Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Sími 534 1500 | kiddi@kambstal.is | Íshellu 1, 221 Hafnarfirði
Klippt & beygt
kambstál
fyrir minni og stærri verk
Reynsla | gæði | þjónusta
70 ára Herdís er Reyk-
víkingur, hún er smur-
brauðsdama að mennt
frá Hótel Sögu og rak
kaffihúsið Tíu dropa til
fjölda ára.
Maki: Þorvaldur Finn-
bogason, f. 1951, raf-
magns- og rekstrariðnfræðingur og vann
lengi hjá Orkuveitu Reykjavíkur.
Börn: Sveinn Hupfeldt, f. 1969, d. 1990,
Arnþór Hupfeldt, f. 1971, Elísabet Þor-
valdsdóttir, f. 1977, og Reynir Berg Þor-
valdsson, f. 1981. Barnabörnin eru orðin
sjö og það áttunda er á leiðinni.
Foreldrar: Halldóra Guðmundsdóttir, f.
1929, fv. verslunarmaður, búsett í
Reykjavík, og Sveinn Hupfeldt, f. 1922,
látinn, myndavélaviðgerðarmaður, síðast
búsettur í Óðinsvéum.
Herdís Kirsten
Hupfeldt
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Líf þitt verður mun meira spenn-
andi þegar þú ert nálægt ákveðinni mann-
eskju. Slakaðu á og njóttu þess að hafa álit
á hlutunum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þær aðstæður koma upp að þú
neyðist til þess að segja hvar í flokki þú
stendur. Leitaðu til vina þinna og þú munt
fá aðra og betri sýn á lífið og tilveruna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hvar sem þú kemur rekurðu þig
á vegg þegar þú berð upp spurningar þín-
ar. En slepptu öllum áhyggjum því þú ert
maður til þess að ráða fram úr málum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Hvort er það það sem þú veist eða
hverja þú þekkir sem gerir þig svona eftir-
sóknarverða/n? Þú ert klár og þú veist það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Áhyggjur af því að breyta rangt eiga
eftir að draga úr ráðvendni þinni í
vinnunni. Af þeim sökum verður þú að
gangast við ábyrgð á því sem þú segir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er orðið tímabært að þú hafir
samband við vini þína þótt þeir hafi látið
vera að hafa samband við þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er hætt við að þú lendir í deilum
við valdamikinn einstakling í dag. Vertu
ákveðinn en kurteis og hættu ekki fyrr en
svörin fást.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þrífst á skoðanaskiptum
við starfsfélaga þína og leggur um leið þitt
til þeirra mála. Reyndu að taka á málunum
af stillingu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Láttu ekki ónot annarra hleypa
þér upp. Menn verða að taka hlutunum á
léttu nótunum og gefa barninu í sér tæki-
færi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú finnur þig knúna/knúinn til
þess að losa þig undan hversdagslegri rút-
ínu í dag. Taktu þér tíma til þess að fara í
gegnum málin.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er oft gaman að kynnast
nýju fólki, sérstaklega þegar það getur
kynnt manni nýjar hugmyndir og framandi
lönd.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Enginn getur hjálpað þér nema þú
viljir það sjálf/ur svo vertu ekki með snúð.
Gefðu þér tíma til að greiða úr flækjunum
og þá leysist allt auðveldlega.
og Los Angeles Philharmonic og
frumfluttur af Víkingi Ólafssyni og
Esa-Pekka Salonen og Tímans tönn
fyrir sópran og kammersveit, samið
við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur.
„Ég verð með tvö verk á Myrkum
músíkdögum í lok mánaðarins,
strengjakvartett sem Strokkvart-
Norðurlandaráðs árið 2004 fyrir óp-
eruna Fjórði söngur Guðrúnar. Verk
hans hafa verið gefin út af BIS, Sono
luminus og ýmsum íslenskum útgef-
endum.
Meðal nýlegra verka má nefna
Píanókonsert nr. 2 sem pantaður var
af NDR Elbphilharmonie Orchester
H
aukur Tómasson er
fæddur 9. janúar 1960
í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann stund-
aði nám við Hvassa-
leitisskóla og dvaldi nokkur sumur í
sveit á Ormsstöðum í Eiðaþinghá.
Haukur lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð
1979. Hann stundaði tónlistarnám við
tónlistarskólann í Reykjavík, Musik-
hochschule Köln, í Sweelinck Con-
servatorium Amsterdam og lauk
Meistaraprófi frá Kaliforníuháskóla í
San Diego.
„Ég lærði á píanó sem barn í nokk-
ur ár, svo kom einhver leiði yfir mig
en þegar ég var orðinn táningur fékk
ég aftur mikinn áhuga á tónlist, byrj-
aði aftur í tónlistarnámi og hellti mér
út í að hlusta á alls kyns tónlist á
menntaskólaárunum. Ég tók alla
klassíkina og hlustaði líka á það sem
var í gangi á þeim tíma, djass, alls-
konar popptónlist, progrokk og pönk.
Ég hafði samt aldrei neina löngun til
að semja annað en klassík, fékk
áhuga á eðli og innviðum þeirrar tón-
listar og byrjaði smám saman að
semja á menntaskólaárunum. Þetta
heltók mann bara og varð einhver
þörf.
Ég kenndi mikið allra fyrstu árin
eftir að ég kom heim úr námi þar til
ég fékk pöntun um að skrifa óperuna
Fjórða söng Guðrúnar árið 1994. Þá
ákvað ég að taka sénsinn á að verða
tónskáld, hætti að kenna og fór að
sinna þessu í fullu starfi. Það tók tæp
tvö ár að semja óperuna og hún gekk
mjög vel, var sett upp í Kaupmanna-
höfn við góðar undirtektir. En þetta
er auðvitað alltaf mikil óvissa og
verkefnastaðan er misjöfn.“ Meðal
verka Hauks má auk Fjórða söngs
Guðrúnar nefna ellefu hljómsveit-
arverk, fiðlukonsert, víólukonsert,
flautukonserta, píanókonserta og
ýmsa kammer- og kórtónlist.
Haukur hefur hlotið ýmsar viður-
kenningar svo sem tvívegis verðlaun í
tónverkasamkeppni RÚV, Bjart-
sýnisverðlaun Bröste 1996 og þríveg-
is Íslensku tónlistarverðlaunin. Verk
hans Í sjöunda himni varð hlutskarp-
ast í samkeppni Hörpu um verk til
flutnings á opnunarhátíð hússins
2011. Haukur fékk tónlistarverðlaun
ettinn Siggi ætlar að spila og verk
fyrir hörpu, cimbalon og kammer-
sveit sem Kammersveit Reykjavíkur
ætlar að leika. Hvort tveggja frum-
flutningur og ég hlakka mikið til að
fara á æfingar. Myrkir músíkdagar
eru einskonar uppskeruhátíð okkar
tónskáldanna þó að hátíðin sé reynd-
ar alltaf að verða alþjóðlegri.
Áhugamálin eru helst fjölskyldan,
hvort sem það er að elda saman eða
ferðast saman,“ segir Haukur að-
spurður. Hann ætlar að fresta því að
halda upp á afmælið þar til í vor og
stefnir þá á að gera eitthvað
tónlistartengt.
Fjölskylda
Eiginkona Hauks er Ragnheiður
Elísdóttir, f. 20.11. 1966, barnalæknir
og barna- og unglingageðlæknir. Þau
eru búsett í Reykjavík. Foreldrar
Ragnheiðar eru hjónin Elís Gíslason,
f. 26.11. 1932, fyrrverandi skipstjóri
og útgerðarmaður, og Hulda Valdi-
marsdóttir, f. 13.5. 1936, húsmóðir og
fyrrverandi skólaliði í Grundarfirði.
Þau eru búsett þar.
Börn Hauks og Ragnheiðar eru
Hulda Kristín Hauksdóttir, f. 22.2.
Haukur Tómasson tónskáld – 60 ára
Fjölskyldan Haukur, Anna Soffía, Hulda Kristín og Ragnheiður stödd í Landmannalaugum.
Snemma heltekinn af því að semja
Samstarfsmenn Haukur Tómasson ásamt Esa-Pekka Salonen hljóm-
sveitarstjóra og Víkingi Heiðari Ólafssyni píanóleikara.
40 ára Rannveig er
fædd í Bolungarvík en
ólst upp á Akureyri og
býr þar. Hún er við-
skiptafræðingur að
mennt frá Háskól-
anum í Reykjavík og
er forstöðumaður
skrifstofu fjármála á Sjúkrahúsinu á
Akureyri.
Maki: Finnur Ragnar Jóhannesson, f.
1974, framkvæmdastjóri ÁK smíði.
Börn: Jóhann Gunnar, f. 2004, Mikael
Gísli, f. 2007, Þorgeir Gauti, f. 2011 og
Friðbjörg Sigríður, f. 2014, Finnsbörn.
Foreldrar: Jóhann Jónsson, f. 1950, fyrr-
verandi skrifstofustjóri hjá Möl og sandi,
og Sigríður Jónsdóttir, f. 1954, fjármála-
stjóri hjá Slippnum. Þau eru búsett á
Akureyri.
Rannveig
Jóhannsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is