Íþróttablaðið - 01.04.1997, Page 38
með því að leika í jafngóðu liði og
Keflavík. Þeir myndu spila og skora
meira annars staðar. En það stefnir
allt í að Albert Óskarsson fari í nám
til Bandaríkjanna á næsta ári. Ekkert
lið getur fyllt í skarð leikmanns eins
og Alberts og þess vegna verðum við
að breyta leikskipulaginu. Þetta er
eina breytingin sem ég sé á liðinu
fyrir næsta tímabil. Guðjón er elstur í
liðinu, aðeins þrítugur, þannig að
enginn mun leggja skóna á hilluna á
næstunni."
— Ef við snúum okkur að öðrum
málum, hvernig finnst þér karfan
hafa verið í vetur?
„Deildin byrjaði fullrólega. Mér
fannst ekki vera leikinn góður körfu-
bolti fyrri hluta mótsins, sérstaklega
fyrsta mánuðinn. Eftir það fór körfu-
boltinn batnandi. Það, sem ein-
kenndi einnig fyrri hluta mótsins,
voru mörg lið sem notuðu „Bosman-
málið" til þess að fá sér fullt af út-
lendingum og ætluðu að koma sér
áfram á því. Það voru gífurleg leik-
mannaskipti hjá mörgum liðum.
Leikmannaskiptin komu öll í einni
hrinu, 4-5 lið fengu sér nýjan útlend-
ing. Eftir að liðin gerðu sínar síðustu
breytingar var deildin mjög góð. Þá
voru komnir góðir erlendir leikmenn
í flest lið."
— Yfirburðir fáeinna liða hafa
loðað við deildarkeppnina síðustu
ár, þið í vetur og Grindavík og
Njarðvík síðustu ár á undan. Geta
þessir miklu yfirburðir dregið úr
áhuga almennings á íþróttinni?
„Það gæti verið fyrir einhverja ut-
anaðkomandi. Þeir kynnu að segja
að þarna væru Suðurnesjamenn sem
væri leiðinlegt að horfa á og ynnu
allt. Eg held að áhugamenn annars
staðar af landinu ættu að fara að gera
eitthvað í málunum og koma Reykja-
víkurliðunum loksins á landakortið.
KR stóð sig vel í vetur og Valur
komust upp í úrvalsdeildina en þessi
lið sem og önnur lið úti á landi eiga
að geta gert miklu betur. Það krefst
náttúrlega gífurlegs starfs að koma
upp góðu liði og ég veit til þess að
mörg lið leggja ekki á sig vinnu og
tíma til að verða góð."
— Finnst þér vera sami vöxtur í
körfunni og fyrir nokkrum árum
þegar NBA tröllreið öllu og breyt-
ingar voru gerðar á deildinni?
„Hápunkturinn í körfunni var fyrir
4-5 árum. Nú erum við kannski í að-
eins lægð miðað við þá en ef við
höldum rétt á spöðunum þá förum
við aftur á sama stað. Það er ekki
mikill munur á körfunni nú og þá. Á
alvöru leikjum er fullt af fólki og
áhugi á körfubolta er gífurlegur. Mér
finnst að þurfi að auglýsa íþróttina
betur og sjónvarp þarf að koma bet-
ur þar inn. Umfjöllun sjónvarps hef-
ur verið léleg í vetur. Við getum gert
betur með alls konar litla hluti og þá
þarf ekki óttast um framtíð körfunnar.
Ég held að handboltinn nái aldrei
aftur þeim yfirburðum sem hann
hafði áður fyrr fyrst karfan er orðin
þetta vinsæl."
— Hvernig líst þér á komandi
verkefni landsliðsins? Eigum við ein-
hverja möguleika í stóru þjóðirnar?
„Nú er landsliðið að fara í hörku-
keppni [milliriðla Evrópukeppni
landsliða] og verður fróðlegt að fylgj-
ast með því. Við eigum enga mögu-
leika í bestu landsliðin en við erum
síst verri en margar stórar þjóðir, Við
höfum tapað naumlega fyrir mörgum
þeirra af því okkur hefur vantað
meiri líkamlegri styrk. Ég get alveg
trúað því að ísland eigi eftir að spjara
sig í þessari keppni. Það er mikið
framfaraskref að komast í hana. Fólk
gerir sér ekki grein fyrir hversu erfitt
er að komast áfram í Evrópukeppn-
inni."
— Var það mikill missir fyrir
deildina að Teitur Örlygsson, Guð-
mundur Bragason og Herbert Arnar-
son skyldu fara út?
Falur Harðarson átti stórieiki gegn
Grindavík og raðaði 3ja stiga skot-
unum niður.
„UHFJÖLLUN WmmtNS
Hem \/em iéveq"
„Jú, vissulega var þetta einhver
missir en ég veit ekki betur en að fyr-
ir þá komu fram nýir leikmenn sem
blómstruðu. Ég held að þessar breyt-
ingar geri deildina breiðari. Það
hjálpar einnig körfunni að sjá að hún
getur eignast atvinnumenn sem eru
nógu góðir til að spila annars staðar.
Þótt þessir þrír leikmenn hafi verið
landsliðsmenn voru þeir ekkert mik-
ið betri en aðrir leikmenn sem spila
hér. Leikmenn á íslandi hljóta því að
sjá að þeir eiga líka möguleika. í
þessu sambandi er líka spurning um
hvort það eigi að hleypa leikmönn-
um frá Austur-Evrópu inn í „Bosman-
dæmið" sem ég veit ekki hvort af því
verður. Þá minnka vissulega mögu-
leikar okkar manna mikið. Ég veit til
þess að Jón Arnar Ingvarsson hefur
verið að ræða við nokkur lið. Nokkr-
ir leikmenn í Keflavík gætu hæglega
spilað erlendis. Ég gæti líka nefnt
Helga Jónas Guðfinnsson og Her-
mann Hauksson. Það eru ungir strák-
ar sem gætu hæglega farið út eftir
nokkur ár, héðan og frá Tindastóli."
— Hverjir eru vanmetnustu leik-
menn deildarinnar?
„Hér á íslandi er viðhorfið þannig
að þeir sem skora mest eru alltaf
bestir þótt þeir geti ekkert annað.
Stundum hefur það gerst að fullt af
góðum sóknarmönnum, sem spila
sömu stöður, eru valdir í landsliðið.
Mér finnst að stóru, íslensku leik-
mennirnir ættu að fá meiri athygli,
þeir sem eru að taka fráköstin og
gæta útlendinganna. Ég nefni samt
engin nöfn."
38