Bændablaðið - 16.07.2020, Side 44

Bændablaðið - 16.07.2020, Side 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 202044 Angus holdanaut frá NautÍs fædd 2019 Holdanautakynið Aberdeen Angus er óþarft að kynna enda kjötgæði þess rómuð og kjötnýt- ing mjög góð. Kynið hentar vel þar sem áhersla er lögð á nýtingu beitar og gróffóðurs ásamt góðum móðureiginleikum, mjólkurlagni og léttan burð. Við val á fósturvísum til upp- setningar hérlendis var sérstak- lega horft til nauta sem gefa góða móðureiginleika til uppbyggingar á Angus-holdanautastofni hérlendis. Á árinu 2018 fæddust kálfar undan Li‘s Great Tigre NO74039 og First Boyd fra Li NO74033 en feður þeirra nauta sem fæddust 2019 og hér eru kynntir eru tveir, Hovin Hauk NO74043 og Horgen Erie NO74029. Hovin Hauk Hovin Hauk, f.22. janúar 2012 hjá Espen Krogstad, Tyristrand við Tyrifjarðarvatn í Biskupsruð (Buskerud). Þetta er gott kynbótanaut sem gefur ríflega meðalstóra kálfa með léttan burð, bæði hjá kúm og kvígum, góðan vaxtarhraða, mikinn fallþunga og góða flokkun. Mæðraeiginleikar dætra eru hins vegar undir meðallagi. Horgen Erie Horgen Erie, f. 2. apríl 2009 hjá Gudbrand Johannes Qvale, Auli í Akurshúsum (Akershus). Horgen Erie er alhliða kynbótanaut sem gefur létta burði, bæði hjá kúm og kvígum, góða vaxtargetu og mjög góða flokkun. Mæðraeiginleikar dætra hans, þ.e. gangur burðar og mjólkurlagni, eru mjög miklir. Til samanburðar við tölur um vöxt gripa á Stóra-Ármóti má nefna að Aberdeen Angus gripir á uppeldisstöðinni á Staur í Noregi voru að vaxa um 1.204-1.666 g/ dag við uppgjör í apríl 2020. Í þeim hópi var einn sonur Hovin Hauk NO74043. Nautin sem fæddust á Stóra-Ármóti árið 2018 uxu um 1.304-1.694 g/dag frá fæðingu til og með apríl 2019. Sæðistaka hafin Þegar þetta er skrifað er sæðistaka úr þessum nautum hafin en ekki liggur fyrir hver árangur úr henni verður. Það er þó von allra sem að verkefninu standa að síðar í sumar standi þessi naut kúabændum til boða við sæðingar um land allt. Guðmundur Jóhannesson ábyrgðarmaður í nautgriparækt mundi@rml.is Á FAGLEGUM NÓTUM HAUKUR 19401 - ET (1662742-0013) Fæddur 29. júní 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Ætt: F. Hovin Hauk NO74043 M. Mose av Grani NO102588 Ff. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Mf. First Boyd fra Li NO74033 Fm. Hovin Victoria NO23868 Mm. Kaja av Grani 0794 Fff. Te Mania Yorkshire Y437 AUVTMY437 Mff. Boyd Next Day US15347911 Ffm. Te Mania Lowman Z53 AUTMZ53 Mfm. NO29125 Fmf. Circle A2000 Plus US12798179 Mmf. L. General AUVLYG1730 Fmm. DMM Lady Essence 4e CA40228 Mmm. NO30796 Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með miklar og vel holdfylltar herðar. Bakið breitt og holdfyllt, malir langar og ákaflega breiðar og holdugar. Holdfylling í lærum mikil og góð. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Vottar fyrir slöðri aftan herðar en Haukur er ákaflega langvaxinn og vel gerður gripur. Umsögn: Fæðingarþungi var 49 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Haukur 666 kg og hafði því vaxið um 1.842 g/dag frá fæðingu. Haukur hefur alla tíð sýnt gríðarlega mikla vaxtargetu. VALUR 19402 - ET (1662742-0017) Fæddur 3. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Ætt: F. Hovin Hauk NO74043 M. Mose av Grani NO102588 Ff. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Mf. First Boyd fra Li NO74033 Fm. Hovin Victoria NO23868 Mm. Kaja av Grani 0794 Fff. Te Mania Yorkshire Y437 AUVTMY437 Mff. Boyd Next Day US15347911 Ffm. Te Mania Lowman Z53 AUTMZ53 Mfm. NO29125 Fmf. Circle A2000 Plus US12798179 Mmf. L. General AUVLYG1730 Fmm. DMM Lady Essence 4e CA40228 Mmm. NO30796 Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur með miklar útlögur, bakið breitt og vel holdfyllt. Malirnar breiðar og holdmiklar. Holdfylling í lærum mikil. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Fallegur og jafn- vaxinn gripur með mikla holdfyllingu. Umsögn: Fæðingarþungi var 43 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Valur 562 kg og hafði því vaxið um 1.568 g/dag frá fæðingu. Valur hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu. EIRÍKUR 19403 - ET (1662742-0020) Fæddur 8. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Ætt: F. Horgen Erie NO74029 M. Maiken av Grani NO102576 Ff. Horgen Bror NO55754 Mf. First Boyd fra Li NO74033 Fm. Horgen Soria NO20276 Mm. Kari av Grani NO100428 Fff. LCC Major League A502m CA1182273 Mff. Boyd Next Day US15347911 Ffm. Red Brylor Brandy 11c CA765424 Mfm. NO29125 Fmf. Wedderlie Netmark A281 UK560308 Mmf. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Fmm. Soria av Horgen NO20276 Mmm. NO22184 Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og feikilega útlögumikill með mikla holdfyllingu í baki. Malirnar fremur stuttar en ákaflega breiðar og holdugar. Gríðarmikill og kúptur lærvöðvi. rum. Fótstaða ákaflega bein, sterkleg, rétt og gleið. Jafnvaxinn og sérlega vel gerður gripur. Umsögn: Fæðingarþungi var 46 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Eiríkur 538 kg og hafði því vaxið um 1.509 g/dag frá fæðingu. Eiríkur hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu. MÁTTUR 19404 - ET (1662742-0023) Fæddur 26. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti. Ætt: F. Horgen Erie NO74029 M. Maiken av Grani NO102576 Ff. Horgen Bror NO55754 Mf. First Boyd fra Li NO74033 Fm. Horgen Soria NO20276 Mm. Kari av Grani NO100428 Fff. LCC Major League A502m CA1182273 Mff. Boyd Next Day US15347911 Ffm. Red Brylor Brandy 11c CA765424 Mfm. NO29125 Fmf. Wedderlie Netmark A281 UK560308 Mmf. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Fmm. Soria av Horgen NO20276 Mmm. NO22184 Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur með miklar útlögur, bakið holdmikið og breitt. Malirnar stuttar en breiðar og vel fylltar. Mikil og góð lærahold. Fótstaða sterkleg, rétt og gleið. Mjög vel gerður og fallegur gripur á velli. Umsögn: Fæðingarþungi var 50 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Máttur 494 kg og hafði því vaxið um 1.442 g/dag frá fæðingu. Máttur hefur ætíð sýnt jafngóða og mikla vaxtargetu.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.