Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 28
Neyðaraðstoð vegna fátæktar Hjálparstarf kirkjunnar veitir fólki í félagslegri neyð efnislega aðstoð í samvinnu við presta, félags- og námsráðgjafa um land allt. Aðstoðinni er ætlað að svara skyndilegri neyð enda er það skylda stjórnvalda að tryggja framfærslu fólks í félagslegum vanda þannig að það fái lifað mannsæmandi lífi til lengri tíma. Meginmarkmiðið er að grunnþörfum fólks sé mætt, að fjárhagslegir erfiðleikar ógni ekki heilsu fólks og takmarki ekki möguleika barna og unglinga til farsæls lífs. Faglegt mat félagsráðgjafa Hjálparstarfsins liggur til grundvallar efnislegum stuðningi sem veittur er án tillits til trúar- og lífsskoðana, þjóðernis, litarháttar eða kyns þeirra sem hans leitar. Ráðgjöf Félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar taka á móti fólki sem leitar eftir efnislegum stuðningi hjá stofnuninni, ræða við það og benda á úrræði í samfélaginu sem kunna að gagnast því við að komast út úr erfiðum aðstæðum. Vegna samkomutakmarkana ráðleggjum við fólki að hringja milli klukkan 10 og 15 á virkum dögum í síma 5284400 og panta viðtalstíma hjá ráðgjafa. Inneignarkort fyrir matvöru Hjálparstarf kirkjunnar veitir fólki sem býr við fátækt neyðaraðstoð til skemmri tíma meðal annars með inneignarkortum í matvöruverslunum en mikil valdefling felst í því að fólk versli sjálft þær nauðsynjar sem það þarf í stað þess að bíða í röð eftir matarpoka sem aðrir hafa fyllt. Aðstoð vegna lyfjakaupa Hjálparstarf kirkjunnar aðstoðar fólk í félagslegri neyð þegar sýkingar eða veikindi kalla á óvænt útgjöld vegna lyfjakaupa. Þó er ekki greitt fyrir lyf sem eru á lista Lyfjastofnunar yfir ávana- og fíknilyf. Hjálparstarfið greiðir lyfjaverslunum beint fyrir lyfin sem aðstoðað er um. Fataúthlutun og fatasöfnun Í mörg ár hefur fólk í félagslegri neyð getað sótt sér notaðan fatnað á lager Hjálparstarfs kirkjunnar. Vegna kórónuveirufaraldurs og smithættu hefur fatamiðstöðin verið lokuð síðan í mars 2020. Á meðan lokað er höfum við því miður ekki pláss til að taka við fatnaði frá hjartahlýju fólki. Við munum auglýsa á vefsíðu okkar www.hjalparstarfkirkjunnar.is þegar ákvörðun liggur fyrir um að opna fatamiðstöðina á ný. Velferð barna og ungmenna Börn og unglingar sem búa við fátækt fá styrk frá Hjálparstarfi kirkjunnar til íþróttaiðkunar, listnáms og frístundastarfs. Foreldrar geta einnig leitað eftir styrk til að senda börn í sumarbúðir og ungmenni á sjálfstyrkingarnámskeið. Foreldrum grunnskólabarna býðst aðstoð í upphafi skólaárs og ungmenni sem búa við fátækt fá styrk til náms sem gefur þeim réttindi til starfs eða veitir þeim aðgang að lánshæfu námi. Sjálfstyrkingarnámskeið og hópastarf Til þess að fólk komist út úr vítahring fátæktar og félagslegrar einangrunar þarf það að takast á við aðstæður á heildrænan hátt. Félagsráðgjafar Hjálparstarfs kirkjunnar skipuleggja reglulega sjálfstyrkingarnámskeið og hópastarf í samráði við þá sem leita aðstoðar hjá okkur. Taupokar með tilgang er saumaverkefni fyrir konur sem eru nýkomnar til landsins og eru utan vinnumarkaðar. Konurnar sníða og sauma fjölnota innkaupapoka og fleira úr efni og/eða notuðum fatnaði sem almenningur hefur gefið og nota til þess saumavélar sem almenningur hefur gefið sömuleiðis. Konurnar fá félagsskap og læra að sauma, efni er endurunnið og umhverfið græðir. Stattu með sjálfri þér – virkni til farsældar er verkefni skipulagt með konum sem búa við örorku og eru með börn á framfæri. Markmiðið er að bæta sjálfsmynd og trú á eigin getu, að styrkja tengslanetið og eflast í foreldrahlutverkinu. Í Sumarbúðum fyrir fjölskyldur á Úlfljótsvatni, sem er samvinnu- verkefni með Hjálpræðishernum á Íslandi, er boðið upp á fjölbreytta dagskrá í fjóra daga með það að markmiði að fjölskyldur sem búa við kröpp kjör geti átt gleðilegt frí saman og safnað góðum minningum. Sumarfrí innanlands að eigin vali er verkefni sem Hjálparstarfið fór af stað með sumarið 2020 en þá nutu barnafjölskyldur sem búa við kröpp kjör stuðnings til að fara í sumarfrí að eigin vali. Að fríi loknu fara börnin í skólann með minningar um samverustundir með fjölskyldunni, eins og bekkjarsystkinin. Ræktaðu garðinn þinn er hópastarf sem stendur yfir sumartímann þar sem þátttakendur fá pláss í matjurtagörðum sveitarfélaga og fá þar tækifæri til að rækta sitt eigið grænmeti. Að hausti er svo námskeið um geymsluaðferðir uppskerunnar. Málsvarastarf Auk þess að veita neyðaraðstoð og hjálpa fólki til sjálfshjálpar með ráðgjöf og valdeflandi verkefnum hefur Hjálparstarf kirkjunnar það að markmiði að auka almenna vitund um mannréttindi og mikilvægi félagslegs réttlætis. Hjálparstarf kirkjunnar vinnur með fólki í fátækt sem talar fyrir sig sjálft og tekur þátt í opinberum ákvörðunum sem það varðar. Þjónusta við fólk í félagslegri neyð á að vera notendastýrð og fólk á að geta lifað mannsæmandi lífi af launum sínum og lífeyri. EAPN og Pepp Ísland – samtök fólks í fátækt EAPN er evrópskur samráðsvettvangur fyrir fólk sem býr við fátækt en félagsráðgjafar og notendur þjónustu Hjálparstarfsins taka þátt í störfum Íslandsdeildar EAPN. Hópurinn Pepp Ísland, samtök fólks í fátækt var stofnaður í tengslum við EAPN á Íslandi og starfar á eigin forsendum. Hjálparstarf kirkjunnar á Íslandi – átt þú erindi til okkar? Kórónuveirufaraldurinn hefur kennt okkur að erfiðar aðstæður gera ekki alltaf boð á undan sér og að það getur verið erfitt að vinna sig út úr þeim. Veikind, slys og atvinnumissir geta valdið því að tekjur fólks sem áður var aflögufært duga því vart til framfærslu. Hlutverk Hjálparstarfs kirkjunnar er að veita fólki í neyð efnislegan stuðning, valdeflingarverkefni eru skipulögð til að koma í veg fyrir félagslega einangrun og þrýst er á stjórnvöld um aukið félagslegt réttlæti. Efnisleg aðstoð Hjálparstarfs kirkjunnar á starfsárinu júlí 2019–júní 2020: – 1.983 fjölskyldur fengu inneignarkort fyrir matvöru. Faglegt mat félagsráðgjafa liggur að baki ákvörðunar um upphæð inneignar hverju sinni. – Aðstoð við lyfjakaup var veitt í 538 skipti. – 49 ungmenni fengu styrk til greiðslu skólagjalda í framhaldsskólum og fyrir bóka- og efniskostnaði, meðalupphæð styrkja var 31.749 krónur. – 42 börn og unglingar undir átján ára aldri nutu styrkja til íþróttaiðkunar, listnáms og frístundastarfs. – Á annað hundrað grunnskólabörn fengu í upphafi skólaárs skólatöskur, nestisbox og ritföng til að hafa við heimanámið. – 12 fjölskyldur með samtals 31 barn fóru í skipulagt sumarfrí með Hjálparstarfi kirkjunnar og Hjálpræðishernum á Íslandi í sumarbúðir Skáta við Úlfljótsvatn. – 21 fjölskylda með samtals 45 börn fór í sumarfrí innanlands að eigin vali með stuðningi Hjálparstarfs kirkjunnar. – 30 fjölskyldur fengu árskort í Fjölskyldu – og húsdýragarðinn. Auk þess hefur fjöldi barna og unglinga fengið leikhús- og bíómiða og inneignarkort á veitingastað. – Í desember 2019 fengu 307 fjölskyldur (830 einstaklingar) notaðan fatnað hjá Hjálparstarfinu. Frá ágúst 2019 og fram til marsmánaðar þegar fatamiðstöð Hjálparstarfsins var lokað tímabundið vegna kórónuveirufaraldurs leituðu að jafnaði milli 20 og 30 fjölskyldur eftir fatnaði hjá Hjálparstarfinu í viku hverri. 4 – Margt smátt ...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.