Fréttablaðið - 22.08.2020, Blaðsíða 68
Marvin Kabwa er félagsráðgjafi
Ugandan Youth Development Link
(UYDEL) sem er samstarfsaðili Hjálpar-
starfs kirkjunnar í Kampala, höfuðborg
Úganda. UYDEL rekur verkmennta-
smiðjur fyrir ungt fólk á aldrinum 13–24
ára í þremur fátækrahverfum í borginni
en Hjálparstarfið fjármagnar rekstur-
inn. Á fyrstu sex mánuðum ársins sóttu
443 ungmenni smiðjurnar og fengur þar
fræðslu og félagsskap.
Marvin er 29 ára gamall og hefur starfað
með UYDEL í tíu ár. Hann segir að starfið
í smiðjunni í Banda hafi tekið breytingum
í kórónuveirufaraldrinum. Nú sé áhersla
lögð á að fara út í hverfin og fræða
unglingana um mikilvægi handþvottar,
að þeir virði fjarlægðarmörk í sam-
skiptum og beri sóttvarnargrímu.
UYDEL hefur auk þess komið fyrir
þvottaaðstöðu við smiðjurnar. „Við
höfum öll þurft að aðlagast nýjum
veruleika þar sem við megum ekki
snertast, þurfum að bera grímur og við
búum öll við skert ferðafrelsi núna,“
segir Marvin.
UYDEL hafa áratuga reynslu af því að
vinna með ungu fólki í fátækrahverfum
og eru leiðandi í baráttunni gegn
mansali og barnaþrælkun í Úganda. Í
smiðjum UYDEL og Hjálparstarfs
kirkjunnar í Kampala starfa félags-
ráðgjafar með unglingum sem hafa ekki
getað haldið áfram í skóla sökum
fátæktar og búa við ömurlegar
aðstæður. Markmiðið er að hjálpa unga
fólkinu með því að bjóða því upp á
ársnám í iðngrein sem þau geta svo
notað til að sjá fyrir sér. Líka að
unglingarnir taki þátt í uppbyggilegum
tómstundum og námskeiðum sem
styrkja sjálfsmyndina.
Í jafningafræðslu eru unglingarnir
upplýstir um kynheilbrigði og rétt sinn
til heilbrigðisþjónustu. Í Úganda verða
stelpur gjarnan mæður mjög ungar en
með fræðslu til bæði stelpnanna og ekki
síður til strákanna, meðal annars um
notkun smokka, fá þær tækifæri til að
fresta barneignum. Unglingarnir fá
smokka í smiðjunum en notkun þeirra
kemur einnig í veg fyrir smit kyn-
sjúkdóma.
Í smiðjunum er boðið upp á nám í tölvu-
og farsímaviðgerðum, rafvirkjun,
fatasaum og fataprjóni, töskugerð,
sápugerð, hárgreiðslu og förðun, elda-
mennsku og þjónastarfi. Skipulagið er
yfirleitt þannig að kennsla í iðngreinum
er fyrir hádegi en boðið er upp á söng,
íþróttir og jafningjafræðslu eftir
hádegi. Í kórónuveirufaraldri er starf-
semin skert að því leyti að færri
unglingar koma í hvert sinn til þess að
virða fjarlægðarmörk í smiðjunum.
Eftir ársnám hafa unglingarnir lært það
mikið að þeir geta komist í starfsnám í
fyrirtækjum eða komið sér upp eigin
sölu-, þjónustu- eða viðgerðarbásum.
Félagsráðgjafar UYDEL hafa milligöngu
um starfsnámið og fylgja krökkunum
eftir og athuga hvernig þeim reiðir af
eftir námið.
Krakkarnir í Kampala njóta áfram stuðnings en í breyttri mynd
Marvin Kabwa félagsráðgjafi UYDEL (til vinstri á myndinni) með samstarfsfélögum sínum í Banda-hverfi Kampalaborgar. Félagsráðgjafarnir hafa undanfarna mánuði lagt mikla áherslu á
fræðslu um smitvarnir gegn kórónuveirunni. Samkvæmt Hjálparstarfi Lútherska heimssambandsins, LWF, í Úganda voru 911 staðfest smit í landinu undir lok júnímánaðar. LWF telur að
kórónuveirufaraldurinn muni hafa mjög alvarleg efnahagsleg áhrif í landinu og verst muni áhrifin verða fyrir þá sem fæstar bjargir hafa.
Í maí 2019 fór Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, til Úganda til
þess að meta árangur verkefna þar. Í Banda-hverfi í Kampala hitti hann Marvin Kabwa
sem stýrir þar verkmenntasmiðju fyrir unglinga sem búa við mjög erfiðar aðstæður.
Á myndinni eru Marvin og Bjarni með Annette sem lærði meðal annars hárgreiðslu og
fjármálalæsi í smiðjunni í Banda og opnaði í framhaldinu eigin hárgreiðslustofu í hverfinu.
Annette vegnar nú vel og er þakklát fyrir tækifærið sem hún fékk með ársnámi í smiðjunni.
8 – Margt smátt ...