Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 48

Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 202048 MATARKRÓKURINN LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR Magnús Örn Sigurjónsson stendur að búrekstrinum í dag á bænum Pétursey 1 og er þar sjötti ættliðurinn sem stundar búskap á jörðinni. Býli: Pétursey 1. Staðsett í sveit: Mýrdalshreppi, Vestur-Skaftafellssýslu. Ábúendur: Magnús Örn Sigur- jóns son og móðir hans, Kristín Magnúsdóttir. Fjölskyldustærð (og gæludýra): Á bænum búa ásamt Magnúsi, afi hans og amma, Eyjólfur Sigurjónsson og Erna Ólafsdóttir. Föðurbróðir, Pétur Eyjólfsson. Foreldrar, Sigurjón Eyjólfsson og Kristín Magnúsdóttir, og yngri bróðir, Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson. Kötturinn Grettir, hundarnir Loppa og Bangsi. Stærð jarðar? 490 hektarar ásamt óskiptu heiðarlandi með öðrum Péturseyjarbæjum. Gerð bús? Kúabú. Fjöldi búfjár og tegundir? Mjólkurkýr og naut. Samtals um 110 nautgripir og fáeinar kindur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Dagurinn byrjar á morgunmjöltum um kl. 6.30 og lýkur um kl. 19.00, þegar ekki er verið í heyskap eða jarðvinnslu. Þess á milli er unnið við ýmis önnur bústörf. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast er að vera í heyskap á góðum sumardegi eða jarðvinnsla á vorin. Leiðinlegast er að gera við flórsköfurnar í fjósinu. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Með svipuðu sniði en með fleiri nautgripum og meiri kornrækt. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Ég hugsa að mikil tækifæri séu í íslenskri kornrækt Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk, smjör, ostur, rjómi og egg. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Nautasteik. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það var þegar nýja kálfa- og kvíguaðstaðan var tekin í notkun. Grænmeti er jafnvel betra grillað Að grilla grænmeti er auðveld leið til að breyta bragðinu af græn- meti á skemmtilegan hátt. Núna er tíminn til að grilla smá græn- meti. Það eldast fljótt og er svo ljúffengt með bara vott af reyk frá grillinu. Í flestum tilvikum getið þið sagt til um hvort grænmeti sé tilbúið bara með því að skoða það. Hér eru nokkur ráð um fullkomið grillað grænmeti. 1. Penslið grænmetið létt með olíu. Grænmetið getur þornað í hit- anum án olíu. Áður en þið setj- ið grænmetið á grillið skulið þið velta eða pensla með olíu. Ekki nota of mikið – það bætir aðeins við óþarfa hitaeining- um. Heldur penslið með olíu bara nægilega mikið svo hún hjálpi til við að kryddið festist við. Passið réttan eldunartíma til þess að koma í veg fyrir að grænmetið brenni. 2. Sumt grænmeti tekur eina mín- útu eða tvær mínútur að elda á meðan annað tekur lengri tíma. Grænmeti eins og kartöflur mun taka lengstan tíma að elda. Með því að elda á of miklum hita of lengi mun grænmetið brenna að utan en haldast hrátt að innan. Til að koma í veg fyrir bruna er grænmeti brún- að á miklum hita og svo fært á kaldari hluta grillsins til að klára matreiðsluna. Þið getið líka foreldað grænmetið og gefið nokkrar mínútur á grill- inu til að fá smá lit að utan – og gott bragð. 3. Notið álbakka, spjót eða grill körfu fyrir litla bita. Kirsuberjatómatar, kúrbítsbitar og sveppir eru frábærir á grill- inu. Til að koma í veg fyrir að minna grænmeti eða ávaxtabitar rúlli eða falli niður um teinana, setjið þá frekar á spjót, á álbakka eða notið grillkörfu. Ef þið eruð ekki með grillkörfu skulið þið brjóta álpappír í tvennt og troða upp kantana til að búa til bakka. Þessi „karfa“ kemur í veg fyrir að maturinn detti í gegn en hann fær samt nóg af grillbragði. 4. Skerið minna grænmeti í smærri bita til að það eldist jafnt. Hvernig þú skerð grænmetið þitt ræður því hversu hratt það eldast. Skerið grænmetið því í smærri bita ef þið viljið að grænmetið eldist hraðar (eða notið spjót). Skerið kringlótt grænmeti eins og lauk eða eggaldin í bita. 5. Prófið að elda í álpakka.Setjið grænmetið í tvöfaldan álpapp- ír. Fellið yfir og klípið kantana saman og búið til pakka. Setjið pakkann á grillið. Lokið grill- inu og eldið þar til grænmetið er orðið mjúkt (um það bil 12 til 15 mínútur, fyrir kartöflur). Þegar þið opnið pakkann skulið þið gæta að gufunni sem getur brennt hendur. Grillað grasker með papriku › 600 g grasker › 2 msk. ólífuolía › 2 tsk. reykt paprikuduft › 2 hvítlauksrif, saxað Setjið grasker í stóra skál. Bætið við olíu, papriku og hvítlauk. Blandið saman. Hitið grill yfir miðlungs háum hita. Eldið grasker í 5 til 7 mínútur á hvorri hlið eða þar til bitarnir eru brúnaðir og mjúkir viðkomu. Berið fram. Ostafylltir sveppir Ostafylltir sveppir er mjög auðvelt að búa til með því að nota aðeins það sem er til í ostadeildinni, ásamt salti og pipar, glútenfrítt og geta jafnvel passað inn í ketó mataræði. › 10 sveppir – Veldu meðalstóra sveppi sem hægt er að borða í 1–2 bitum. Þú getur líka notað portobello-sveppi ef þú vilt það frekar. Sumir nota þá í stað hamborgara. › Rjómaostur – Hægt er að gera rjóma- lagaða fyllingu með sólþurrkuðum tómötum. › Reyktur ostur – Fyrir djarft reykbragð er ný íslensk framleiðsla í boði. › Parmesan ostur – Til að búa til stökka skorpu. › Ristaðar rauðar paprikur – Bætir fallegum lit við. › Laukur og hvítlaukur – Passar vel við sveppi. Til að undirbúa sveppina skuluð þið taka stilka sveppanna af til að búa til holu. Annaðhvort hendirðu stilkunum eða geymir til að nota síðar. Notaðu síðan rakan eldhúspappír til að bursta af óhreinindi. Best er að skola ekki sveppi eða setja þá í vatn, því þeir taka fljótt upp vökva. Blandið fyllinguna – mýkið rjómaost- inn. Blandið ost eftir smekk og rauða papriku, lauk og hvítlauk, ef nota á það. Saltið og piprið. Fyllið sveppina – Fylltu sveppina með ostafyllingu að eigin vali. Grillið á álbakka – Látið standa í tíu mínútur, þar til topparnir eru „puffað- ir“ og gylltir. Sveppirnir ættu að vera dökkir og mjúkir. BBQ-smjör: › 2 msk. olía › 1/2 lítill rauðlaukur, saxaður › 2 hvítlauksrif, saxað › 2 tsk. paprikuduft › 1/2 tsk. cayenne duft › 1 tsk. cuminfræ › 1 tsk. chili duft › 1/2 bolli vatn › 1 1/2 msk. ósaltað smjör, stofuheitt › 1 tsk. Worcestershire sósa › Salt og svartur pipar Hitið olíuna í miðlungs eldri pönnu yfir miklum hita þar til næstum byrjar að rjúka úr. Bætið lauknum við og eldið þar til hann er mjúkur, í tvær til þrjár mínútur. Bætið hvítlauknum við og eldið í 30 sekúndur. Bætið papriku, cayenne, cumin og chili við og eldið í mínútu. Bætið 1/2 bolla af vatni við og eldið þar til blandan þykknar og vatnið minnkar. Látið kólna aðeins. Setjið smjörið í matvinnsluvél, bætið kryddblöndunni og Worcestershire sósunni við og vinnið þar til þetta er slétt. Kryddið með salti og pipar, skafið blönduna í litla skál, breiðið yfir og geymið í kæli í að minnsta kosti 30 mínútur til að smjörið samlagist. Færið í stofuhita áður en borið er fram. Jurtasmjör: › 2 msk. ósaltað smjör, við stofuhita › 1/4 bolli saxaðar ferskar kryddjurtir (basilika, graslaukur eða estragon) › 1 tsk. salt › Nýmalaður svartur pipar Blandið vel saman í matvinnsluvél. Fullkomlega grillaður maísstöngull Hitið grillið yfir miðlungs hita. Dragið ytra hýði niður af maís. Fellið hýði aftur á sinn stað og setjið maís í stóra skál af köldu vatni með einni matskeið af salti í tíu mínútur. Takið úr vatni og hristið umfram vatn af. Setjið kornið á grillið, lokið hlífinni og grillið í 15 til 20 mínútur. Snúið á fimm mínútna fresti, eða þar til kornin eru orðin mjúk þegar stungið er í þau með hníf. Fjarlægið hýðið. Berið fram með BBQ smjöri og/eða jurtasmjöri. Smyrjið yfir kornið meðan það er heitt. Bjarni Gunnar Kristinsson matreiðslumeistari Pétursey 1 Magnús Örn þegar hann útskrifaðist úr búfræði, ásamt yngri bróður sínum og foreldrum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.