Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 2
Vegna aðgerða
stjórnvalda þá
afbókuðu allir.
Jóhann Pétur
Guðjónsson,
eigandi GB ferða
Stjórnvöld stefna að því
að setja ný heildarlög um
íslenska, alþjóðlega skipa-
skrá sem inniheldur ákvæði
um skattlagningu kaup-
skipa.
Veður
Hæg norðan og norðvestlæg átt
í dag og yfirleitt léttskýjað, en
skýjað við NA-ströndina. Hiti 10
til 18 stig að deginum, hlýjast á
Suðurlandi. SJÁ SÍÐU 38
Eldur í Árskógum
Eldur kom upp í íbúð sem ætluð er eldri borgurum við Árskóga í Breiðholti seinnipartinn í gær. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá gasgrilli á
svölum íbúðarinnar og síðan hafi eldtungurnar borist inn í íbúðina. Einn var f luttur lítið slasaður á slysadeild. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Til sölu mjög gott og snyrtilegt atvinnuhúsnæði.
Ásett verð 34,9 millj.
Húsnæðið skiptist sem er 100,8 fm skiptist í grunnflöt og milliloft. Góð inn-
keyrsluhurð 4 metrar á breidd x 4,2 metrar á hæð, auk inngönguhurðar.
Fremra rými er með bílalyftu, loftpressu, slönguhjóli fyrir loft og fyrir vatn,
hlaupaketti með talíu. Tvö önnur herbergi fyrir innan fremra rými. Góður
stigi upp á loft. Alrými þar sem er lítil eldhúsinnrétting, eldavél, setustofa.
Inn af setustofu er salerni og vaskur, gert ráð fyrir sturtu.
Hlíðasmári10 201 Kópavogur sími: 414-6600
Reynir Erlingsson lögg.fasteignasali nyttheimili@nyttheimili.is
Sautjándajúnítorg 3, Garðabæ bjalla 207
Lúxus íbúð á frábærum stað í Sjálandshverfi Fyrir 50 ára og eldri.
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 26.október KL. 15:00-15:30
Afar vönduð 128,5 fm 3 herbergja íbúð í einu eftirsóttasta íbúðasvæði
höfuðborgarsvæðisins. Sérbílastæði bílageymslu Glæsilegar sérsmíðaðar
innréttingar úr eik. Á gólfum er eikarplankaparket og flísar.Góðar
flísalagðar sólarsvalir.
Nánari upplýsingar veita Helgi og Sveinn sölufulltrúar í
síma 895-1999 eða 899 8546 helgi@nyttheimili.is
/sveinn@nyttheimili.is.
Reynir Erlingsson
lögg fasteignasali
gsm:820-2145
Opið
hús
Hlíðasmári10 201 Kópavogur sími: 414-6600
Reynir Erlingsson lögg.fasteignasali nyttheimili@nyttheimili.is
Sautjándajúnítorg 3, Garðabæ bjalla 207
Lúxus íbúð á frábærum stað í Sjálandshverfi Fyrir 50 ára og eldri.
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 26.október KL. 15:00-15:30
Afar vönduð 128,5 fm 3 herbergja íbúð í einu eftirsóttasta íbúðasvæði
höfuðborgarsvæðisins. Sérbílastæði bílageymslu Glæsilegar sérsmíðaðar
innréttingar úr eik. Á gólfum er eikarplankaparket og flísar.Góðar
flísalagðar sólarsvalir.
Nánari upplýsingar veita Helgi og Sveinn sölufulltrúar í
síma 895-1999 eða 899 8546 helgi@nyttheimili.is
/sveinn@nyttheimili.is.
Reynir Erlingsson
lögg fasteignasali
gsm:820-2145
Opið
hús
Ásbúð Garðabær
Vorum að fá til sölu glæsilegt 360 fm einbýlishús á
skjólstæðum stað í Garðabæ. Eignin er mikið endurnýjuð á
vandaðan hátt, sérsmíðaðar innréttingar og vönduð tæki.
Sólskáli og fallegur garður til suðurs.
Ekki missa af þessari, hafðu samband!
Reynir Erlingsson
Löggiltur fasteignasali
S: 820 - 2145
Guðjón Guðmundsson
Aðstoðarmaður fasteignasala
Viðskiptafræðingur
S: 899 - 2694
Allar nánari upplýsingar veitir:
Gyða Gerðarsdóttir,
lögg. fasteignasali & leigumiðlari
í s. 695-1095.
gyda@nyttheimili.is
Lónsbraut 6
COVID-19 „Þar sem f lestir eru að
ferðast innanlands þetta sumarið
þá fellur þetta vel inn í slík ferða-
lög,“ segir Jóhann Pétur Guðjóns-
son, annar eigandi GB ferða, og vísar
til breyttra ferðavenja Íslendinga í
kjölfar kórónaveirufaraldursins.
Hann tók upp á því í sumar, í
samstarfi við franska skipafélagið
Ponant, að bjóða upp á siglingu í
kringum Ísland á lúxussnekkjunni
Le Bellot. Hann segir siglingarnar
hafa vakið mikla athygli og það
sama má segja um snekkjuna sjálfa,
sem gripið hefur augu fólks víða um
land.
„Fólki finnst spennandi að sigla
í kringum landið og fá gjörólíkt
sjónarhorn á landið. Þú siglir á milli
ólíkra áfangastaða í hafinu og það
er magnað að fylgjast með því hvað
dýralífið er fjölbreytt frá sjó,“ segir
Jóhann. „Svo má heldur ekki gleyma
því að yfirferðin er miklu hraðari á
skipi heldur en með bíl og það þarf
enginn að sitja við stýrið. Skipið fer
á milli staða á meðan þú ert í kvöld-
verði og þegar þú sefur,“ bætir hann
við.
Snekkjan tekur 184 farþega og
112 áhafnarmeðlimi og er ferðamát-
anum lýst sem fimm stjörnu hóteli.
Vikan kostar um 4.000 evrur, sem á
gengi dagsins í dag er um 650 þús-
und íslenskar krónur. Aðspurður
hvort margir Íslendingar hafi bókað
ferð með snekkjunni og leyfi sér
slíkan lúxus, segir Jóhann að ágæt-
lega hafi gengið að selja siglingarnar
til Íslendinga.
„Það þarf alltaf að vera samhengi
milli verðs og gæða. Við teljum
þessar siglingar uppfylla þau skil-
yrði. Þetta er enginn „mass market“
vara og verður það ekki, en mark-
hópurinn er vissulega til staðar,“
segir Jóhann og bætir við að í verð-
inu felist allur matur, vín og ýmiss
konar útbúnaður.
Frá því að reglum um skimun
á landamærum var breytt síðast-
liðinn miðvikudag hafa verið uppi
háværar raddir um áhrif breyting-
anna á ferðaþjónustu og efnahag
hér á landi. Jóhann segir ákvörðun
stjórnvalda um val ferðamanna um
tvöfalda skimun með fimm daga
sóttkví á milli, eða tveggja vikna
sóttkví við komuna til landsins,
hafa gríðarleg áhrif á ferðir Le Bel-
lot og áætlanir franska skipafélags-
ins.
„Já, því miður hefur hún haft afar
slæm áhrif. Það voru 70 Frakkar á
leið til landsins um síðustu helgi,
en vegna aðgerða stjórnvalda þá
af bókuðu allir. Skipið átti að sigla
út á miðvikudag í vikusiglingu, en
sú ferð var aldrei farin. Framhaldið
er í uppnámi,“ segir Jóhann.
birnadrofn@frettabladid.is
Íslendingar opnari
fyrir nýjum ferðamáta
Íslendingar hafa margir hverjir ferðast innanlands í sumar og eru opnir fyrir
mörg hundruð þúsunda króna siglingu á lúxussnekkju. Eigandi GB ferða seg
ir nýjar reglur um skimun við landamærin hafa mikil áhrif á ferðaþjónustu.
Vikuferð í kringum Ísland á Le Bellot kostar vel yfir hálfa milljón króna en
ágætlega gengur að selja Íslendingum ferðirnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FLUTNINGAR Stjórnvöld stefna
að því að fjölga skipum sem sigla
undir íslenskum fána, með því að
veita kaupskipaútgerðum opin-
bera aðstoð. Áform um slíka laga-
setningu eru nú til kynningar í sam-
ráðsgátt stjórnvalda.
Þar segir að flestar siglingaþjóðir
í Evrópu reki alþjóðlegar skipaskrár
og veiti ýmsar skattaívilnanir, í því
skyni að halda skipum í eigu ríkis-
borgara sinna á skrá. Öll kaupskip
íslenskra aðila sigla undir erlendum
fánum, sem þýðir að launatekjur
áhafna eru skattlagðar þar.
Nú eru í gildi lög um íslenska,
alþjóðlega skipaskrá sem sett
voru 2007 og ætlað var að stuðla
að skráningu kaupskipa á Íslandi.
Samhliða voru sett lög um skatt-
lagningu kaupskipa sem síðan hafa
verið felld úr gildi þar sem þau upp-
fylltu ekki kröfur EES-samningsins.
Stefna stjórnvöld nú að því að
setja ný heildarlög um íslenska,
alþjóðlega skipaskrá sem innihéldi
ákvæði um skattlagningu kaup-
skipa. – sar
Aðstoða til að
fleri sigli undir
íslenskum fána
Dettifoss, nýjasta skip Eimskips,
siglir undir færeyskum fána.
M E N N I N G F é l a g í s l e n s k r a
bókaútgefenda auglýsir eftir fólki
til að sitja í dómnefnd Íslensku
bókmenntaverðlaunanna. Bryndís
Loftsdóttir, formaður félagsins,
segir að þetta sé tímabært. „Okkur
fannst kominn tími á rödd hins
almenna lesanda,“ segir Bryndís.
Greidd eru 125 þúsund krónur
fyrir nefndarsetuna auk þess
sem nefndarmenn fá bækur í
sínum flokki til eignar. „Þetta eru
ekki há laun en ég held að mesti
ávinningurinn sé sá fróðleikur og
þekking sem fólk af lar sér,“ segir
Bryndís.
Opnað var fyrir skráningar í
vikunni á Face book-síðu félagsins
og segir Bryndís að viðtökurnar
hafi farið fram úr hennar björt-
ustu vonum. „Það stefnir í að það
verði mun meiri hausverkur að
velja einstaklinga í dómnefndir
heldur en að velja hvaða bækur og
höfundar hljóta verðlaunin,“ segir
Bryndís. – bþ
Laun fyrir
lestur bóka
2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð