Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 202026 ÍSLAND ER LAND ÞITT Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason reka ferðaþjónustuna Brúnir Horse í Eyjafjarðarsveit: Horfa með bjartsýni til næsta sumars – Veitingasala og hestasýningar sem njóta vinsælda meðal farþega skemmtiferðaskipa „Reksturinn var kominn á mjög gott skrið hjá okkur og síðastliðið sumar kom vel út og allt benti til þess að þetta sumar yrði enn betra. En það er ekki neitt við því að gera þó áætlanir hafi ekki farið eins og ráð var fyrir gert vegna kórónuveirunnar. Við eins og aðrir í þessari atvinnugrein verð- um að taka því og horfa bjartsýn fram á veginn og vona að allt komist í samt lag með tímanum,“ segja þau Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason á Brúnum í Eyjafjarðarsveit. Þau opnuðu síðsumars árið 2017 ferðaþjónustuna, Brúnir Horse, sem er fjölskyldufyrirtæki sem þau hjón- in standa að. Þau stunda hrossarækt á bæ sínum, bjóða ferðamönnum upp á sýningar á íslenska hestinum, reka veitingahús sem býður upp á heimabakstur og vörur beint frá býli og úti vappa íslenskar landnáms- hænur sem leggja til egg í bakstur- inn. Þá er Einar menntaður mynd- listarmaður og rekur vinnustofu sína einnig heima við. Sýningarsalur er í kjallara veitingastaðarins og við hlið vinnustofunnar, þar sem jafnan að sumarlagi er boðið upp á metnað- arfullar sýningar. Búfræðingur, járnsmiður, myndlistarmaður og kennari Einar hefur frá því á yngri árum haft áhuga fyrir hestum þó svo að engin hefð væri fyrir hesta- mennsku í fjölskyldu hans. Kynni hans af hrossum komu í gegnum vini og þá segist hann hálfur Skagfirðingur sem eflaust eigi sinn þátt í áhuganum. Hann hafði mikla löngun til að gerast bóndi en fór nokkrar krókaleiðir að því markmiði sínu. Lauk reyndar fyrst búfræðiprófi frá Hólum en til að hafa vaðið fyrir neðan sig fór hann einnig í nám í járnsmíði, lauk því og starfaði um árabil við þá iðn. Myndlistin átti þó meira í huga hans en járnsmíðin og varð úr að hann hélt til náms við Myndlista- og handíðaskóla Íslands sem var og hét og lauk þar námi frá graf- íkdeild. Síðar lauk hann að auki námi í uppeldis- og kennslufræði til kennsluréttinda og hefur kennt myndlist við Hrafnagilsskóla frá árinu 2001. Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur og námsstjóri Hugrún fór hefðbundnari leið með stúdentsprófi og síðan hjúkrunar- námi við HA. Hún hefur einkum unnið á gjörgæsludeildum og afl- aði sér menntunar sem gjörgæslu- hjúkrunarfræðingur. Meðfram þeirri vinnu starfaði hún einnig sem skólahjúkrunarfræðingur um tíma. Undanfarin 10 ár hefur hún gegnt starfi fræðslustjóra og nú náms- stjóra við Sjúkrahúsið á Akureyri, en það felur í sér utanumhald og umsjón með öllum nemum sem koma á Sak. Samtvinna ástríðuna í einu pakka Undanfarin ár hafa þau Hugrún og Einar unað glöð við sitt heima á Brúnum og stundað sína vinnu að auki utan bús. Einhvern veginn kviknaði þó sú hugmynd í kolli þeirra að bæta við sig og hefja ferðaþjón- ustu. „Það má segja að í okkar tilviki sé þetta þríþætt, okkar helsta áhuga- mál og ástríða eru hestar og listir og hér hefur ævinlega verið gestkvæmt. Við vildum samtvinna þetta þrennt í einum pakka,“ segir Hugrún. Þau hjónin veltu vöngum yfir hvernig best færi á að samtvinna þessa þætti, laða að sér gesti sem í senn gætu notið lista og eða hestanna. Frambærilegir listamenn Úr varð að reist var 350 fermetra hús á bæjarhlaðinu, að hluta til ofan á gamalli vélaskemmu sem fyrir var. Í kjallaranum hefur Einar hreiðrað um sig með sína vinnu- stofu, þar eru fyrir hendi tæki og tól til að vinna grafíkmyndir og myndlist almennt. Inn af vinnu- stofunni er sýningarsalur og þar er listamönnum boðið að sýna verk sín. „Við höfum verið svo lánsöm að fá til okkar verulega frambæri- lega myndlistarmenn og verðum ekki vör við annað en að þeir hafi ánægju af því að sýna hér. Það hafa allir sem rætt hefur verið við verið meira en tilbúnir að koma. Listamönnum hefur gengið vel og sala verið góð, þannig að allir eru glaðir,“ segir Einar. Veitingasalur fyrir 50 manns Á jarðhæð er veitingasalur sem rúmar um 50 manns í sæti. Stórir gluggar eru til norðurs og vest- urs sem gefa gestum færi á að njóta útsýnis á meðan þeir gera sér veitingar að góðu. Kaldbakur blasir við í norðri og Kerling vestan megin. Hross á beit í haga rétt við bæinn. „Það er auðveldlega hægt að komast í svona núvitundará- stand bara með því að horfa út um gluggana í hvaða veðri sem er,“ segir Hugrún. Risið er tvískipt, öðrum megin hefur verið sett upp koníaks- stofa þar sem útsýni er suður yfir sveitina en í norðurhlutan- um er lítil íbúð sem leigð er út á AirB&B og stendur hún einnig listamönnum hvarvetna úr heim- inum til boða ef áhugi er fyrir hendi. 561 9200 Hugrún Hjörleifsdóttir og Einar Gíslason á Brúnum í Eyjafjarðarsveit reka ferðaþjónustuna Brúnir Horse. Myndir / MÞÞ og úr einkasafni. Veitingasalurinn rúmar um 50 manns í sæti. Veitingastaðurinn er í 350 fermetra húsi, veitingasala er á jarðhæð, vinnustofa og Listaskálinn í kjallaranum og í risi er koníaksstofa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.