Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1997, Blaðsíða 17

Íþróttablaðið - 01.04.1997, Blaðsíða 17
áhrif á Kristján og Sigurð á íþrótta- vellinum, var án efa hinn frækni íþróttamaður Valbjörn Þorláksson en hann var lengi vel eini Islendingur- inn sem hafði náð verulegum árangri í stangarstökki. Valbjörn stökk á stál- stöng til 1965 en þá tóku svokallað- ar fíberstangir við. „Hann var alveg frábær íþróttamaður og náði mjög góðum árangri með stálstöngunum. Valbjörn náði hins vegar ekki tökum á fíbernum. Hans besti árangur er 4,50 metrar og það á stálstöng. Á fí- ber stökk hann best 4,40. Hann keppti fyrir íslands hönd til 1980/1981, þá kominn vel yfir fer- tugt," segir Kristján. Og Sigurður bætir því við að þegar stangarstökkið sé annars vegar sé aldur afstæður, svo framarlega sem menn séu ungir í anda, haldi sér í góðri æfingu og sýni hvað í þeim býr. Þeir félagar segja eitt eftirminni- legasta mót sitt vera stangarstökks- mót á þjóðhátíð í Eyjum 1979. Mót- ið var sérstök sýningargrein og vakti mikla athygli. ,,Það var vægast sagt frábær stemning á Þjóðhátíðinni meðal þeirra þúsundir áhorfenda sem fylgdust með okkur í Herjólfs- dal. Það var svakalega gaman að stökkva við þær sérstöku kringum- stæður sem þar voru og það kom okkur verulega á óvart hversu mikinn áhuga menn höfðu á því að sjá okk- ur stökkva. Við sáum um að flytja dýnurnar og koma þeim á keppnis- stað og það var heilmikil vinna. En hún var svo sannarlega þess virði því við skemmtum okkur konunglega," segir Sigurður sem sló Islandsmet Valbjörns Þorlákssonar í Eyjum, stökk 4,55 metra. Kristján bætti sig einnig og stökk 4,20 metra. Þeir æfðu vel saman nánast alla daga vikunnar og bættu sig jafnt og þétt eftir því sem á leið. Og árangur- inn lét ekki á sér standa. Sigurður náði því glæsilega afreki að vera fyrstur íslendinga yfir fimm metra en það gerði hann 1981. Þremur árum síðar setti hann Islandsmetið sem enn stendur, 5,31. Kristján fór í fyrs- ta sinn yfir fimm metra slétta á af- mælismóti ÍR 1982 en best á hann 5,06 frá 1986. Þeir hafa alla tíð ver- ið iðnir við að hvetja og styðja hvor annan og þrátt fyrir harða keppni hefur alltaf verið stutt í hláturinn og vinskapinn. Leiðir þeirra lágu fyrst saman er þeir æfðu karate fyrir 23 árum. Þeir segja tímann, sem síðan er liðinn, hafa verið mjög skemmti- legan þar sem þeir hafi fengið mörg spennandi tækifæri til að keppa, Sigurður T. Sigurðsson. ,,Ég sagöi aö golf væri bara fyrir gamal- menni og aumingja,,, segir Siguröur. Kristján Gissurarson. ferðast og kynnast fólki. Báðir eiga fjölmargar keppnisferðir til útlanda að baki, aðallega til Norðurlanda og meginlands Evrópu. „Við vorum ekki mjög áberandi þegar við byrjuðum að æfa stangar- stökk. Það voru mjög fá stangar- stökksmót í gangi þannig að við þurftum að hafa fyrir því að koma þeim á og undirbúa þau. Það tók sinn tíma og var auðvitað ánægjulegt þegar vel gekk. Undirbúningur fyrir hverja æfingu og hvert mót var mik- ill og tímafrekur þar sem við þurftum að koma áhöldum, eða dýnum og uppistöðum, á sinn stað. Oftar en ekki urðum við að burðast með dýn- urnar á hjólbörum frá Laugardals- velli til Valbjarnarvallar og það var ekki auðvelt verk. Það létti okkur hins vegar róðurinn þegar við feng- um loks afnot af traktor til að koma þessum hlutum á sinn stað," segir Kristján. Og Sigurður heldur áfram: „Stangarstökkið tók kannski mun meiri tíma en aðrar greinar og mót en áhugi okkar á íþróttinni var svo mikill að við settum það ekki fyrir okkur. Þetta var einfaldlega svo gam- an, aðalmálið var að stökkva, allt annað var aukaatriði." — Og hefur það sjónarmið ykkar ekkert breyst með árunum? „Auðvitað hefur það breyst," segja þeir samtímis. „Núna er stang- arstökkið okkar líkamsrækt því með því að stökkva höldum við okkur í formi. FjölskyIdan og vinnan skipta nú mestu máli og taka mestan tíma, auk þess sem við höfum öðrum mik- ilvægum skyldum að gegna. Kristján segist þó enn vera að læra að stökk- va. „Maður er alltaf að læra meira og meira í tækninni þó að maður ein- beiti sér ekki eins mikið og áður að íþróttinni. Lykilatriðið í stönginni er að verða öruggur og vel þjálfaður. Siggi er t.d. afar öruggur stangar- stökkvari og hefur góð tök á tækn- inni. Og þess vegna sigraði hann á síðasta Islandsmóti þrátt fyrir fáar æf- ingar í vetur." Kristján rekur heildverslunina ísold og Sigurður er starfandi endur- skoðandi. Þótt mikill tími fari í vinnu hjá þeim gefa þeir sér tíma til að sinna öðrum áhugamálum en frjáls- um. Kristján hefur gaman af því að stunda alls konar sport og fer hann t.d., ásamt Sigurði, í badminton einu sinni til tvisvar í viku. Golfið heillar hann einnig, enda segir hann stutt í það að hann fari að stunda það. Sig- urður stundar golf af kappi hjá Keili í Hafnarfirði. 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.