Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 30
„Nú erum við komin heim með hjartað
fullt af yndislegum minningum“
„Krakkarnir voru alsælir og strákurinn minn sem er þrettán ára vildi helst að við flyttum á Stykkishólm. Eitt stórt atriði í þeirri pælingu var skólalóðin, sem var alveg við hliðina á hótelinu
en þar er risastór aparóla og uppblásið trampólín,“ segir glöð mamma í ferðasögu sem hún sendi til Hjálparstarfs kirkjunnar og við fengum leyfi til að birta hér í blaðinu.
– ferðasaga
Ég var svo heppin að fá ferðastyrk frá
Hjálparstarfi kirkjunnar og valdi að fá
þrjár nætur í hótelgistingu fyrir mig og
börnin mín þrjú. Við fórum snemma af
stað úr Reykjavík, með nesti fyrir
hádegismat og keyrðum í gegnum
Borgarnes í átt að Stykkishólmi.
Áður en við fórum í Hólminn komum við
við í Hákarlasafninu í Bjarnarhöfn og
fengum fróðleik um hákarlaveiði fyrri
tíma og smakk af hákarli með
rúgbrauðsbita. Ég hef aldrei getað
borðað hákarl en þetta smakkaðist bara
ótrúlega vel. Svoldið eins og sterkur
ostur frá Frakklandi.
Svo fórum við áfram á Stykkishólm. Rétt
áður en maður fer inní þorpið er lítið
nestissvæði inní í skógrækt og
krakkarnir príluðu í trjánum meðan ég
lagði á borð með bláköflóttum dúk.
Við keyrðum svo aðeins um bæinn áður
en við fórum á hótelið. Þar fengum við
þriggja manna herbergi og fyrra kvöldið
var svoldið þröngt um okkur en svo var
bætt inn dýnu á gólfið seinna kvöldið.
Krakkarnir voru alsælir og strákurinn
minn sem er þrettán ára vildi helst að
við flyttum á Stykkishólm. Eitt stórt
atriði í þeirri pælingu var skólalóðin,
sem var alveg við hliðina á hótelinu en
þar er risastór aparóla og uppblásið
trampólín.
Við nutum þess svo að ganga um þorpið
og fengum okkur að borða á veitingastað
um kvöldið. Þar nýttum við okkur
Ferðagjöfina frá ríkinu en foreldrar
mínir og bróðir gáfu mér sínar inneignir.
Ég hafði líka fengið inneignarkort í
Bónus frá Hjálparstarfi kirkjunnar og
keypti meira nesti til að hafa við
höndina.
Daginn eftir fórum við í siglingu um
Breiðafjörðinn sem var alveg ævintýra-
legt, svo mikið fuglalíf og aðalfjörið var
svo þegar trollinu var kastað og skeljar
og ígulger svifu um borð.
Hörpuskelin var borin fram hrá með
sojasósu og wasabi eins og sushi og
krökkunum þótti það ekki amalegt.
Stóra stelpan mín, sem er algjör grallari
þó hún sé orðin sautján, samdi við
sjóarana um að fá að eiga fullan poka af
hörpuskeljum sem var vandlega pakkað
inní tvöfaldan plastpoka.
Við fórum líka í sund í Hólminum og svo
snemma að sofa seinna kvöldið. Yngsta
barnið mitt sofnaði fyrst og við hin
vorum að hvíslast á og spjalla og
strákurinn minn sagði að þetta væri
svolítið eins og þegar hann fór í
skólaferðalag á Reyki, allir saman í
herbergi og stemning á kvöldin.
Ferjan fór svo snemma morguninn eftir.
Við skildum bílinn eftir á bryggjunni og
fórum úr í Flatey þar sem við áttum
síðustu nóttina bókaða á Hótel Flatey.
Það var ólýsanleg tilfinning að ganga
þar um. Ég hafði barist við erfitt
þunglyndi áður en ég fór í þessa ferð en
í Flatey gerðist eitthvað kraftaverk og
hrein hamingja fór að streyma um
æðarnar.
Ég sagði krökkunum að nú værum við í
fríi og þau mættu bara gera allt sem
þau vildu, hvort sem væri að horfa á
Netflix eða leika niðri í fjöru. Þau tóku
mig á orðinu og gerðu sitt lítið af hvoru.
Við fórum í gönguferð upp á Lundahöfða,
með prik við höfuðið til að verjast
kríunni en hún var góð við okkur og
gerði engar árásir. Ég sökkti mér svo í
bók og við vorum öll alsæl með þessa
ferð.
Ég vil helst fara aftur í Flatey í sumar,
kannski ein með tjald og leyfa mér að
borða á hótelinu í staðinn fyrir ódýran
gistimáta. En nú erum við komin heim
með hjartað fullt af yndislegum
minningum og bala úti á svölum fullan af
breiðfirskum hörpuskeljum í bleyti sem
bíða þess að vera hreinsaðar.
Bestu þakkir,
glöð mamma
Fjölskyldur sem leita til Hjálparstarfs kirkjunnar hafa sagt
félagsráðgjöfum okkar frá því að ferðalög innanlands og utan
séu ekki á dagskrá sökum efnaleysis.
Í sumar bauð Hjálparstarf kirkjunnar 21 fjölskyldu sem býr við
kröpp kjör ferðastyrk til þess að ferðast innanlands á eigin
vegum og til áfangastaðar að eigin vali.
Alls nutu 45 börn og foreldrar þeirra góðs af ferðastyrknum og
fara inn í haustið með minningar um samverustundir og ævintýri
fjölskyldunnar. Og þeim er hægt að deila með bekkjarsystkinum.
6 – Margt smátt ...