Bændablaðið - 02.07.2020, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 20204
FRÉTTIR
Loftslagsskýrsla um íslenska nautgriparækt:
Þörf á betri gögnum til að
rökstyðja losunarbókhald
Starfshópur um loftslagsmál í
nautgriparækt hefur skilað skýrslu
til Kristjáns Þórs Júlíussonar
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra. Í skýrslunni er lögð
áhersla á að þau gögn sem liggja
til grundvallar losunarbók-
haldinu í nautgriparækt verði
bætt.
Greint er frá útgáfu skýrsl unnar
á vef atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytisins. Þar kemur fram að
hópurinn hafi verið skipaður fyrr
á árinu í framhaldi af undirritun
samkomulags um breytingar á
samningi um starfsskilyrði naut-
gripa ræktar.
Bætt gögn og fræðsluverkefni
„Hlutverk hópsins var að setja saman
verk- og fjárhagsáætlun og að út-
færa þau atriði sem miða að kolefn-
isjöfnun greinarinnar. Í skýrslunni
leggur starfshópurinn megináherslu
á að þeir fjármunir sem til ráðstöfunar
verða fram að næstu endurskoðun bú-
vörusamninga árið 2023 verði nýttir
annars vegar til að bæta þau gögn
sem liggja til grundvallar losunarbók-
haldinu í nautgriparækt og hins vegar
til fræðsluverkefna“, segir á vefnum.
Þýðingarmikið aðgengi bænda
Þá segir þar að þýðingarmikið sé að
bændur hafi aðgang að sem bestum
gögnum um losun frá sínum búum,
séu meðvitaðir um hana og þá
möguleika sem þeir hafa til að draga
úr henni.
Fjármunir sem verða til ráðstöf-
unar eftir endurskoðunina 2023 verði
síðan nýttir til að ýta undir beinar
aðgerðir á búunum. /smh
Stjórnvöld stóðu fyrir kynningu
á nýrri aðgerðaráætlun í
loftslagsmálum þriðjudaginn
23. júní. Þar kom fram að
samkvæmt nýju stöðumati mun
Ísland uppfylla alþjóðlegar
skuldbindingar sínar og gott
betur; með aðgerðum mun losun
á gróðurhúsalofttegundum dragast
saman um 35 prósent að lágmarki
frá árinu 2005 til 2030, en ekki 29
prósent eins og stefnt var áður að
með Parísarsamkomulaginu.
Því til viðbótar er samkvæmt
hinu nýja stöðumati, gert ráð fyrir
að með nýjum aðgerðum sé hægt að
skila 5–11 prósentum til viðbótar í
samdrætti á losun.
Losun dregst saman um ríflega
milljón tonn
Með aðgerðum Íslands er áætlað
að losun gróðurhúsalofttegunda,
sem eru á beinni ábyrgð Íslands,
muni hafa dregist saman um ríflega
eina milljón tonna CO2-ígilda árið
2030. Um 46 milljörðum króna
verður varið til helstu aðgerða í
loftslagsmálum á fimm ára tímabili,
2020–2024. Áætlunin samanstendur
af 48 aðgerðum, þar af 15 nýjum,
sem hafa bæst við frá því að fyrri
aðgerðaráætlunin var gefin út haustið
2018. Samhliða víðtæku samráði við
gerð nýrrar útgáfu áætlunarinnar
hefur verið lögð áhersla á að hrinda
aðgerðum strax af stað. Þannig eru
28 aðgerðir af 48 þegar komnar til
framkvæmda.
Mestur samdráttur í
orkuframleiðslu og smærri iðnaði
Mesti samdráttur losunar í áætluninni
er talinn verða frá orkuframleiðslu
og smærri iðnaði, 67 prósent
frá árinu 2005; úr 571 þúsundi
CO2-ígilda í 189 þúsund. Helstu
aðgerðir þess liðar eru að fanga
kolefni frá jarðvarmavirkjunum,
rafvæðing fiskimjölsverksmiðja,
loftslagsáhrif byggingariðnaðarins
og innlent endurnýjanlegt eldsneyti.
Málaflokkurinn úrgangur og sóun
er litlu minni, eða 66 prósenta
samdráttur; úr 330 þúsundum
CO2-ígilda í 113 þúsund. Helstu
aðgerðirnar þar eru urðunarskattur,
bann við urðun lífræns úrgangs og
minni matarsóun. Skip og hafnir
munu skila 42 prósenta samdrætti;
úr 769 þúsundum CO2-ígilda í 449
þúsund. Þar eru helstu aðgerðir
orkuskipti í sjávarútvegi, rafvæðing
hafna, bann við notkun svartolíu,
orkuskipti í ferjum, orkuskipti í
skipum á vegum ríkisins. Minnst
dregst saman losun í landbúnaði,
eða fimm prósent, úr 605 þúsundum
CO2-ígilda í 575 þúsund. Helstu
aðgerðir þar eru loftslagsvænn
landbúnaður, kolefnishlutleysi
í nautgriparækt, aukin innlend
grænmetisframleiðsla, bætt nýting
og meðhöndlun áburðar og bætt
fóðrun búfjár til að draga úr
iðragerjun.
Ávinningur aðgerða voru metnar
af sérfræðingum umhverfis- og
auðlindaráðuneytisins, sér fræð-
ingum Umhverfisstofnunar og teymi
vísindafólks við Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík.
Hægt er að fylgjast með framgangi
áætlunarinnar á vefnum www.co2.
is. Áætlunin er komin í samráðsgátt
stjórnvalda til næstu þriggja mánaða
og þar gefst almenningi kostur á að
leggja fram umsagnir og ábendingar
til 20. september næstkomandi.
Árangur í sem mestri sátt
samfélags, efnahags og umhverfis
Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra sagði á blaðamanna-
fundinum að hún væri stolt af
árangrinum og það væri mikils
virði að geta náð slíkum árangri í
sem mestri sátt samfélags, efnahags
og umhverfis.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
sagði í tilefni uppfærðrar aðgerðar-
áætlunar að blaðinu hafi verið snúið
við í loftslagsmálum á Íslandi.
„Strax á fyrstu mánuðum ríkis-
stjórnarinnar var ráðist í aðgerðir
í loftslagsmálum og fjármagni
beint inn í málaflokkinn. Með þeim
aðgerðum sem við höfum gripið til
og hyggjumst grípa til munum við
ná mun meiri árangri en alþjóðlegar
skuldbindingar samkvæmt Parísar-
samkomulaginu krefjast af okkur.
Því ber svo sannarlega að fagna.
Við munum halda ótrauð áfram
að tryggja þau umskipti sem
nauðsynleg eru,“ sagði Guðmundur
Ingi.
Sigurður Ingi Jóhanns son
samgöngu- og sveitar stjórnar-
ráðherra sagði að lofts lagsmálin
væru eitt brýnasta viðfangsefni
samtímans og mikilvægt að þjóðir
heims hafi tekið höndum saman um
að vinna að þeim. „Áætlun Íslands
er metnaðarfull. Eitt af því sem er
mikilvægt er að almenningur geti
tekið þátt í þeim breytingum sem
verða að eiga sér stað og finni að
framlag hvers og eins skipti máli.
Orkuskipti í samgöngum leika þar
stórt hlutverk. Það er líka ljóst að
hagsmunir Íslands í því að skipta
yfir í vistvæna orkugjafa eru einnig
efnahagslegir því margir milljarðar
streyma nú úr landi til kaupa á
jarðefnaeldsneyti,“ sagði Sigurður
Ingi. /smh
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kynnir nýja aðgerðaráætlun í lofts-
lagsmálum.
Gert er ráð fyrir að losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði muni dragast
saman um fimm prósent til ársins 2030. Mynd / smh
Skýringarmynd sem fylgdi kynningu stjórnvalda.
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar:
Ekki trúverðugt án öflugs inngrips
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, hefur sett
fram gagnrýni á samgönguhluta aðgerðaráætlunar stjórnvalda og segir
að í hana vanti betri skýringar á því hvernig svo mikill samdráttur geti
náðst á svo stuttum tíma frá vegasamgöngum fyrir utan ívilnanir og þá
sjálfkrafa þróun í vistvænum samgöngum sem eigi sér stað.
„Það sem við erum fyrst og fremst að gagnrýna í þessari aðgerðaáætlun er að á 10
árum er gert ráð fyrir algjörum viðsnúningi frá fortíðinni. Losun frá vegsamgöngum
hefur aukist á tímabilinu frá 2005 til 2018 um 200 þúsund tonn. Í aðgerðaráætluninni
er gert ráð fyrir að á næstu 10 árum náum við að draga losun saman um 364 þúsund
tonn sem er í algjörri andstöðu við þróunina. Það er ekki trúverðugt að það geti
gerst án öflugs inngrips eins og síhækkandi kolefnisgjaldi eða banni við innflutningi
á bensín og díselbílum. Eingöngu er gert ráð fyrir að veita ívilnanir og treysta á
sjálfkrafa umbreytingu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sagt að langskjótvirkasta
leiðin sé veruleg hækkun kolefnisgjalds en henni á ekki að beita hér á landi. Enda
sýna bráðabirgðatölur fyrir 2019 að eingöngu tveggja prósenta samdráttur hefur
orðið í olíunotkun vegsamgangna á milli áranna 2018 og 2019,“ segir Auður og
vísar í gögn Orkustofnunar. „Í aðgerðaráætluninni virðist vera gert ráð fyrir um fimm
prósenta samdrætti á milli þessara ára.
Ég hef beðið um að fá forsendurnar fyrir því að við náum svo miklum samdrætti
á þetta stuttum tíma án harðra aðgerða en hef ekki fengið. Málið snýst nefnilega
ekki um fjölda rafmagnsbíla heldur um fjölda bensín- og díselbíla og ekna kílómetra
á þeim. Það sem við erum að gagnrýna er að áætlunin gerir ráð fyrir því að með
núverandi aðgerðum muni sjálfkrafa draga úr losun frá vegasamgöngum um 286
þúsund tonn á tímabilinu, sem er samkvæmt okkur óraunhæft og ekki í samræmi
við okkar útreikninga.
Það sama gildir í raun um losun frá sjávarútvegi. Í aðgerðaráætluninni er gert
ráð fyrir því að losun frá honum dragist saman um 132 þúsund tonn á tímabilinu
algjörlega án inngrips en olíunotkun hans árin 2016–2019 (bæði meðtalin) hefur
staðið í stað eða aukist lítillega eftir mjög hraðan og mikinn samdrátt. Það er því erfitt
að sjá að verulegur samdráttur verði í losun frá sjávarútvegi án aðgerða. Í áætluninni
er gert ráð fyrir að veiði dragist saman á tímabilinu og þar með olíunotkun. Veit ekki
hvort sjávarútvegurinn er sammála þeirri spá.“
Ný aðgerðaráætlun stjórnvalda í loftslagsmálum:
Horft fram á betri árangur en alþjóðlegar
skuldbindingar segja til um
Viðgerðir og sala á alternatorum og startörum
í flestar gerðir bíla, báta og vinnuvéla.
Hjólastillingar, úrval af ljósum á kerrur og
eftirvagna, kerrutenglar, kaplar, perur og tengi.
Sendum um allt land.
www.pgs.is
pgs@pgs.is
s 586 1260
Viðarhöfði 1, 110 Reykjavík
Alternatorinn eða
startarinn bilaður?