Bændablaðið - 16.07.2020, Page 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 16. júlí 202044
Angus holdanaut frá NautÍs fædd 2019
Holdanautakynið Aberdeen
Angus er óþarft að kynna enda
kjötgæði þess rómuð og kjötnýt-
ing mjög góð. Kynið hentar vel
þar sem áhersla er lögð á nýtingu
beitar og gróffóðurs ásamt góðum
móðureiginleikum, mjólkurlagni
og léttan burð.
Við val á fósturvísum til upp-
setningar hérlendis var sérstak-
lega horft til nauta sem gefa góða
móðureiginleika til uppbyggingar á
Angus-holdanautastofni hérlendis.
Á árinu 2018 fæddust kálfar undan
Li‘s Great Tigre NO74039 og First
Boyd fra Li NO74033 en feður
þeirra nauta sem fæddust 2019 og
hér eru kynntir eru tveir, Hovin Hauk
NO74043 og Horgen Erie NO74029.
Hovin Hauk
Hovin Hauk, f.22. janúar 2012
hjá Espen Krogstad, Tyristrand
við Tyrifjarðarvatn í Biskupsruð
(Buskerud). Þetta er gott kynbótanaut
sem gefur ríflega meðalstóra kálfa
með léttan burð, bæði hjá kúm
og kvígum, góðan vaxtarhraða,
mikinn fallþunga og góða flokkun.
Mæðraeiginleikar dætra eru hins
vegar undir meðallagi.
Horgen Erie
Horgen Erie, f. 2. apríl 2009 hjá
Gudbrand Johannes Qvale, Auli í
Akurshúsum (Akershus). Horgen
Erie er alhliða kynbótanaut sem
gefur létta burði, bæði hjá kúm og
kvígum, góða vaxtargetu og mjög
góða flokkun. Mæðraeiginleikar
dætra hans, þ.e. gangur burðar og
mjólkurlagni, eru mjög miklir.
Til samanburðar við tölur um
vöxt gripa á Stóra-Ármóti má
nefna að Aberdeen Angus gripir á
uppeldisstöðinni á Staur í Noregi
voru að vaxa um 1.204-1.666 g/
dag við uppgjör í apríl 2020. Í þeim
hópi var einn sonur Hovin Hauk
NO74043. Nautin sem fæddust á
Stóra-Ármóti árið 2018 uxu um
1.304-1.694 g/dag frá fæðingu til
og með apríl 2019.
Sæðistaka hafin
Þegar þetta er skrifað er sæðistaka
úr þessum nautum hafin en ekki
liggur fyrir hver árangur úr henni
verður. Það er þó von allra sem að
verkefninu standa að síðar í sumar
standi þessi naut kúabændum til
boða við sæðingar um land allt.
Guðmundur Jóhannesson
ábyrgðarmaður í
nautgriparækt
mundi@rml.is
Á FAGLEGUM NÓTUM
HAUKUR 19401 - ET (1662742-0013)
Fæddur 29. júní 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Hovin Hauk NO74043 M. Mose av Grani NO102588
Ff. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Mf. First Boyd fra Li NO74033
Fm. Hovin Victoria NO23868 Mm. Kaja av Grani 0794
Fff. Te Mania Yorkshire Y437 AUVTMY437 Mff. Boyd Next Day US15347911
Ffm. Te Mania Lowman Z53 AUTMZ53 Mfm. NO29125
Fmf. Circle A2000 Plus US12798179 Mmf. L. General AUVLYG1730
Fmm. DMM Lady Essence 4e CA40228 Mmm. NO30796
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og útlögumikill með miklar og vel holdfylltar herðar.
Bakið breitt og holdfyllt, malir langar og ákaflega breiðar og holdugar. Holdfylling í lærum mikil og góð. Fótstaða
bein, sterkleg, rétt og gleið. Vottar fyrir slöðri aftan herðar en Haukur er ákaflega langvaxinn og vel gerður gripur.
Umsögn: Fæðingarþungi var 49 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Haukur 666 kg og hafði því vaxið um 1.842 g/dag
frá fæðingu. Haukur hefur alla tíð sýnt gríðarlega mikla vaxtargetu.
VALUR 19402 - ET (1662742-0017)
Fæddur 3. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Hovin Hauk NO74043 M. Mose av Grani NO102588
Ff. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1 Mf. First Boyd fra Li NO74033
Fm. Hovin Victoria NO23868 Mm. Kaja av Grani 0794
Fff. Te Mania Yorkshire Y437 AUVTMY437 Mff. Boyd Next Day US15347911
Ffm. Te Mania Lowman Z53 AUTMZ53 Mfm. NO29125
Fmf. Circle A2000 Plus US12798179 Mmf. L. General AUVLYG1730
Fmm. DMM Lady Essence 4e CA40228 Mmm. NO30796
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur með miklar útlögur, bakið breitt og vel holdfyllt.
Malirnar breiðar og holdmiklar. Holdfylling í lærum mikil. Fótstaða bein, sterkleg, rétt og gleið. Fallegur og jafn-
vaxinn gripur með mikla holdfyllingu.
Umsögn: Fæðingarþungi var 43 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Valur 562 kg og hafði því vaxið um 1.568 g/dag frá
fæðingu. Valur hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.
EIRÍKUR 19403 - ET (1662742-0020)
Fæddur 8. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Horgen Erie NO74029 M. Maiken av Grani NO102576
Ff. Horgen Bror NO55754 Mf. First Boyd fra Li NO74033
Fm. Horgen Soria NO20276 Mm. Kari av Grani NO100428
Fff. LCC Major League A502m CA1182273 Mff. Boyd Next Day US15347911
Ffm. Red Brylor Brandy 11c CA765424 Mfm. NO29125
Fmf. Wedderlie Netmark A281 UK560308 Mmf. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1
Fmm. Soria av Horgen NO20276 Mmm. NO22184
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur og feikilega útlögumikill með mikla holdfyllingu
í baki. Malirnar fremur stuttar en ákaflega breiðar og holdugar. Gríðarmikill og kúptur lærvöðvi. rum. Fótstaða
ákaflega bein, sterkleg, rétt og gleið. Jafnvaxinn og sérlega vel gerður gripur.
Umsögn: Fæðingarþungi var 46 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Eiríkur 538 kg og hafði því vaxið um 1.509 g/dag
frá fæðingu. Eiríkur hefur ávallt sýnt mikla og góða vaxtargetu.
MÁTTUR 19404 - ET (1662742-0023)
Fæddur 26. júlí 2019 á Nautgriparæktarmiðstöð Íslands á Stóra-Ármóti.
Ætt:
F. Horgen Erie NO74029 M. Maiken av Grani NO102576
Ff. Horgen Bror NO55754 Mf. First Boyd fra Li NO74033
Fm. Horgen Soria NO20276 Mm. Kari av Grani NO100428
Fff. LCC Major League A502m CA1182273 Mff. Boyd Next Day US15347911
Ffm. Red Brylor Brandy 11c CA765424 Mfm. NO29125
Fmf. Wedderlie Netmark A281 UK560308 Mmf. Te Mania Berkley B1 AUVMTB1
Fmm. Soria av Horgen NO20276 Mmm. NO22184
Lýsing: Af Aberdeen Angus kyni. Svartur, kollóttur. Boldjúpur með miklar útlögur, bakið holdmikið og breitt.
Malirnar stuttar en breiðar og vel fylltar. Mikil og góð lærahold. Fótstaða sterkleg, rétt og gleið. Mjög vel gerður
og fallegur gripur á velli.
Umsögn: Fæðingarþungi var 50 kg. Við vigtun 29. maí 2020 vó Máttur 494 kg og hafði því vaxið um 1.442 g/dag
frá fæðingu. Máttur hefur ætíð sýnt jafngóða og mikla vaxtargetu.