Íþróttablaðið - 01.04.1997, Blaðsíða 34
Texti: Eggert Þór Aðalsteinsson
Myndir: Erling Ó. Aðalsteinsson
Sigurður Ingimundarson
hefur gert frábæra hluti
með fimmfalda meistara
Keflavíkur í vetur.
Hver er galdurinn á
bakvið liðið? Af hverju
eigum við ekki að fá til
okkar erlenda þjálfara?
Er Damon Johnson besti
erlendi leikmaðurinn
sem hefur spilað á
íslandi? Þessu svarar
Sigurður.
jaldan eða aldrei hefur eitt
lið haft eins mikla yfir-
burði yfir önnur lið og
körfuboltalið Keflavíkur í
vetur. Fyrir stuttu tryggði liðið sér ís-
landsmeistaratitilinn þegar það sigr-
aði Grindavík í þremur leikjum.
Áður hafði liðið unnið Reykja-
nesmótið, Lengjubikarinn, bikar-
keppnina og deildarkeppnina. Þessu
sigursæla liði stýrir hinn þrítugi, Sig-
urður Ingimundarson, landsliðs-
maður til margra ára, en hann lagði
skóna á hilluna eftir síðasta leiktíma-
bil. Sigurður varð þrívegis Islands-
Lcstarstjórinn!
meistari og tvívegis bikarmeistari
með Keflavík. Hann var gerður að
þjálfara fyrir þetta leiktímabil en
hann hafði frá 1991 þjálfað kvenna-
lið Keflavíkur með frábærum árangri
þar sem hann stýrði því til fjögurra
Islandsmeistaratitla.
Þegar blaðamann bar að garði í
Keflavík var kona Sigurðar, Hafdís
Jónsdóttir, að koma frá Lúxemburg
en hún starfar sem flugfreyja. Að-
spurð um ágæti eiginmannsins sagði
hún hlæjandi: „Það er ekkert
skemmtilegt um hann að segja.
Hann er skrýtinn!"
Sigurður segist hafa lítinn tíma til
að sinna öðrum áhugamálum. „Við
félagarnir hittumst mikið, spjöllum
og borðum saman."
— Þú ert ekkert í golfi eða því-
líku?
„Nei, en þessa dagana spila ég
Sigurvegarar ársins í körfubolta karla — Keflavík.
34