Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
BLÖNDUÓSBÆR
Hnjúkabyggð 33 | 540 Blönduós | Sími 455 4700
Launafulltrúi óskast á skrifstofu Blönduósbæjar
Blönduósbær óskar eftir að ráða starfsmann í starf launafulltrúa á
skrifstofu sveitarfélagsins.
Um er að ræða 100% starf, eða eftir nánara samkomulagi, og er
vinnutími frá 8:00–16:00.
Launafulltrúi sér um launavinnslu sveitarfélagsins ásamt öðrum
almennum skrifstofustörfum.
Helstu verkefni:
• Launavinnsla fyrir alla starfsmenn sveitarfélagsins,
ásamt tengdum félögum
• Utanumhald með fræðslu og starfsþróun starfsmanna
sveitarfélagsins
• Samskipti við kjarasvið Sambands íslenskra sveitafélaga
• Önnur almenn og sérhæfð skrifstofustörf á skrifstofu
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla af störfum launafulltrúa eða af mannauðsmálum æskileg
• Jákvæðni, skipulagshæfni og færni í mannlegum samskiptum
• Þekking á skjalastýringarkerfum (ONE) eða sambærilegu æskileg
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar veitir Valdimar O Hermannsson, sveitarstjóri
og skal senda skriflega umsókn með ferilskrá (CV) á netfangið:
valdimar@blonduos.is fyrir 25. janúar nk.
Ljósmynd Hanna Dóra Ingadóttir
Sveitarfélagið Svalbarðsstrandarhreppur er á Svalbarðsströnd, undir hlíðum Vaðlaheiðar við austanverðan
Eyjafjörð. Íbúar eru um 480 og nemendur í Valsárskóla eru um 50 og um 40 í leikskólanum Álfaborg.
Nemendum er að fjölga á báðum skólastigum og fjölgunin kallar á breytingar á stjórnun skólans. Um helmingur
íbúa býr í þéttbýlinu á miðri ströndinni, Svalbarðseyri. Í þéttbýlinu er grunn- og leikskóli, íþróttaaðstaða, sundlaug
og skrifstofa hreppsins. Nábýlið við Akureyri gerir það að verkum að íbúar sækja mikið í þjónustu þangað en
samstarf er mikið á milli sveitarfélaganna í nágrenni Svalbarðsstrandarhrepps, öllum til hagsbóta.
Laus staða skólastjóra
í leikskólanum Álfaborg
Svalbarðsstrandarhreppur auglýsir laust til umsóknar
starf skólastjóra leikskólans Álfaborgar á Svalbarðseyri.
Starfshlutfall er 100% og brýnt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Leikskólastjóri starfar samkvæmt gildandi lögum og
reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðal-
námskrá leikskóla og stefnu Svalbarðsstrandarhrepps.
Skólastjóri Álfaborgar starfar í nánu samstarfi við
skólastjóra Valsárskóla. Þeir mynda skólastjórn
Valsárskóla/Álfaborgar sem er ein og sama stofnunin.
Þeim ber því að vinna saman að öllum þeim verkefnum
og málum þar sem samstarf þeirra getur leitt til fagleg-
ra og árangursríkara skólastarfs þar sem hagsmunir
nemenda/barna eru ávallt hafðir í fyrirrúmi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar.
• Sérstök áhersla er lögð á lipurð í samstarfi, sveigan-
leika og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og
nýjungum í skólastarfi.
• Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og lausnamiðun
í starfi.
Laus staða skólastjóra Valsárskóla
Svalbarðsstrandarhreppur auglýsir laust til umsóknar
starf skólastjóra Valsárskóla á Svalbarðseyri. Starfshlut-
fall er 100% og brýnt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Skólastjóri starfar samkvæmt gildandi lögum og
reglugerð um grunnskóla, öðrum lögum er við eiga,
aðalnámskrá grunnskóla og stefnu Svalbarðs-
strandarhrepps.
Skólastjóri Valsárskóla starfar í nánu samstarfi
við skólastjóra Álfaborgar. Þeir mynda skólastjórn
Valsárskóla/Álfaborgar sem er ein og sama stofnunin.
Þeim ber því að vinna saman að öllum þeim verkefnum
og málum þar sem samstarf þeirra getur leitt til fagleg-
ra og árangursríkara skólastarfs þar sem hagsmunir
nemenda/barna eru ávallt hafðir í fyrirrúmi.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Kennaramenntun og leyfisbréf kennara.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar.
• Sérstök áhersla er lögð á lipurð í samstarfi, sveigan-
leika og hæfni í mannlegum samskiptum.
• Leiðtogahæfni, metnaður og áhugi á skólaþróun og
nýjungum í skólastarfi.
• Góðir skipulagshæfileikar, frumkvæði og lausnamiðun
í starfi.
Lausar stöður leikskólakennara í
Álfaborg
Leikskólinn Álfaborg auglýsir eftir leikskólakennurum í
100% starfshlutfall. Tvær stöður leikskólakennara eru
lausar til umsóknar.
Menntun og hæfniskröfur:
• Leikskólakennararéttindi
• Góð íslensku kunnátta
• Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum
• Jákvæðni, frumkvæði og góður samstarfsvilji
• Góð færni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla,
öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og
skólastefnu Svalbarðsstrandarhrepps.
• Vinnur að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel
með velferð þeirra og hlúir að þeim andlega og líkam-
lega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að
þau fái notið sín sem einstaklingar.
• Tekur þátt í gerð skólanámskrár, mati á starfsemi
leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leik-
skólastjóra.
• Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar
undir stjórn deildarstjóra.
• Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn
barnanna.
• Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leik-
skólans.
• Tekur þátt í samstarfi við ýmsar stofnanir og sérfræð-
inga sem tengjast leikskólanum í samráði við deildar-
stjóra.
• Situr starfsmannafundi og aðra fundi er yfirmaður segir
til um og varðar starfsemi leikskólans.
• Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun
barnanna sem yfirmaður felur honum.
Lausar stöður á Svalbarðseyri
Björg Erlingsdóttir, sveitarstjóri veitir frekari upplýsingar og tekur við umsóknum á netfangið
sveitarstjori@svalbardsstrond.is Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar 2020.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Svalbarðsstrandarhrepps hvetur sveitarfélagið karla jafnt sem konur til þess að
sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu skólans www.skolar.svalbardsstrond.is.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Launafulltrúar,
gjaldkerar,
þjónustufulltrúar
hagvangur.is