Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 202024 ÍSLAND ER LAND ÞITT Kríunes: Sveitahótel við Elliðavatn – Falin náttúruperla í jaðri höfuðborgarsvæðisins Hótel Kríunes er fallegt sveita- hótel og falin náttúruperla við Elliða vatn á Vatnsendabletti í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur. Á Kríunesi eru 26 herbergi, þar á meðal fjórar svítur, fjölskylduherbergi og þrír fundarsalir. Sara Björnsdóttir hótelstjóri segir að fjölskyldan hafi rekið hótelið í 22 ár. „Upphafið að þessu er að pabbi keypti hér land fyrir tæpum 28 árum með litlu íbúðarhúsi. Mamma og pabbi áttu fjögur börn og fljótlega byggðu þau nýtt hús. Gamla húsið var leigt út en það kom upp í því eldur og það brann til kaldra kola. Í framhaldi af því var byggt hús með fjórum herbergjum og var það leigt út sem eins konar bændagisting. Leigan gekk vel og þá var ákveðið að breyta gömlum bílskúr sem áður hafði verið hesthús í fundarsal. Við buðum einnig upp á tjaldsvæði á þessum tíma.“ Gaman að alast hér upp Sara segir að það hafi verið einstakt ævintýri að alast upp við Elliðavatn. „Það kom skólabíll að sækja okkur í skólann og svo vorum við með vatnið og náttúruna allt í kringum okkur og búféð á Vatnsendabýlinu sem var svo gaman að fylgjast með, sérstaklega á vorin í sauðburðinum. Svo komu kríurnar á sumrin og þær koma enn og verpa fyrir utan gluggana á hótelherbergjunum ásamt öðrum fuglategundum.“ Höfðað til Íslendinga „Fram að COVID-19 var yfirdrifið nóg að gera, enda mikið um erlenda ferðamenn, auk þess nóg um að vera vegna fundahalda, ráðstefna og annars konar mannfagnaðar. Við sjáum líka um veitingar og undir venjulegum kringumstæðum er líka boðið upp á mat hér á hverju kvöldi fyrir hótelgesti, en í dag þarf fólk að panta fyrirfram. Þegar COVID-19 faraldurinn kom upp hrundi starfsemin hjá okkur eins og hjá svo mörgum öðrum hót- elum á landinu. Það hefur samt verið okkar gæfa að við höfum alltaf höfð- að mikið til Íslendinga og það hefur haldið okkur gangandi og við erum með fasta kúnnahópa sem koma hingað reglulega. Við erum með tilboð í júlí og ágúst fyrir Íslendinga ef þeir bóka í gegnum okkur og erum við að bjóða yfirburða herbergi á 12.000 krónur og svítu á 15.900 krónur og með því fylgir aðgangur að kajak til að sigla á vatninu, heitum potti og sauna. Reksturinn hefur verið að rétta úr kútnum undanfarið og talsvert um fundi hjá okkur og svo er að rofa mikið til í hót- elgistingunni eftir að landið var opnað fyrir erlenda ferðamenn en við erum enn góður kostur fyrir landsbyggðarfólk sem ætlar að heimsækja höfuðborgarsvæðið. Við bjóðum einnig upp á morgun- verðarmatseðil en höfum til þessa verið með hlaðborð og hér er gróð- urhús og matjurtagarður og ræktum við hluta af okkar grænmeti sjálf og stundum fáum við fisk úr vatninu.“ Opna kaffihús í ágúst Að sögn Söru stendur til að opna kaffihús á Kríunesi snemma í ágúst og verður það opið öllum og með fyrsta flokks kaffi og meðlæti. „Við eigum aðeins eftir að ganga frá nokkrum smáatriðum áður en við getum opnað og það verður gaman að bæta þessari þjónustu við og opna Kríunes fyrir almenningi. Fólk héðan úr hverfinu hefur svo sem komið til okkar og við tekið vel á móti því en við höfum ekki verið með formlega opið kaffihús áður. Okkur langar líka til að auka við starfsemina með því að vera með einhvers konar viðburði eða uppákomur, uppistand eða tónlist um helgar.“ Sveit í borg Björn Ingi segir að Kríunes sé eina hótelið á höfuðborgarsvæðinu sem er í raun hægt að skilgreina sem sveitahótel í borg. „Við erum hluti af Ferðaþjónustu bænda /Hey Iceland og erum ekki við götulóð með götunúm- eri á höfuðborgarsvæðinu. Hótelið stendur á um tveggja hektara lóð sem er að stórum hluta girt af með vatni og skógi. Svæðið er því einstakt fyrir hótel í Reykjavík vegna staðsetningar- innar, kyrrðarinnar, náttúrunnar og útsýnisins. Hér allt í kring eru góðir reið-, hjóla- og göngustígar og mikil saga sem við höfum stundum tekið að okkur að segja frá og hér skammt hjá eru hestaleigur.“ Hann segir að í raun sé hótelið og staðsetning þess enn sem komið er talsvert leyndarmál og ekki margir sem viti af því enda hefur það ekki verið mikið auglýst. Björn Ingi bætir við að fljótlega verði sett upp hleðslustöð fyrir rafbíla í hlaðinu á Kríunesi og ekkert því til fyrirstöðu að taka á móti slíkum ökutækjum. Morð við Elliðavatn – Morðgátukvöld Í haust ætlar Sara að fara af stað með það sem hún kallar Murder mistery kvöld en þá kemur fólk saman eitt kvöld, fær mat og gistir eina nótt og tekur þátt í leik sem felst í að leysa morðgátu. „Ég fékk sjálf mikinn áhuga á svona kvöldum og ákvað að slá til og prófa þetta fyrir vini mína og ætla að prófa þetta fyrir gesti í haust.“ /VH Hótel Kríunes við Elliðavatn hefur vaxið og dafnað síðustu ár. Myndir / úr einkasafni Hluti Kríunesfjölskyldunnar. Sara Björnsdóttir hótelstjóri, Björn Ingi Stefánsson eigandi ásamt ömmunni, Helgu Björnsdóttur. Mynd / VH Veislusalurinn er rúmgóður og útsýnið glæsilegt. Til stendur að opna kaffihús á Kríunesi snemma í ágúst. Herbergin eru með útsýni út á Elliðavatn. Sara í gróðurhúsinu þar sem er ræktað grænmeti fyrir hótelið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.