Bændablaðið - 02.07.2020, Side 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 2020 33
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
MEIRA FÓÐUR, LYSTUGRA FÓÐUR
Nánari upplýsingar gefur:
Grétar Hrafn Harðarson
S: 892-1480
Nf: gretarhrafn@simnet.is
GRÆNU VELFERÐARGÓLFIN
Heyrnarmælingar, ráðgjöf og heyrnartækjaþjónusta
Bókaðu tíma í síma 568 6880 eða á www.heyrnartaekni.is
Vantar þig
heyrnartæki?
Opn S eru ný tegund heyrnartækja frá Oticon sem hjálpa þér að heyra margfalt betur í fjölmenni og klið.
Þú getur fengið Opn S með endurhlaðanlegum rafhlöðum. Heyrnartækni hefur um árabil veitt þjónustu
víðs vegar á landsbyggðinni. Í júlí bjóðum við upp á heyrnarmælingar, ráðgjöf og þjónustu á eftirfarandi stöðum:
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Akureyri | Akranes | Borgarnes | Egilsstaðir | Ísafjörður | Reykjanesbær
Sauðárkókur| Selfoss | Siglufjörður
Bænda 16. júlí
Þórir Jón Ásmundsson, bóndi á Þórustöðum, fræðir krakkana um kartöflurækt.
Fimm ný námskeið
á hverju sumri
Vísindaskóli unga fólksins er fyrir
börn á aldrinum 11–13 ára og hefur
hann verið starfræktur frá árinu
2015. Upphafsmaður að stofnun
skólans er Sigrún Stefánsdóttir
sem jafnframt er skólastjóri. Um
80 börn sækja skólann árlega. Dana
Rán Jónsdóttir verkefnastjóri segir
að dagskráin sé breytileg frá ári til
árs sem geri það mögulegt fyrir börn
að koma þrjú ár í röð og tileinka
sér nýjan fróðleik í hvert sinn. „Við
bjóðum upp á fimm ný námskeið
á hverju sumri og leggjum áherslu
á að allir nemendur hafi sama að-
gang að öllu námsframboði sem
er í boði hverju sinni í skólanum.
Vísindaskólinn hefur sannað mik-
ilvægi þess að í boði sé afþreying
fyrir ungmenni að loknum skóla þar
sem vísindi eru sett fram á fræðandi
og skemmtilegan hátt,“ segir Dana
Rán.
Fróðlegar heimsóknir
Berglind segir að hópur bænda
í Eyjafirði ásamt leiðbeinanda
og stuðningsfulltrúa hafi komið
saman á fögru sumarkvöldi til
að undirbúa móttöku nemenda-
hópanna fimm. Fyrirkomulagið
var með þeim hætti að fyrir há-
degi var bóklegt nám en verklegi
þátturinn var tekinn með heim-
sóknum á fjóra bæi, Kristnes,
Brúnalaug, Garð og Þórustaði
7. Blandaður búskapur er stund-
aður á Kristnesi þar sem áhersla
er lögð á sjálfbærni, Brúnalaug er
garðyrkjustöð sem leggur áherslu
á að rækta paprikur og gúrkur, á
Garði er rekið stórt og tæknivætt
kúabúa og kartöfluræktun fer fram
á Þórustöðum 7.
„Vandaður undirbúningur
bændanna vegna Vísindaskólans
og hlýlegar móttökur þeirra var
kjarninn í námskeiðinu. Þetta
var virkilega skemmtilegt og
börnin urðu margs fróðari um
íslenskan landbúnað og fjöl-
breytileika hans,“ segir Berglind.
„Bændurnir eiga líka hrós skil-
ið, þeir gáfu sér tíma til að sinna
þessu verkefni með okkur þó nóg
sé að gera á þessum árstíma og
stóðu sig afar vel.“
/MÞÞ
Anna Sigríður Pétursdóttir leiðir krakkana í allann sannleik um ræktun á
grænmeti, en í garðyrkjustöð sinni, Brúnalaug, ræktar hún einkum paprikur.
Helgi Þórsson í Kristnesi að sýna börnunum jarðarberjaræktun sína.