Bændablaðið - 16.07.2020, Blaðsíða 35
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 2020 35
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ALTERNATORAR í flestar
gerðir dráttarvéla
Bændablaðið
Auglýsingar 56-30-300
Laxaaugað mun vekja verðskuldaða athygli
Næsta sumar bætist í flóru
aðdráttar afla fyrir ferðamenn í
Harðangursfirði í Noregi þegar
sýningarmiðstöðin Laxaaugað
verður opnuð úti á miðju hafi og
óhætt er að segja að byggingin
verður nýstárleg í alla staði.
Markmið miðstöðvarinnar er að
auka þekkingu á fiskeldi og mat-
vælaframleiðslu í sjó.
Fyrirtækið Eide Fjordbruk á veg
og vanda að verkefninu og hefur
nú fengið öll tilskilin leyfi til fram-
kvæmda. Hjá Eide Fjordbruk er
framleiddur lax og regnbogasilungur
í sjóeldi og á hverju ári selur fyr-
irtækið um þrjár milljónir laxa á
markaði um allan heim, sem verða
að 60 milljónum máltíða.
Í Laxaauganu verður áhersla lögð
á fiskeldi og lífsferil laxa, hvernig
það er að starfa við sjó- og fiskeldi.
Í miðstöðinni verður einnig fjallað
um hvaða efnahagslegu áhrif þessi
starfsgrein skilur eftir sig bæði svæð-
isbundið og á landsvísu. Þá verður
einnig komið inn á umhverfisfót-
spor, lús, flótta, losun og villtan lax
ásamt fleiru. Erfiðum spurningum
verður svarað og fyrirtækið hyggst
verða opið um þær áskoranir sem
þessi atvinnugrein tekst á við. Gestir
sem heimsækja sýningarmiðstöðina
munu verða fluttir út í Laxaaugað
með rafbát og reiknað er með að bara
sú upplifun verði góð upphitun áður
en komið er út í sjálfa miðstöðina úti
á hafi. /ehg
Í sýningarmiðstöðinni Laxaauganu verður áhersla lögð á fiskeldi og lífsferil
laxa, hvernig það er að starfa við sjó- og fiskeldi. Myndir / Eide Fjordbruk
Norðmenn reikna með að heimsókn í Laxaaugað verði mikil upplifun fyrir gesti.
Arla Foods selur 17 milljónir dósa af skyri á ári:
Umhverfisvænni umbúðir hjá Arla Foods
Á hverju ári kaupa neytendur í
Evrópu 17 milljónir dósa af skyri
frá Arla Foods og nú kynnir fyrir-
tækið til leiks nýjar umbúðir sem
innihalda 40 prósent minna af plasti
en forverinn, eða um 270 tonn af
plasti á ári.
Þar með minnkar CO2-losun vegna
nýju umbúðanna um 30 prósent sem
jafngildir ársminnkun um 440 tonn af
CO2. Er þetta liður fyrirtækisins í að
framleiða sjálfbærustu mjólkurvörur
í heiminum.
Skyrumbúðir taka breytingum
Á síðasta ári fór fyrirtækið yfir í
sjálfbærari efni í umbúðum fyrir yfir
einn milljarð af vörum sem seldust í
Evrópu. Til að auka enn frekar hróður
fyrirtækisins fara nú skyrumbúðirnar
einnig inn í umhverfisvænan flokk
og verða fyrst um sinn seldar á fimm
kjarnamörkuðum fyrirtækisins, í
Danmörku, Þýskalandi, Svíþjóð,
Hollandi og í Bretlandi.
Minna plast
Minnkun á CO2 í umbúðunum fæst
mestmegnis með minni notkun
á plasti en hver dós inniheldur 16
grömm minna af plasti en forverinn.
Dósin ásamt lokinu er búin til úr 100
prósent endurvinnanlegum efnum.
Nýju öskjurnar eru vottaðar og unnar
úr vörum frá sjálfbærri skógarnotkun.
Markmið Arla er að umbúðir fyr-
irtækisins skuli verða CO2-hlutlausar
fyrir árið 2050 og því skipta þeir um
umbúðir á hverri vörunni á fætur
annarri.
Frá árinu 2014 hefur mjólk
frá fyrirtækinu farið yfir í grænni
umbúðir og þar er mjólkurvaran
A38 engin undantekning. Umbúðir
A38 sem unnar eru úr náttúruleg-
um efnum sparar CO2 um 22 pró-
sent miðað við fyrri umbúðir. A38
er ein vinsælasta mjólkurvaran í
Danmörku en árlega seljast um
16 milljónir lítra af vörunni. Nýju
umbúðir A38 eru búnar til úr brúnum
pappír sem unninn er úr náttúruleg-
um efnum frá trjám og plöntum án
nokkurra bleikingarferla.
/ehg – arla.dk
Umbúðir undan danska skyrinu frá
Arla Foods.
A38 mjólkurvörurnar. Myndir / arla.dk