Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 37
Rekstrarstjóri viðhalds
Alcoa Fjarðaál leitar að sérfræðingi í starf rekstrarstjóra viðhalds.
Í starfinu felst umsjón með öllu viðhaldi á viðkomandi framleiðslusvæði.
Ábyrgð og verkefni
• Yfirumsjón viðhalds á framleiðslusvæði
• Að samþykkja verkpantanir
• Forgangsröðun verkefna
• Að halda utan um viðhaldskostnað
• Tæknilegur stuðningur við iðnaðarmenn
Áhugasamir eru hvair til að afla sér frekari upplýsinga um starfið hjá Ásgrími Sigurðssyni í gegnum
netfangið asgrimur.sigurdsson@alcoa.com eða síma 470 7700. Við hvetjum konur jafnt sem karla til
að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með föstudeginum 4. september. Skriflegri umsókn ásamt
ferilskrá skal skilað á www.alcoa.is. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og þeim öllum svarað.
Menntun og hæfni
• Verkfræði, tæknifræði eða önnur
hagnýt menntun
• Reynsla af rekstri viðhalds
• Jákvæðni og atorkusemi
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Að vinna vel með öðrum
hagvangur.is
Upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 6. september
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu liggur fyrir.
FÉLAGSMÁLASTJÓRI
Félagsþjónusta Stranda og Reykhóla auglýsir lausa til umsóknar stöðu félagsmálastjóra.
Starfið
Félagsmálastjóri hefur umsjón með framkvæmd
stefnumörkunar í þeim málum sem heyra undir hans
málaflokk og eftirlit með framkvæmd samninga, laga
og reglugerða um félagsþjónustu. Hann situr í
verkefnahópi Byggðasamlags Vestfjarða um málefni
fatlaðs fólks, hefur yfirumsjón með barnaverndar-
málum samkvæmt barnaverndarlögum nr. 80/2002
og sér um eftirfylgd og ráðgjöf samkvæmt lögum um
félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Félagsmálastjóri vinnur náið með sameiginlegri
velferðarnefnd sveitarfélaganna fjögurra, hefur
yfirumsjón með fundum nefndarinnar auk þess að
sitja í þverfaglegum teymum og ráðum.
Félagsmálastjóri ber ábyrgð á rekstri Félagsþjónustu
Stranda og Reykhólahrepps, gerð fjárhagsáætlana
auk annarra tilfallandi verkefna sem heyra undir hans
fagsvið. Starfið kallar því á talsverða teymisvinnu og
samskipti við fagfólk og aðra á svæðinu auk
sjálfstæðra vinnubragða.
Helstu hæfniskröfur
• Meistarapróf í félagsráðgjöf
• Stjórnunarreynsla æskileg
• Reynsla af starfi við félagsþjónustu, málefni
fatlaðra eða sambærileg störf mikilvæg
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og
skipulagshæfileika
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
Leitað er eftir einstaklingi sem hefur vilja og getu
til að leiða áframhaldandi uppbyggingu og þróun á
félagsþjónustu á svæðinu. Starfið krefst ferðalaga
um svæðið og þarf félagsmálastjóri að hafa bílpróf
og bíl til umráða.
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps var stofnuð 1. febrúar 2011. Fjögur sveitarfélög
sameinast um félagsþjónustuna en það eru Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð og
Reykhólahreppur. Félagsmálastjóri hefur aðsetur á Hólmavík en hefur auk þess haft fasta viðveru á
Reykhólum einn dag í viku. Sex málaflokkar heyra undir félagsmálastjóra en þeir eru:
Barnavernd • Félagsleg heimaþjónusta • Félagsleg ráðgjöf
Fjárhagsaðstoð • Málefni aldraðra • Málefni fatlaðra
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára