Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 70
Með gjafabréfi á gjofsemgefur.is geturðu styrkt bágstadda fjölskyldu um
til dæmis geit, hænu, brunn, matjurtagarð, menntun eða aðrar nauðsynjar.
Gefðu skemmtilegar gjafir til verkefna heima og erlendis.
GEFÐU GJÖF SEM GEFUR
www.gjofsemgefur.is
GEFÐU
GEIT
P
ip
a
r\TB
W
A
• S
ÍA
Hjálparstarf kirkjunnar sendi í maí
síðastliðnum 31,6 milljón króna fjárframlag
til mannúðaraðstoðar við stríðshrjáða
Sýrlendinga og Íraka. „Í þessum heimshluta
er þörfin fyrir mannúðaraðstoð gífurleg.
Mikil neyð almennings er viðvarandi meðan
ekki tekst að leysa ágreiningsmál sem valda
stríðsátökum,“ segir Bjarni Gíslason, fram-
kvæmdastjóri Hjálparstarfsins en fjár-
framlagið frá Íslandi var svar við neyðar-
beiðni frá Alþjóðlegu hjálparstarfi kirkna,
ACT Alliance.
Verkefnin sem um ræðir eru unnin á vegum
Lútherska heimssambandsins í þágu fólks
sem flúið hefur heimkynni sín vegna átaka.
Að meðtöldum styrk frá utanríkisráðu-
neytinu var rúmlega tuttugu og ein milljón
króna send til að aðstoða fólk vegna
átakanna í Sýrlandi en þau hafa staðið yfir
hátt í áratug. Áætlað er að tæplega tólf
milljónir manna þurfi á aðstoð að halda en
þar af eru rúmlega sex milljónir íbúa á
vergangi innan Sýrlands. Að sögn Bjarna
eru um fimm milljónir flóttamanna frá
Sýrlandi aðstoðarþurfi í nágrannalönd-
unum Tyrklandi, Líbanon og Jórdaníu.
„Langflestir lifa undir fátæktarmörkum og
eiga í erfiðleikum með að mæta brýnustu
þörfum fyrir mat og skjól. Það er mikil þörf
fyrir menntun, starfsþjálfun og úrræði til
að auka tekjumöguleika fjölskyldna,“ segir
hann. Verkefni Lútherska heims-
sambandsins eru bæði í Sýrlandi og
Jórdaníu og ná samtals til rúmlega 2.300
einstaklinga í eitt ár.
Í grannríkinu Írak býr fólk við mikinn skort
vegna ófriðarástands. Þangað sendi Hjálp-
arstarf kirkjunnar, með styrk frá utan-
ríkisráðuneytinu, rúmlega 10,5 milljóna
króna fjárframlag til mannúðaraðstoðar
Lútherska heimssambandsins við fleiri en
22.000 einstaklinga í eitt ár. „Við erum að
aðstoða fólk sem er á vergangi vegna átaka
en líka fólk sem hefur snúið heim aftur og
þarf stuðning til að koma undir sig fótunum
á ný. „Verkefnið snýst meðal annars um að
hjálpa til við endurbætur á húsnæði, gera
við brunna, kamra og aðra hreinlætis-
aðstöðu. Einnig felst í verkefninu fræðsla
um mikilvægi hreinlætis til að koma í veg
fyrir sjúkdóma og um mannréttindi kvenna
og stúlkna til að koma í veg fyrir kynbundið
ofbeldi. Þá er unnið að því að auka möguleika
fólks til að afla sér tekna með því að bjóða
upp á starfstengd námskeið,“ segir Bjarni.
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar Hjálpar-
liðum og öðrum styrktaraðilum kærlega
fyrir stuðninginn við starfið!
Mannúðaraðstoð við stríðshrjáða Íraka og Sýrlendinga
sem búa við mikla fátækt
Sýrlendingarnir sem aðstoðin nær til hafast við í flóttamannabúðum í grannríkjum Sýrlands. Myndin er tekin í Jórdaníu
og sýnir hjálparstarfsmann Alþjóðlegs hjálparstarfs kirkna ACT Alliance fylgja stúlku á heilsugæslustöð samtakanna.
Mynd: Paul Jeffrey/ACT Alliance
10 – Margt smátt ...