Íþróttablaðið - 01.04.1997, Síða 33

Íþróttablaðið - 01.04.1997, Síða 33
Penni Peppas er sannkallaður sigurvegari í körfubolta. Grindvíkingar stálu senunni undir lok íslandsmótsins í körfubolta og völt- uðu yfir Keflavík og KR í úrslitakeppninni. Hjörleifsson, þjálfari kvennaliðs Breiðabliks, og eftir samtalið ákvað hún að koma hingað. „Siggi Hjöll var svo yndislegur að ég ákvað að skella mér. Ég var búin með háskólanám og hafði engu að tapa. Maður hefði get- að séð á eftir því síðar að hafa aldrei farið." Með Breiðabliki varð hún ís- landsmeistari strax á sínu fyrsta ári. Þótt fyrsta árið hafi verið sigursælt leist henni vart á blikuna þegar hún kom til íslands. Á fyrstu æfingunum með liðinu vantaði bestu stelpurnar og sá hún aðeins þær yngri. „Ég spurði sjálfa mig hvað ég væri að gera hér en allt fór þó vel að lokum. I Bandaríkjunum spila háskólar gegn hvor öðrum og maður ert að leika við stelpur á svipuðum aldri. Hér spila félagslið gegn hvort öðru og aldursmunurinn er miklu meiri. Nokkur íslensk lið hafa á að skipa efnilegum stúlkum, t.d. Keflavík, KR og IS. Ég skil ekki at' hverju ungar stúlkur, sem eru boðnar til Bandaríkj- anna til háskólanáms, nýta sér ekki tækifærið. Þær segja oft að þær eigi kærasta o.s.frv. Þær eru bara 18-19 ára og eiga allt lífið fyrir sér." Ungu stelpurnar í Grindavík stóðu sig hreint frábærlega í úrslitakeppn- inni og áttu mikinn þátt í velgengni liðsins. „Þessar stelpur, eins og Rósa Ragnarsdóttir, Stefanía Ásmuq^s- dóttir og Sólveig Gunnlaug*dóttir, eru í 10. bekk eða nýb#jaðar í ifajpv hnldsskóla. Þær voru að suila 3(V ^ mínútur í leik. Fyrir þeim var þetta að duga eða drepast. Ég man ekki eftir að hafa verið svona góð þegar ég var 15-16 ára. Stemmningin var frábær hjá þeim." Þegar Penni var spurð að því hvort hún vildi setjast að á íslandi svaraði hún hlæjandi: „Ekki spyrja mig að því. Ég hef ekki minnstu hug- mynd um það. Hér hef ég verið í 3 ár og orðið íslandsmeistari tvisvar. Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari karla, hefur skorað á mig að sækja um ís- lenskan ríkisborgararétt. Ég er ung og framtíðin er óráðin. Kannski langar mig til að fara eitthvert annað. En ég mun koma aftur á næsta ári," svaraði þessi geðþekka og frábæra körfuknattleikskona að lokum. iSUBuiny' Ferskleiki er okkar brasð.™ 33

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.