Bændablaðið - 02.07.2020, Side 42
Bændablaðið | Fimmtudagur 2. júlí 202042
Danski kjúklingaframleiðandinn
Danpo, sem er stærsti kjúklinga
framleiðandinn í Danmörku,
hefur nú ákveðið að hætta að
nota kjúklingategundina Ross
308 og í staðinn fyrir þá tegund
að skipta yfir í tegund sem heitir
Ranger Gold.
Líklega þekkja fæstir lesendur
Bændablaðsins muninn á þessum
tveimur tegundum, en tegundin
Ross 308 er algengasta kjúklinga-
tegundin í heiminum og hefur haft
mikla yfirburði yfir aðrar tegundir
vegna hagkvæmni í framleiðslu þar
sem tegundin er mjög hraðvaxta.
Tegundin hefur hins vegar lent
í ákveðnum mótbyr undanfarið
vegna þess að dýravelferðarsam-
tök hafa bent á að hinn mikli og
hraði vöxtur geti dregið úr velferð
kjúklinganna og hafa nú nokkur
dönsk matvælafyrirtæki og versl-
anir ákveðið að hætta að nota
kjúklingakjöt sem framleitt er með
þessari kjúklingategund.
12 daga munur
Eins og áður segir er tegundin
Ross 308 mjög hraðvaxta og með
einstaka fóðurnýtingu og tekur
það kjúklinginn ekki nema 34
daga að ná sláturstærð, eða 2.200
grömmum. Ranger Gold kjúlingur-
inn nær því hins vegar ekki fyrr en
að jafnaði á 46 dögum og því geta
bændur sem nota þessa tegund ekki
framleitt jafn mikið magn á hverju
ári og þeir sem eru með Ross 308.
Almennt lítið um afföll
Samkvæmt dönskum fjölmiðlum
þá er umræðan um betri velferð
hægvaxta kjúklinga byggð á tilf-
inningum eða skoðunum fólks en
margir virðast tengja hægan vöxt
við minni líkur á sjúkdómum eða
dauðsföllum kjúklinga þar sem
kjúklingarnir búa ekki við eins
kraftmikið eldi.
Samkvæmt dönskum rann-
sóknaniðurstöðum, sem reyndar
eru ekki mjög umfangsmiklar,
virðist þetta þó ekki vera tilfellið
og þarlend gögn sýna að hraðvaxta
kjúklingar eru ekki endilega lík-
legri til að fá framleiðslusjúkdóma,
eða til að drepast vegna kröfugs
eldis. Á það hefur þó verið bent
að gera þurfi ítarlegri rannsóknir
til að taka af allan vafa. Þá hefur
verið bent á það að almennt sé það
mjög sjaldgæft að kjúklingar fái
framleiðslusjúkdóma eða drepist
á eldistímanum og raunar benda
gögn til þess að heldur hærra hlut-
fall af Ross 308 kjúklingum ljúki
fullu eldi en einmitt Ranger Gold
kjúklingarnir!
Sótspor Ranger Gold stærra
Vegna lengri eldistíma á Ranger
Gold kjúklingunum, sem kallar á
aukna fóðurnotkun sem nemur 300
grömmum af fóðri á hvern slát-
urfugl, er sótspor þessarar fram-
leiðslu um það bil 20% stærra
en sótsporið sem verður til við
framleiðslu með Ross 308. Þar að
auki er frjósemin hjá Ranger Gold
verri þ.e. það eru fleiri fúlegg sem
verða til þegar þessi kjúklingur er
framleiddur. Þetta kallar einnig á
heldur hærra sótspor þar sem við
framleiðslu eggjanna þarf meira
fóður, lýsingu, hita, loftræstingu
og auðvitað vinnu.
Tekur gildi árið 2022
Þessi stefna Danpo tekur ekki gildi
strax enda tekur töluverðan tíma
að breyta framleiðsluháttum þó
svo að eldistími á kjúklingum sé
ekki langur. Skýringin felst í því að
framleiðslugeta þeirra bænda sem
framleiða eggin sem kjúklingarnir
klekjast úr er takmarkandi þáttur
þegar kemur að Ranger Gold
kjúklingum. Fyrst þarf að fjölga
fullorðnum varphænum og hönum
til þess að geta aukið framleiðsl-
una á eggjunum og þetta tekur allt
sinn tíma eða um níu mánuði. Svo
þarf að auka framboðið jafnt og
þétt og því gefur Danpo sér um
tvö ár í ferlið. Þar til viðbótar gefa
forsvarsmenn Danpo sér einnig að
það taki tíma að vekja neytendur
betur til vitundar um kosti þess að
kaupa frekar kjúklingakjöt af hæg-
vaxta fuglum en hraðvaxta.
Ekki allir sannfærðir
Vegna þess sem hér að framan
Á FAGLEGUM NÓTUM
Snorri Sigurðsson
snorri.sigurdsson@outlook.com
Garðeigendur njóta nú sumar
verkanna, sumarblóm og fjöl
æringar blómstra sem aldrei
fyrr og runnagróðurinn sýnir
sínar fegurstu hliðar eftir
harðan vetur. Allt er þetta besta
mál, en ekki má gleyma potta
plönt unum sem ættu núna að
njóta lífsins innanhúss.
Síðla vetrar eru pottaplöntur oft
hálf ræfilslegar. Þegar sólarinnar
nýtur aftur breyta þær um svip og
fá endurnýjaðan þokka.
Ólík umhirða að sumri og vetri
Sumarumhirða pottaplantna
er um margt ólík umhirðu að
vetri, þegar mesta áskorunin
er að halda þeim í horfinu, láta
þær njóta þeirrar birtu sem völ
er á og dregið er úr vökvun og
áburðargjöf. Sumartíminn felur
í sér aðrar áskoranir. Plönturnar
þurfa miklu meiri vökvun og þær
þurfa aukna næringu til að njóta
sín sem best og bæta við vöxtinn.
Blómin sem höfð voru á bjartasta
stað yfir veturinn getur þurft að
færa frá gluggum og hitagjöfum.
Margar tegundir geta hreinlega
eyðilagst af of mikilli beinni birtu
að sumrinu. Blöð geta sviðnað,
blómin standa stutt og plöntunum
hættir við ofþornun.
Loftraki
Loftraki í híbýlum er oftast mun
lægri en plönturnar kjósa helst. Til
að draga úr álagi vegna mikillar
birtu og aukins lofthita er gott
ef hægt er að hækka loftrakann.
Úða ætti plönturnar reglulega með
fínum vatnsúða. Annað gott ráð
er að láta plöntur standa í víðri
skál með vikri, þannig má hækka
loftrakann umhverfis plönturnar.
Einnig er hægt að hafa plöntur
margar saman, þó þannig að
vel fari um þær. Sá raki sem
plönturnar gefa sjálfar frá sér
er líka til þess fallinn að hækka
rakastigið nokkuð og plönturnar
fá líka skugga hver af annarri.
Vökvun og næring
Umpottun ætti yfirleitt að
vera lokið snemma vors. Þá fá
plönturæturnar nægilegt svigrúm
til að vaxa yfir sumartímann.
Pottamoldin geymir næringu
sem nægir þeim fyrsta kastið, auk
þess sem aukið vaxtarrými veldur
því að sjaldnar þarf að vökva.
Þegar kemur að vökvuninni er
helsta reglan að þar gildir engin
regla önnur en að vökva hvorki
of mikið né of lítið. Plöntur í
mikilli sól geta þornað mjög
hratt. Ræktandinn þarf að fylgjast
með jarðrakanum, td. með því að
athuga með fingri hvort moldin sé
rök í tveggja sentímetra dýpt eða
svo. Einnig gefur þyngd pottsins
til kynna hvernig ástatt er. Plöntur
með þykk og leðurkennd lauf og
stöngla eru líklegar til að þola
meiri þurrk en þær sem hafa þunn
og stór lauf. Blómstrandi plöntur
mega ekki þorna.
Plöntur sem standa í leirpottum
þorna mun hraðar en séu þær í
plastpottum. Ef ekki eru notaðar
skálar undir blómapotta þarf
að hafa þær í pottahlíf til að
auðvelda vökvun. Dökkleitir
pottar og pottahlífar geta tekið
til sín mikinn hita frá beinni sól
og er hætt við að ræturnar drepist
þess vegna. Suðurgluggi er versti
óvinur pottablómanna á sumrin.
Pottaplönturnar þurfa ekki
á áburðargjöf að halda nema
frá vori og fram á haust. Flestir
nota fljótandi pottaplöntuáburð.
Auðvitað skiptir máli hvaða
tegund ræktuð er, en rétt er að
varast of mikla áburðargjöf. Farið
eftir leiðbeiningum á umbúðunum
og notið heldur minna af áburði
en þar er gefið upp. Plöntur í
miklum vexti má vökva með
daufri áburðarblöndu við hverja
vökvun, aðrar þurfa aðeins
næringu í annað eða þriðja hvert
sinn sem vökvað er.
Sumarleyfið
Í sumarfríinu þarf að fá góðan
granna til að vökva plönturnar.
Að öðrum kosti er hægt að koma
þeim fyrir á skuggsælum stað
fjarri beinni sólarbirtu og hafa
hitastigið í lægra lagi. Flestar
plöntur þola vel að hafast við vel
vökvaðar í gluggalausu herbergi
í eina til tvær vikur án þess að
láta á sjá.
Ingólfur Guðnason
GARÐYRKJUSKÓLI LBHÍ REYKJUM
Pottaplöntur að sumri
Í sumarfríinu þarf að fá góðan granna til að vökva plönturnar.
Myndir / Floridana
Kjúklingar af stofni Ranger Gold. Danski kjúklingaframleiðandinn Danpo hefur nú ákveðið að hætta að nota
kjúklingategundina Ross 308 og í staðinn fyrir þá tegund að skipta yfir í tegund sem heitir Ranger Gold. Ástæðan
er mótbyr dýravelferðarsamtaka gegn ræktun á hinni hraðvaxta tegund Ross 308. Samt hefur tegundin Ranger Gold
stærra kolefnisfótspor vegna lengri eldistíma og frjósemin er verri. Þá eru heldur engar sannanir fyrirliggjandi um
að svonefndir „velferðarkjúklingar“ séu heilsubetri í eldi.
Danir leggja nú áherslu
á velferðarkjúklinga
Kjúklingategundin Ross 308 er hraðvaxin og hefur verið vinsæl í eldi vegna
hagkvæmni í framleiðslu.
Hæna og hani af tegundinni Ross
308.
Loftraki í híbýlum er oftast mun
lægri en plönturnar kjósa.
Þegar kemur að vökvun er helsta
reglan að þar gildir engin regla
önnur en að vökva hvorki of mikið
né of lítið.