Íþróttablaðið - 01.04.1997, Page 28
— Hversu lengi býstu við að spila
í þessum gæðaflokki?
„Vonandi þangað til ég verð þrjá-
tíu og fimm eða svo og jafnvel leng-
ur. Nú til dags held ég að það sé góð-
ur möguleiki. Ef maður heldur sér í
góðu formi og sleppur við meiðsli."
— Hvernig líst þér á möguleika
ykkar í vetur?
„Vel.Viðerum efstir ídeildinni og
mér finnst við ekki hafa spilað okkar
bestu leiki ennþá. Ef við náum að
spila eins vel og við gerðum í fyrra-
vor held ég við ættum að ná að
vinna."
— Hvað gerirðu til að
slappa af?
„Yfirleitt fer ég út að
borða með vinum mínum
eða fæ mér bjór með þeim.
Hangi heima og les eða horfi
á vídeó. En oftast slappa ég
bara af heima hjá mér."
— Eldarðu sjálfur matinn
þinn?
„Stundum. Ég hef búið
einn í þrjú ár en yfirleitt fer
ég bara til mömmu sem býr
rétt hjá eða fer til vina
minna."
— Hver eru helstu áhuga-
mál þín fyrir utan fótbolta?
„Að fylgjast með öðrum
íþróttum og bara slappa af.
Vinir mínar spila fótbolta
stundum og ég fylgist með
þeim."
— Hvaða íþróttamaður er
fremstur í heiminum í dag?
„Ætli ég myndi ekki segja
Michael Jordan körfubolta-
maður og Michael Johnson
hlaupari."
— Hverjir heldurðu að
vinni næsta Heimsmeistara-
mót?
„Vonandi Wales (hlær), ef
við komumst þangað. Ætli
það verði ekki Brasilía, þeir
eru með Ronaldo, hann er
ótrúlegur leikmaður."
Þegar við stigum út úr
bílnum til að taka mynd juk-
ust skrækir aðdáendanna til
muna en Giggs, sem greini-
lega er vanur þessu, lét það
lítið á sig fá og eftir að hafa
setið fyrir á nokkrum mynd-
um brunaði hann í burtu.
— Hvað er það sem skilur á milli
þess að vera áhugamaður og að ná
að verða atvinnumaður?
„Ég held að það sé viljinn til að
læra af þjálfurum og öðrum leik-
mönnum. Maður þarf líka að hafa
löngunina, að vilja virkilega spila
fótbolta."
— Eru flestir vinir þínir íþrótta-
menn?
„Nei, flestir vinir mínir eru þeir
sömu og frá því ég var í skóla. Ég á
náttúrlega vini í liðinu en bestu vinir
mínir eru í venjulegum störfum."
28