess vegna ákvað ég að taka
boðinu frá samtökunum „Save the children"
um að sjá hvernig starfið gengi fyrir sig. Þar
spilaði ég fótbolta við einfætta stráka með
bolta sem var ekkert annað en vafinn skyrta.
Eg sá hversu bágt þessir krakkar áttu og
uppgötvaði þá hversu heppinn ég var að
geta æft átta tíma á dag og þurfa ekki að
borða það sem ég finn úti á götu.“
í Eritreu fann Koss stöng sem hann útbjó
sem lóð til að geta haldið sér í æfingu. Hann
stundaði snerpuæfingar með hundrað ber-
fættum strákum sem reyndu að halda í við
hann á sprettinum, hann hljóp með strák-
hvolpa í fanginu eins langt og hann komst til
að bæta þolið og svo mætti lengi telja.
„Stundum er fátækasta fólkið með göfug-
asta andann," sagði Koss þegar hann upp-
lifði gleði og sorg með krökkunum í Eritreu.
Þegar hann snéri heim til Noregs mundi
hann eftir svip glaðværra en hungraðra
barna og hann æfði með öðru hugarfari.
Koss stóð við loforð sitt til barnanna í Erit-
reu um að færa þeim íþróttavörur að Ól-
ympíuleikunum loknum — og meira en það.
Hann bað öll börn í Noregi að tína til íþrótta-
fatnað og áhöld sem þau væru hætt að nota
svo hægt væri að senda þau til fátækra
barna í Eritreu. Áður en yfir lauk höfðu safn-
ast 12 tonn af vörum fyrir börnin og hélt
Koss þangað í fylgd fjölda ungmenna frá
Noregi á aldrinum 11-15 ára ásamt nokkrum
unglingaþjálfurum.
FALLEGAR „STÚLKUR“
Eins og mörgum er kunnugt eru tennis-
kappinn ANDRE AGASSI og kvikmyndaleik-
konan BROOKE SHIELDS par. Þau hafa verið
óaðskiljanleg um tveggja ára skeið og hefur
Agassi unnið sig hægt og sígandi upp met-
orðastigann í tennis eftir að þau kynntust.
Fyrir skömmu lét kappinn klippa sig og er
ansi herralegur í dag en á fyrsta stefnumót-
inu sátu skötuhjúin á veitingahúsi, bæði vel
síðhærð, þegar snotur þjónustustúlka vatt
sér að þeim og sagði: „Are you ladies enjoy-
ing your food.“
TYSON SLÆST
Þrátt fyrir að vera í fangelsi slær MIKE
TYSON enn jafn fast frá sér. Ekki alls fyrir
löngu sló hann einn vandræðagemling í rot
eftir að slagsmál hófust í fangelsinu. Tyson
hafði fengið stóra sendingu af sígarettum og
var að gefa samföngum sínum pakka. Þetta
líkaði ekki öllum föngunum því sumir þeirra
græða stórlega á því að selja sígarettur. Yfir
100 manns slógust þegar best lét og látunum
lyktaði með því að Tyson rotaði aðalmann
sígarettusölumannanna. Ekki er vitað hvort
höggið lengi fangelsisvist kappans en líkur
er á því að hann losni úr prísundinni í maí
næstkomandi.
AFHVERJU ERVALTÝR
UNDRANDI?
Enginn leikmaður í NBA stelur boltanum
oftar frá andstæðingum sínum en SCOTTIE
PIPPEN. Þetta virðist koma VALTÝ BIRNI,
íþróttafréttamanni Stöðvar 2 og Bylgjunnar,
verulega á óvart ef marka má lýsingar hans.
Valtýr greinir oft frá tölulegum staðreynd-
um og segist ALLTAF undrandi á því hvað
Pippen sé duglegur við að stela boltanum.
Þessi undrun Valtýs hvað eftir annað kemur
á óvart því Pippen hefur verið duglegur við
iðju sína síðastliðin ár. Pippen stal næst-
flestum boltum í NBA í fyrra, eða 2,94 sinn-
um að meðaltali í leik. Aðeins Nate McMillan
var honum ofar en það hefur líklega komið
Valtý Birni á óvart.
ÓHUGNAÐUR
Eftir fall kommúnismans hefur hver
hrj'llingssagan úr heimi íþróttanna borist
úr austri. I gegnum tíðina hefur verið
verið talað um „vélmennin" sem eru
framleidd í austri til þess eins að ná stór-
kostlegum árangri í íþróttum. Nýlega var
rætt við OLGU KOVALENKO frá Sovét-
ríkjunum, í sjónvarpsviðtali í Þýskalandi
og Lúxemborg, en hún vann til gullverð-
launa í fimleikum á Ólympíuleikunum í
Moskvu. Olga sagði frá þeirn óhugnaði
sem viðgekkst í Sovétríkjunum þegar hún
var að keppa. íþróttayfin'öld þar í landi
skipuðu henni að verða ólétt eftir kæra-
stann sinn þegar hún var 18 ára og síðan
átti að eyða fóstrinu þegar 10 vikur væru
liðnar af meðgöngunni. Kovalenko sagði
að hún hefði aðeins verið ein af fjölmörg-
um sem var skipað að stunda kynlíf með
þetta í huga því þungun gerði það að
verkum að líkaminn fór að framleiða
meira af karlhormónum sem gæfi rneiri
st>'rk og þol. Kovalenko sagði að þeim
stúlkur, sem neituðu þessu hefði, verið
hótað með brottvikningu úr landsliðinu.
Hún sagði ennfremur að þær, sem áttu
enga kærasta, hefðu þurft að stunda kyn-
líf með þjálfurunum sínum til þess að
verða óléttar.
VADIM MOYESSEYEV, sem var opinber
fulltrúi Ólympíuliðs Sovétríkjanna árið
1960, hefur staðfest sögu Kovalenko.
Fyrrum þjálfari í Sovétríkjunum lét hafa
eftir sér í sjónvarpsviðtalinu að ýmsar
þvinganir hefðu verið viðhafðar til þess
að stúlkurnar yrðu óléttar og að í öðrum
ríkjum hefði þetta hreinlega verið kallað
nauðganir."
62