Íþróttablaðið - 01.04.1997, Page 58
Umsjón og texti: Valdimar Kristófersson
Myndir: Erling Ó. Aðalsteinsson
Aðrar sem fengu atkvæði voru:
Penny Peppas besti leikmaður 1. deildar kvenna í körfubolta.
ársins
1 . D E I L D
Penny Peppas
Grindavík (6)
Guðbjörg Norðfjörð
KR (4)
Anna María Sveinsdóttir
Keflavík (5)
Erla Reynisdóttir
Keflavík (5)
Helga Þorvaldsdóttir
KR (5)
Lítil spenna einkenndi 1. deild kven-
na í körfuknattleik í vetur. Keflvíking-
ar höfðu mikla yfirburði yfir önnur
lið og því þótti sjálfsagt að stúlkurn-
ar færu alla leið í úrslitaleik um Is-
landsmeistaratitilinn. Ekki voru allir
á sama máli og stúlkurnar úr Grinda-
vík voru með önnur áform. Með gíf-
urlegri baráttu, mikilli leikgleði og
góðri samheldni tókst þeim að legg-
ja andstæðinga sína af velli og lyfta
Islandsmeistaratitlinum í fyrsta sinn.
Það er sérlega glæsileg frammistaða í
Ijósi þess að liðið hafnaði í 4. sæti í
deildarkeppninni. Þjálfararnir voru
flestir á því að það væri gott fyrir
kvennakörfuna að nýtt lið hefði unn-
ið titilinn. Það sýndi að breiddin
væri að aukast í körfunni.
Hver þjálfari stillti upp fimm
manna liði og mátti ekki velja leik-
menn úr sínu liði. Penny Peppas
hlaut fullkomna kosningu, enda gíf-
urlega snjall leikmaður. Annars
fengu stúlkurnar í liði ársins afger-
andi kosningu og greinilegt var að
þjálfararnir voru á eitt sáttir um lið
ársins. Reyndar fékk Anna Dís fjögur
stig en Anna María fékk fimm sam-
tals, þrjú sem miðherji og tvö sem
framherji og því er Anna María í
stöðu miðherja.
Bakverðir:
Alda Jónsdóttir, ÍS 2
Sólveig Gunnlaugsd, Grindavík 1
Miðherjar:
Anna Dís Sveinbjörnsd, Grindavík4
Framherjar:
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 2
Eva Stefánsdóttir, Njarðvík 1
Það er engin spurning að Penny
Peppas er drottning körfuboltans á
íslandi. Hún fékk sex stig af sjö
mögulegum í vali á leikmanni vetrar-
ins. Hver þjálfari mátti nefna tvo
leikmenn en einn valdi eingöngu
einn leikmann. Sumir þjálfararnir
áttu ekki orð til að lýsa áðdáun sinni,
sögðu hana hafa stjórnað úrslita-
keppninni fram í fingurgóma. Einn
þjálfarinn sagði að það skipti engu
máli í hvaða liði Penny væri, það lið
myndi nánast örugglega standa uppi
sem sigurvegari mótsins. Annar þjálf-
ari sagði að Penny væri frábær leik-
maður en því mætti þó ekki gleyma
að Grindavík væri með gott lið og
stúlkurnar hefðu unnið titilinn á
sterkri liðsheild.
n .• i <i * .
Besti leikmaourinn:
Penny Peppas, Grindavík 6
Anna María Sveinsdóttir, Keflavík4
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 1
Erla Reynisdóttir, Keflavík 1
Helga Þorvaldsdóttir, KR 1
Þjálfararnir áttu erfitt með að gera
upp við sig hver væri efnilegasta stúl-
ka landsins. Greinilegt er að mikið er
um efnilegar stúlkur í körfuboltanum
og er það góðs viti. Fjórar stúlkur
voru jafnar að stigum, Alda Jónsdótt-
ir, Eva Stefánsdóttir, Signý Her-
mannsdóttir og Stefanía Asmundar-
dóttir en hver þjálfari nefndi tvo leik-
menn.
Efnilegasti leikmaðurinn:
Alda Jónsdóttir ÍS 2
Eva Stefánsdóttir, Njarðvík 2
Signý Hermansdóttir, ÍS 2
Stefanía Ásmundard., Grindavík 2
Berglind Kristjánsdóttir, Njarðvík 1
Erla Reynisdóttir, Keflavík 1
Hekla Maídís Sigurðardóttir,
Grindavík 1
María Karlsdóttir, Keflavík 1
Rósa Ragnarsdóttir, Grindavík 1
Steinunn Dúa Jónsd., Breiðablik 1
58