Bændablaðið - 02.07.2020, Page 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202010
FRÉTTIR
Landssýning kynbótahrossa á Gaddstaðaflötum:
Rjóminn í íslenskri hrossarækt
– Stóðhesturinn Skýr frá Skálakoti hlaut Sleipnisbikarinn
Landssýning kynbótahrossa var
haldin á Gaddstaðaflötum við
Hellu um síðustu helgi en þar
voru samankomnir helstu gæð-
ingar landsins. Þátttökurétt áttu
tíu hæst dæmdu kynbótahross
vorsins í öllum flokkum, auk stóð-
hesta með afkvæmaverðlaun.
Þegar ljóst var að Landsmót
hestamanna yrði blásið af vegna
kórónuveirufaraldursins var fljót-
lega ákveðið að stefna að sýn-
ingarhaldinu til þess að svala þorsta
aðdáenda íslenska hestsins.
Veðrið var eins og best verður á
kosið og var greinilegt að um 1.200
gestir í brekkunni nutu dagsins til
fullnustu. Hundruð áhorfenda fylgd-
ust með beinu streymi af sýningunni
á netinu víða um heim en þeir gátu
valið um lýsingar á íslensku, ensku
og þýsku.
Óhætt er að segja að vel hafi
tekist til með sýninguna sem stóð
í einn dag. Það var hátíðleg stund
þegar ræktendur og knapar tóku á
móti verðlaunum fyrir hæst dæmdu
hryssur og stóðhesta í sínum aldurs-
flokkum.
Sleipnisbikarinn og
afkvæmaverðlaun
Sleipnisbikarinn, heiðursverð-
laun íslenskrar hrossaræktar, sem
Bændasamtökin veita venjulega á
Landsmóti hestamanna þeim stóð-
hesti sem stendur efstur til afkvæma,
var afhentur ræktendum Skýrs frá
Skálakoti en hann er 13 vetra stóð-
hestur með 128 stig í aðaleinkunn í
kynbótamati og 52 sýnd afkvæmi.
Guðmundur Viðarsson, ræktandi
Skýrs og bóndi í Skálakoti, tók á
móti Sleipnisbikarnum ásamt Jakobi
Svavari Sigurðssyni, sem er meðeig-
andi hans og hefur séð um þjálfun
þessa mikla gæðings.
Afkvæmaverðlaun stóðhesta
voru afhent ræktendum. Fyrstu verð-
laun fyrir afkvæmi hlutu Stormur
frá Herríðarhóli, Ölnir frá Akranesi,
Konsert frá Hofi og Skaginn frá
Skipaskaga. Heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi hlutu Loki frá Selfossi,
Óskasteinn frá Íbishóli og áður-
nefndur Skýr frá Skálakoti. Allir
verðlaunagripir sem veittir eru á
landsmótum í einstaklingssýningum
og fyrir afkvæmahesta voru veittir
á sýningunni.
Mikilvægur vettvangur
til að kynna ræktunina
Þorvaldur Kristjánsson, ráðunautur
í hrossarækt, sagði í aðdraganda
sýningarinnar að mikilvægt væri
að veita ræktendum og hesta-
eigendum vettvang til að kynna
sína ræktun.
„Það er nauðsynlegt að við sam-
einumst öll um þennan dag íslenskri
hrossarækt til heiðurs og framdráttar;
sýna heiminum að Ísland, uppruna-
land íslenska hestsins, er sannarleg
uppspretta gæða í hrossavali,“ sagði
Þorvaldur.
Það var Félag hrossabænda,
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
Horses of Iceland hjá Íslandsstofu
og félagið Rangárbakkar sem áttu
veg og vanda af sýningarhaldinu.
Fleiri myndir á bbl.is
Upplýsingar um hestakostinn og
fleiri myndir frá Landssýningu
kynbótahrossa árið 2020 er að
finna á vef Bændablaðsins, bbl.is.
/TB
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, ásamt
aðgerðahópi sauðfjárbænda, auglýsir eftir þátt-
takendum í tilraunaverkefni um heimaslátrun.
Verkefnið byggir á samkomulagi sem Kristján
Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra og Landsamband Sauðfjárbænda
gerði í júní sl. Markmið þess er að leita leiða
til þess að auðvelda bændum að slátra sauðfé
heima til markaðssetningar þannig að upp-
fyllt séu skilyrði regluverks um matvælaöryggi
og gætt sé að dýravelferð og dýraheilbrigði.
Þannig verði leitast við að bæta afkomu sauð-
fjárbænda, stuðla að bættri dýravelferð og
sterkari tengingu á milli neytenda og íslenskra
frumframleiðenda matvæla.
Fyrirhugað er að bændur framkvæmi heima-
slátrun sjálfir á bæjunum og opinbert eftirlit
verði framkvæmt af dýralæknum á vegum
Matvæla stofnunar. Kostnaður vegna dýra-
læknaþjónustu verkefnisins greiðist af ráðu-
neytinu. Kjöt af gripum sem slátrað verður í
tilraunaverkefninu verður ekki selt.
Tilkynningar um þátttöku og frekari upplýsingar:
Þröstur Heiðar Erlingsson í Birkihlíð
(raggalara@gmail.com), s: 6905528
Guðný Harðardóttir í Breiðdalsbita
(gudnyhardar@gmail.com), s: 865 0313
Matthías Lýðsson í Húsavík á Ströndum
(husavik@simnet.is), s: 8458393
Pétur Snæbjörnsson í Reynihlíð
(petur@reynihlid.is), s: 894 4171
Nánari upplýsingar er einnig að finna á heima-
síðu Landssamtaka sauðfjárbænda, saudfe.is
Frestur til að tilkynna þátttöku er til og með
12. júlí.
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið
Tilraunaverkefni
um heimaslátrun
Guðmundur Viðarsson, bóndi í
Skálakoti, með Sleipnisbikarinn.
Félagar í hestamannafélögum á
Suðurlandi afhentu verðlaun á
sýningunni.
Fenrir frá Feti, einn af Lokasonum,
vakti verðskuldaða athygli enda
glæsilegt hross.
Þeir Jón Vilmundarson og Þorvaldur
Kristjánsson sátu í þulaskúrnum og
héldu áhorfendum upplýstum um
gang mála.
Ragnhildur Loftsdóttir veitti
Álfadísarbikarnum viðtöku fyrir hæst
dæmdu 4. vetra hryssu vorsins, Drift
frá Austurási.
Leynir frá Garðshorni á Þelamörk
hlaut fyrstu verðlaun í flokki fimm
vetra stóðhesta.
Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands, afhenti
Sleipnisbikarinn. Honum á vinstri hönd er Sveinn Steinarsson, formaður
Félags hrossabænda, sem stjórnaði verðlaunaveitingu af röggsemi. Myndir / TB
Hlynur Guðmundsson, knapi og bóndi á Svanavatni, á fljúgandi skeiði á
gæðingshryssunni Öskju frá Efstu-Grund, Skýrsdóttur.
Heiðrún Sigurðardóttir, doktorsnemi við LbhÍ og SLU í Svíþjóð, var á
sýningunni og safnaði DNA-sýnum úr tagli úrvalshrossa. Markmiðið er að
bera kennsl á þau gen sem hafa áhrif á getu og gæði gangtegunda íslenskra
hrossa. Hér er hún með Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur knapa.
Kátir áhorfendur í brekkunni.
Pétur Halldórsson, ráðunautur hjá
RML, var sýningarstjóri á Hellu.
Skýr frá Skálakoti með afkvæmum sínum og eigendum, þeim Jakobi Svavari
Sigurðssyni og Guðmundi Viðarssyni.