Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 43
Ískraft er rafiðnaðarheildsala og leiðandi á því sviði á íslenskum markaði. Fyrirtækið hefur starfað
síðan 1975. Ískraft rekur 4 starfsstöðvar, í Kópavogi, Akureyri, Selfossi og Reykjanesbæ.
Nánari upplýsingar á iskraft.is.
.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Hvetjum alla áhugasama til að sækja um óháð kyni. Umsóknarfrestur er til 15. september.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Brynjar Stefánsson, framkvæmdastjóri Ískraft, brynjar@iskraft.is. Sótt er um starfið á ráðningarvef Ískrafts,
https://www.iskraft.is/um-okkur/laus-storf/
Sölustjóri ÍSKRAFT
Sölustjóri er ábyrgur fyrir þjónustu og sölu á vörum fyrirtækisins til rafverktaka. Eftirsóknarvert er að fá til liðs við okkur
söludrifinn leiðtoga sem er tilbúinn að leggja sitt af mörkum við að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina.
Lögð er rík áhersla á jákvæð samskipti og samvinnu ásamt því að viðkomandi falli vel að góðri liðsheild fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
• Stjórnun og skipulag á sölustarfi til rafvirkja og verktaka
• Þjónusta og samskipti við núverandi viðskiptavini
• Öflun nýrra viðskiptasambanda
• Samninga- og tilboðsgerð
• Umsjón með útibúum á Selfossi og Reykjanesbæ
• Umsjón með verslun á Smiðjuvegi
• Þjálfun söluteymis
• Gerð söluáætlana og eftirfylgni þeirra í samráði við framkvæmdastjóra
Menntunar og hæfniskröfur:
• Sveinspróf í rafvirkjun, rafiðnfræði eða rafmagnstæknifræði er skilyrði
• Mikil tengsl og þekking á rafverktakamarkaðinum
• Hæfni til að greina tækifæri á markaði
• Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfileikar
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
• Þekking á CRM og notkun slíkra kerfa
• Reynsla af sölustjórnun og mannaforráðum
• Góð almenn tölvukunnátta
iskraft.is
Fjölskyldu- og barnamálasvið
• Liðsmenn í tímavinnu
• Stuðningsölskyldur fyrir fötluð börn
• Starfsmaður í tímavinnu - Lækur
Grunnskólar
• Baðverðir - Skarðshlíðarskóli
• Kennari í 70% starf - Skarðshlíðarskóli
• Kennari í íslensku sem annað mál - Lækjarskóli
• Skóla- og frístundaliði - Hraunvallaskóli
• Skóla- og frístundaliði - Setbergsskóli
• Stuðningsfulltrúi - Öldutúnsskóli
• Tómstundaleiðbeinandi - Setbergsskóli
• Tómstundaleiðbeinandi - Hraunvallaskóli
Leikskólar
• Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
• Deildarstjóri í aeysingu - Álfasteinn
• Leikskólakennari - Hlíðarberg
• Leikskólakennari - Norðurberg
• Leikskólakennari - Skarðshlíðarleikskóli
• Leikskólakennari - Stekkjarás
• Sérkennslustjóri - Tjarnarás
Mennta- og lýðheilsusvið
• Tómstundaleiðbeinendur í Hamarinn - ungmennahús
Vakin er athygli á stefnu Hafnar
arðarbæjar að jafna hlutfall
kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins
endurspegli
ölbreytileika samfélagins.
Nánar á hafnarordur.is
HJÁ HAFNARFJARÐARBÆ
LAUS STÖRF
hafnarordur.is585 5500
Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans í Vestmannaeyjum.
Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi.
Hann annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber ábyrgð á
framkvæmd lögreglustarfa innan þess.
Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.
Aðrar hæfniskröfur eru:
• Góð þekking og yfirsýn á verkefnum lögreglunnar æskileg
• Góð þekking og/eða reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar æskileg
• Rekstrarþekking og/eða reynsla er æskileg
• Reynsla af stjórnun og stefnumótun æskileg
• Mjög góð forystu-, samvinnu- og samskiptahæfni
• Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þekking á einu Norðurlandamáli æskileg
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn, sbr. lög um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Miðað er við að skipað verði í
embættið frá og með 1. nóvember 2020. Um laun og starfskjör lögreglustjóra
fer eftir ákvörðun kjara- og mannauðssýslu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Upplýsingar um starfið veitir Haukur Guðmundsson ráðuneytisstjóri
í síma 545 9000.
Umsóknarfrestur er til og með 14. september 2020. Dómsmálaráðuneytið hefur
ákveðið að fela nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og á nefndin að skila
ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.
Umsóknum skal skila rafrænt á starf@dmr.is.
Í umsókn skulu koma fram upplýsingar um: 1) menntun, 2) reynslu af stjórnun,
3) reynslu af lögmannsstörfum, saksókn, dómstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslu-
störfum, 5) upplýsingar um samskiptafærni og sjálfstæði, 6) aðrar upplýsingar
sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta
fyrir störf lögreglustjóra. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum og upp-
lýsingar um umsagnaraðila.
Embætti lögreglustjóra
í Vestmannaeyjum laust til umsóknar