Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 4
41
prósents fjölgun hefur
orðið á umsóknum um aðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar.
TÖLUR VIKUNNAR 16.08.2020 TIL 22.08.2020
17
þúsund manns voru
á atvinnuleysisskrá í lok júlí.
10
milljónir er krafa þrotabús
Brúneggja á hendur fyrrverandi
eiganda fyrirtækisins.
832
sjúklingar bíða eftir liðskipta-
aðgerð á Landspítalanum.
120
milljónir Bandaríkjadala er lán
til Icelandair sem ríkissjóður
mun ábyrgjast.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
formaður
Viðreisnar
sagði að svara
verði hvers
vegna Sam-
herji sé tilbúinn
að greiða mun
meira fyrir tíma-
bundnar veiðiheimildir í Nami-
bíu en ótímabundnar á Íslandi,
en skýrsla Hagfræðistofnunar
um veiðigjöld fyrirtækisins í
löndunum var birt í vikunni. Þor-
gerður sagði skýrsluna varpa ljósi
á að frá árinu 2013 hafi veiðigjöld
á Íslandi lækkað sem hlutfall af
aflaverðmæti.
Gísli H. Halldórsson
bæjarstjóri Árborgar
sagði að óheimilt
hefði verið að
urða mal-
biksúrgang frá
Selfossi í gryfju
nálægt bænum.
„Við förum nú á
fullt að greiða úr
þessum mistökum og koma mal-
bikinu á réttan stað.“
Erling Smith
öryrki
hefur dvalið á
hjúkrunar-
heimili í tvö og
hálft ár eftir að
NPA-samningi
hans var rift.
Í vikunni var
svo gert fjárnám í
eignum hans vegna vangoldinna
vistunargjalda. „Ég samþykkti
aldrei langtímavistun. Ég er
nýlega giftur, á konu og heimili
og bíð eftir því að fá að komast
heim.“
Þrjú í fréttum
Formaður,
bæjarstjóri
og öryrki
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI, VARA- OG AUKAHLUTAVERSLUN
Pallbílahús frá ARE á alla USA pallbíla
Varahlutaverslun ÍSBAND býður upp á gott úrval vara- og aukahluta og
íhluta til breytinga. Allir helstu varahlutir í okkar vörumerkjum eru til á
lager. Sérpöntum varahluti í aðra USA bíla.
Úrval af felgum fyrir
Jeep® og RAM
Upphækkunarsett
í Wrangler
Upphækkunarsett
í RAM
Falcon demparar
ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK
SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA KL. 07:45 - 18:00
ALMENNT BÍLAVERKSTÆÐI OG
SMURÞJÓNUSTA FYRIR ALLA BÍLA
ALLIR VINNA - ENDURGREIÐSLA VSK.
FIAT HÚSBÍLAR - ÁBYRGÐAR OG
ÞJÓNUSTUVERKSTÆÐI
BREYTINGAR Á JEEP®, RAM
OG ÖÐRUM USA PALLBÍLUM
ALLIR BÍLAR SÓTTHREINSAÐIR
STUTTUR BIÐTÍMI SÍMI 590 2323
UMBOÐSAÐILI
ALÞINGI „Í gegnum tíðina hef ég
verið efasemdamanneskja um ríkis-
ábyrgðir. Ég vil allavega fá að sjá af
hverju er verið að stíga þetta skref.
Ég geri mér grein fyrir því að félag-
ið er þjóðhagslega mikilvægt en mig
langar að vita hvort ríkisstjórnin
hafi kannað aðrar leiðir,“ segir Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, for-
maður Viðreisnar, um þá ákvörðun
stjórnvalda að veita Icelandair
ríkisábyrgð.
Ríkisábyrgðin snýr að lánalínu
félagsins upp á rúma 16,5 milljarða
króna, en hún er háð bæði sam-
þykki Alþingis og því að mark-
mið fyrirhugaðs hlutafjárútboðs
náist. Alþingi mun koma saman
til framhaldsfunda næstkomandi
fimmtudag og er búist við því að
ríkisábyrgð fyrir Icelandair komist
mjög fljótt á dagskrá.
Þorgerður Katrín segir að þetta
hafi legið fyrir í svolítinn tíma og
að ríkisstjórnin hljóti að hafa nýtt
sumarið svo hægt sé að kynna þing-
inu greiningar sem útskýra af hverju
fara eigi þessa leið. „Við komum að
þessu með opnum huga en það er
ekki sjálfgefið að fara þessa leið.
Við þurfum að fá til þess betri upp-
lýsingar og betri greiningar,“ segir
Þorgerður Katrín.
Hún bætir því við að hún sé með
meiri vara á sér núna eftir þær
ákvarðanir sem ríkisstjórnin hefur
tekið. „Ríkisstjórnin hefur ekki rök-
stutt þessi skref sem hún hefur verið
að taka. Það er margt mjög þver-
sagnakennt sem kemur frá ríkis-
stjórninni.“
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, segir það auðvitað
ljóst að Icelandair sé gríðarlega
mikilvægt fyrirtæki.
„Það þarf að meta hvaða tjón
myndi hljótast af því til lengri tíma
ef fyrirtæki félli. En það þarf líka
mjög sterk rök fyrir því að ríkið
ábyrgist svona risalán til fyrirtækis
sem er í miklum erfiðleikum,“ segir
Logi.
Þess vegna sé það nauðsynlegt
að Alþingi ræði þetta opinskátt frá
öllum hliðum. Það þurfi að tryggja
að ríkið verði ekki fyrir óbætanlegu
tjóni og að félagið eigi sem mesta
möguleika á að geta dafnað aftur.
„Við vitum það auðvitað að ef
þetta heppnast og félagið réttir úr
kútnum, sem það vonandi gerir, þá
mun það skila sér til samfélagsins.
Svo þarf líka að gæta að því hvaða
áhrif ríkisaðstoð hefur á félag sem
er í samkeppni.“
Smári McCarthy, fulltrúi Pírata í
efnahags- og viðskiptanefnd, segir
þingf lokkinn eiga eftir að ræða
málið. Hann telji þó mjög mikil-
vægt fyrir Ísland að hafa starfandi
flugfélag.
„En það er ekki sama hvernig
svona er gert. Ég er ekki viss um að
það að bjóða ríkisábyrgð á láni sé
rétta leiðin því það eykur áhættu
ríkisins. Ríkið er líka að fá mjög tak-
markað á móti.“
Það væri kannski eðlilegra að
aðstoðin yrði í formi hlutafjár-
aukningar ásamt yfirlýsingu um að
ekki yrði greiddur út arður á meðan
hluturinn væri í eigu ríkisins.
„Markmiðið væri ekki að ríkið
ætti einhvern hlut til lengri tíma
heldur væri hluturinn ákveðin
trygging. En það eru kannski til
snyrtilegri lausnir,“ segir Smári.
sighvatur@frettabladid.is
Kalla eftir opinni umræðu
um ríkisábyrgð Icelandair
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar sem Fréttablaðið ræddi við eru sammála um mikilvægi Icelandair en
eru ekki sannfærðir um að ríkisábyrgð sé besta leiðin til að aðstoða félagið. Skoða þurfi alla hugsanlega
möguleika í stöðunni. Ríkisábyrgð fyrir um 16,5 milljarða lánalínu félagsins er háð samþykki Alþingis.
Gríðarlegur tekjusamdráttur hefur orðið hjá Icelandair eins og öðrum flugfélögum vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
2 2 . Á G Ú S T 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð