Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 42
LÖGFRÆÐINGUR OG
PERSÓNUVERNDARFULLTRÚI
gardabaer.is
Garðabær leitar að öflugum aðila í starf lögfræðings og persónuverndarfulltrúa. Viðkomandi verður m.a.
tengiliður bæjarins við innri og ytri viðskiptavini vegna persónuverndarmála, sinnir lögfræðilegri ráðgjöf
og vinnur að álitsgerðum fyrir öll svið bæjarins.
Helstu verkefni:
• Margvíslega lögfræðileg málefni s.s. á sviði persónuverndar, útboðsréttar, vinnuréttar, stjórnsýsluréttar,
barnaverndar og félagsþjónustu
• Vinna að áframhaldandi innleiðingu persónuverndarlöggjafar
• Eftirlit með framkvæmd löggjafar um persónuvernd, viðeigandi innri reglum og stefnu bæjarins
• Samskipti við Persónuvernd og samskipti við íbúa og starfsfólk vegna persónuverndarmála
• Kynningar og fræðsla fyrir starfsmenn og íbúa
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í lögfræði / Mag.jur. eða ML í lögfræði
• Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi
• Þekking á lögum og lagaframkvæmd á sviði persónuverndar
• Haldbær reynsla og þekking á opinberri stjórnsýslu
• Góð kunnátta í íslensku og ensku
• Frumkvæði og öguð vinnubrögð
• Góð samskiptahæfni og mikil þjónustulund
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og góð greiningarhæfni
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2020.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðjón Erling Friðriksson, bæjarritari, í síma 525 8500
eða á netfangið gudjon@gardabaer.is.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starf lögfræðings og persónuverndarfulltrúa.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nánari upplýsingar má finna á
ráðningarvef Garðabæjar https://starf.gardabaer.is
Þorlákshöfn hafnsögumaður
Þorlákshafnarhöfn óskar eftir að ráða hafnsögumann við
höfnina í Þorlákshöfn.
Starfið felur í sér leiðsögu skipa um hafnarsvæði skv. lögum
um leiðsögu skipa nr. 34/1993.
Hafnsögumaður / hafnarvörður annast almenna starfsemi
hafnarinnar og þjónustu við viðskiptavini hennar. Hann
vinnur að vigtun sjávarafla og skráningu upplýsinga um
löndun ásamt skráningu og skýrslugerðum sem við kemur
allri umferð um hafnarsvæði og hafsögu.
Öryggiseftirlit á hafnarsvæðum, öryggismál og mengunar-
varnir falla einnig undir starfssvið hafnsögumanns ásamt
ýmsum öðrum verkefnum, s.s. að raða skipum í höfn, binda
skip við bryggju, afgreiða vatn og rafmagn til skipa og sinna
daglegu viðhaldi hafna og búnaðar í samstarfi við aðra
starfsmenn Þorlákshafnar.
Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.
Menntun og reynsla:
• Skipstjórnarpróf
• Almenn ökuréttindi
• Löggilding vigtarmanns er kostur
• Hafnsöguréttindi kostur
• Réttindi til hafnarverndar kostur
• Vélstjórnarpróf er kostur
Hæfni:
• Nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð almenn tölvukunnátta
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Skipulagshæfileikar og nákvæmni við skráningu gagna
• Ríkuleg þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
• Áhersla er lögð á vandvirkni og nákvæmni í öllum störfum
• Dugnaður, vinnusemi og sveigjanleiki
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september 2020.
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitar-
félaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hjörtur Jónsson,
hafnarstjóri í síma 480-3602 eða í gegnum tölvupóst á
hjortur@olfus.is. Umsóknir skulu sendar til sviðsstjóra
fjármála- og stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins Ölfuss á net-
fangið sandradis@olfus.is. Með umsókn skal fylgja ferilskrá
og afrit af viðeigandi réttindum. Við hvetjum konur jafnt sem
karla til að sækja um starfið.
Sveitarfélagið Ölfus er framsækið sveitarfélag sem leggur
ríka áhersla á góðan starfsanda á vinnustað. Þá er leitast
við að auka möguleika starfsfólks til að samræma vinnu og
fjölskylduábyrgð eins og kostur er.
Hlutfall: Samkomulag Tegund: Iðnaðarmaður
Aflvélar á Selfossi óska eftir reynsluboltum í viðgerðum og viðhaldi.
Umsóknarfrestur til 25. ágúst
Vanur maður óskast
Aðstoðarmaður bakara óskast.
Umsóknir sendist á bjornsbakari@bjornsbakari.is
merkt BAKARI.
Sími: 561 1433
Ert þú
raforku-
verkfræðingur
Við hjá Norconsult leitum að
rafmagnsverkfræðingum í
öfluga raforkuteymið okkar.
Helstu kostir:
• Þekking á sviði háspennukerfa, dreifikerfa og liðaverndar
• Reynsla af hönnun tengivirkja eða annarra flutningsmannvirkja
• Reynsla af kerfisathugunum og líkanagerð
• Reynsla af forritun og gagnagrunnum
• Áhugi á að tileinka sér nýja þekkingu, miðla henni og leysa
krefjandi verkefni víða um heim
• Gott vald á einu Norðurlandamáli er kostur
Norconsult ehf er í eigu norska ráðgjafafyrirtækisins Norconsult AS.
Hjá Norconsult starfa um 4.800 starfsmenn, þar af 400 á orkusviði.
Norconsult AS er með starfstöðvar víða um heim, frá Kirkenes í Norður-
Noregi til Auckland á Nýja Sjálandi. Fyrirtækið vinnur að úrlausn spennandi
verkefna á öllum spennustigum innanlands og erlendis í samvinnu við
viðskiptavini og félög innan samsteypunnar. Í boði eru fjölbreytt og
áhugaverð verkefni sem spanna allt frá hönnun raforkuflutningsmannvirkja
til hugbúnaðarþróunar.
Norconsult ehf á Íslandi er rótgróið fyrirtæki þar sem starfsmenn vinna
saman í sterkri liðsheild og því er þetta einstakt tækifæri fyrir réttan aðila
til að starfa hjá fyrirtæki á alþjóðlegum vettvangi.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Páll Hauksson: bjarni.hauksson@norconsult.com
eða í síma + 45 25 40 74 28.
Umsóknir sendist á Birnu Eggertsdóttur: birna.eggertsdottir@norconsult.com
Tekið verður á móti umsóknum til 14. september nk.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
6 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 2 . ÁG Ú S T 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R