Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 67
Mikil gleði í sumarfríi fyrir fjölskyldur
í sumarbúðum skáta við Úlfljótsvatn
„Að tala um sumarfríið
– alveg eins og hinir“
Alls tóku tólf fjölskyldur með 31 barn þátt í sumarfríinu við Úlfljótsvatn.
Fjölskyldurnar sem koma í fríið tala um að það sé gott að vera bara úti í náttúrunni enda svæðið fallegt.
Það er mikill sigur að geta klifrað alla leið upp á klifurturninn á svæðinu.
Mæðurnar eru oft að prófa ýmsa leiki í fyrsta skiptið og það vekur kátínu krakkanna. Þá er ekki
slæmt að skjóta beint í mark og sýna hvers maður er megnugur!
Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi og umsjónarmaður innanlandsstarfs Hjálparstarfs kirkjunnar
Sjöunda sumarið í röð skipulögðu Hjálparstarf kirkjunnar og Hjálpræðisherinn á
Íslandi sumarfrí fyrir fjölskyldur í sumarbúðum skáta við Úlfljótsvatn. Tólf
fjölskyldur með 31 barn komu með í fríið frá 9.–12. júní en markmiðið var sem fyrr
að stuðla að jákvæðri upplifun fyrir börn og foreldra sem búa við efnislegan skort
og hafa alla jafna ekki tök á að fara saman í frí. Meðal skipulagðra dagskrárliða
voru klifur, sund, bátaferðir, bogfimi og kvöldvökur.
Þegar fjölskyldurnar höfðu komið sér fyrir í herbergjunum fyrsta daginn var boðið
upp á göngu um svæðið eða fjallgöngu og síðar var ratleikur á dagskrá. Í dýrindis
veðri að morgni annars dags var farið í bátsferð á vatninu við mikinn fögnuð
barnanna sem skemmtu sér hið besta. Eftir hádegi var svo farið í hópeflisleiki.
Þriðja daginn var farið í sund og krakkarnir spreyttu sig á klifurveggnum á
svæðinu. Það gerðu sumir foreldrar reyndar líka og tókst þannig að koma börnum
sínum á óvart. Fjórða daginn var farið í bogfimi og þá skipti engu máli hvort
krakkarnir hittu í skotmarkið eða ekki, gleðin skein úr hverju andliti. Kvöldvökur
voru öll kvöld. Þá fór fjölskyldurnar í bingó, ýmsa leiki og síðast en ekki síst
spurningakeppni sem vakti mikla kátínu og ekki spillit fyrir að geta unnið til fjölda
verðlauna. Það voru sælir þátttakendur sem fóru heim að fríi loknu.
Í sumarbyrjun þegar landsmenn fóru að
nýta sér Ferðagjöf stjórnvalda í stórum
stíl ákvað Hjálparstarf kirkjunnar að
brydda upp á þeirri nýjung að bjóða
fjölskyldum sem búa við kröpp kjör að
fara í sumarleyfi innanlands að eigin vali
með stuðningi Hjálparstarfsins. Alls tók
21 fjölskylda þátt í verkefninu sem hefur
gefið góða raun.
Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi, er
umsjónarmaður innanlandsstarfs Hjálp-
arstarfs kirkjunnar. Hún segir mikla
valdeflingu felast í verkefninu. „Það er
alveg frábært fyrir börnin að upplifa
jákvæða orku með mömmu og pabba og
kynnast sjálfum sér og fjölskyldunni
betur í nýjum aðstæðum. Það er
valdeflandi að upplifa að fjölskyldan
getur gert ýmislegt saman,“ segir Vilborg
þegar hún útskýrir hvers vegna
verkefnið sé mikilvægt. „Það er líka mjög
valdeflandi fyrir börnin að geta tekið
þátt í umræðum með skólasystkinum um
ævintýri sumarsins en þegar fólk býr við
fátækt er því einmitt hættara við
félagslegri útilokun.“
Vilborg segir að fjölskyldurnar hafi lýst
mikilli ánægju með sumarfríið. Þær hafi
farið vítt um landið, í hvalaskoðun, á
hestbak og gert ýmislegt annað sem þær
geti ekki leyft sér alla jafna. „Svo felst
líka mikil reisn í því að geta valið sjálfur,“
útskýrir Vilborg og bætir við að það hafi
glatt hana sem félagsráðgjafa að sjá fólk
vinna með styrkleika sína og eflast í
foreldrahlutverkinu í ferðalagi um
landið.
Margt smátt ... – 7