Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 10
verðlækkun
25%
Vörurnar frá BM Vallá eru sérhannaðar
fyrir íslenskar aðstæður.
Límblöndur og þunnhúðir henta vel á alla múraða og steypta fleti til verndunar,
holufyllingar, steiningar og jöfnunar. Þær eru nú á 25% lægra verði og fást í
múrverslun okkar að Breiðhöfða 3 og á helstu útsölustöðum.
Nýttu tækifærið til að framkvæma.
VELJUM ÍSLENSKT
Límblöndur
og þunnhúðir
Vilt þú sitja
ASÍ þing fyrir VR?
VR óskar eftir frambjóðendum meðal félagsmanna
á framboðslista stjórnar og trúnaðarráðs félagsins.
Ákveðið hefur verið að viðhafa listakosningu með allsherjaratkvæðagreiðslu um þing-
fulltrúa VR á þing Alþýðusambands Íslands dagana 21.–23. október næstkomandi.
VR KRINGLUNNI 7 103 REYKJAVÍK SÍMI 510 1700 WWW.VR.IS
Þar sem fjöldi er takmarkaður er ekki hægt að lofa að allir sem bjóða
sig fram muni hljóta sæti á listanum. Einnig verður stillt upp lista
varamanna sem oftar en ekki þarf að grípa til þar sem algengt er að
fólk heltist úr lestinni er nær dregur.
Ef þú vilt gefa kost á þér á listann sem þingfulltrúi VR á þinginu vinsamlega sendu
tölvupóst á anna@vr.is fyrir kl. 12.00 á hádegi þann 31. ágúst næstkomandi með
upplýsingum um nafn, kennitölu og starfssvið.
RÚSSLAND Efnaskiptasjúkdómur er
sú greining sem læknirinn Alexand-
er Múrakovskí hefur gefið stjórn-
málamanninum Alexei Navalní,
sem nú liggur í dái á spítala í Omsk.
Fjölskylda hans og fleiri hafa haldið
því staðfastlega fram að eitrað hafi
verið fyrir Navalní og vildu þau
koma honum undir læknishendur í
Þýskalandi. Fyrst heimilaði Múra-
kovskí flutning Navalní úr landi en
skipti síðan snögglega um skoðun.
Aðstandendur túlkuðu það sem til-
raun til þess að tryggja að mögulegt
eitur myndi hverfa úr blóði stjórn-
málamannsins.
Múrakovskí skipti síðan aftur
um skoðun seinni partinn í gær og
heimilaði f lutninginn. Skýringar
læknisins á ástandi stjórnmála-
mannsins eru þær að sjúkdómurinn
gæti verið tilkominn vegna skyndi-
legs blóðsykurfalls. Þá sagði hann
einnig að einhvers konar efni, tengd
iðnaði, hefðu fundist á höndum
Navalnís og fötum hans. Fullyrðir
hann að ekkert eitur hafi fundist í
blóði hans.
Mál Alexeis Navalní hefur gripið
heimsbyggðina, enda minnir það
um margt á þau mörgu dauðsföll
blaðamanna, njósnara og stjórn-
málamanna sem talin eru hafa
verið fyrirskipuð af Vladímír Pútín
á rúmlega 20 ára valdatíð hans.
Navalní hefur verið lýst sem
einum hættulegasta andstæðingi
Pútíns heima fyrir. Hann hefur stað-
fastlega bent á spillingu í stjórnkerfi
Pútíns og f lokks hans Sameinaðs
Rússlands. Navalní bauð sig meðal
annars fram til embættis borgar-
stjóra í Moskvu og reyndi að bjóða
sig fram gegn Pútín sjálfum, en var
meinað af kjörstjórn.
Eftir kosningarnar í Hvíta-Rúss-
landi, þar sem margir telja úrslitin
upplogin, og þau mótmæli sem
staðið hafa yfir í landinu, hefur
Navalní verið mjög hávær og gagn-
rýnt forsetann, Lúkasjenkó, sem sé
handbendi Pútíns. Segir Navalní
þá vakningu sem nú eigi sér stað í
Hvíta-Rússlandi einnig verða fyrr
en síðar í Rússlandi. Telja sumir
þeirra sem halda því fram að eitrað
hafi verið fyrir Navalní, að það sé
gert vegna þessa, til að refsa honum
eða taka úr umferð.
Navalní veiktist í f lugvél frá
Tomsk í Síberíu til Moskvu á
fimmtudag og var flugvélinni lent í
Omsk til að koma honum á spítala.
Eiginkona hans, Júlía, hefur ítrekað
beðið um að honum verði komið til
Þýskalands og var flogið með þýska
lækna til Omsk. Þegar flutningnum
var synjað brugðust aðstandendur
Navalní harkalega við.
„Þessi ákvörðun var vitaskuld
ekki tekin af læknunum heldur í
Kreml,“ skrifaði Kíra Jarmisj, tals-
kona Navalní, í yfirlýsingu á sam-
félagsmiðlum. Þá var málið sent
til Mannréttindadómstóls Evrópu
með hraði. „Hann mun ekki fá neina
lækningu í Omsk, honum verður
haldið í stöðugu gjörgæsluástandi,
í dái, af því að enginn hér hefur
áhuga á að bjarga honum. Aðeins að
hylma yfir glæpinn,“ skrifaði Kíra
enn fremur.
Hjá mörgum vakna hugrenninga-
tengsl við morðið á Alexander Litv-
ínenkó, fyrrverandi njósnara og
KGB-manni, árið 2006. Eitrað var
fyr ir honum með geislavirka efninu
Pólon-210 út í tebolla í Lundúnum,
þar sem hann var í útlegð. Það eina
sem vitað var að Alexei Navalní
hefði neytt daginn sem hann veikt-
ist, var einmitt te.
Navalní hefur margsinnis orðið
fyrir barðinu á Pútín í gegnum árin.
Hann hefur í nokkur skipti verið
handtekinn og fangelsaður með
hæpn um ásökunum. Í tvígang hefur
verið veist að honum og hellt yfir
hann sterku, ertandi grænu litarefni.
Stuðn ingsmenn Pútíns hafa gjarnan
skvett því á andstæðinga hans.
kristinnhaukur@frettabladid.is
Sjúkdómur
en ekki eitrun
segir læknir
Læknir, sem hefur umsjón með ástandi Alexeis
Navalnís, heimilaði loks flutning til Þýskalands
eftir langa bið. Talsmenn Navalnís halda því
fram að honum hafi verið sýnt banatilræði.
Læknirinn Alexander Múrakovskí hafði heimilað flutninginn á Alexei Na-
valní til Þýskalands, en hætti svo við á síðustu stundu. MYND/EPAXX
Hann mun ekki fá
neina lækningu í
Omsk, honum verður haldið
í stöðugu gjörgæsluástandi, í
dái, af því að enginn hér
hefur áhuga á að bjarga
honum. Aðeins að hylma
yfir glæpinn.
Kíra Jarmisj, talskona Navalnís
2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R10 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð