Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 61
Huggulegur fór á eldhúsið og liturinn
Dásamlegur á borðstofuna, Temmi-
legur í stofuna, Glæsilegur í möttu í
sjónvarpsherbergið, alla veggi og loft
og svo fór Kiddahvítur á öll önnur
loft,“ segir hún.
Nú lakkaðir þú allt sjálf með
Bessastaðalakkinu, segðu mér betur
frá því?
„Jah, ég kallaði nú bara lakkið
Bessastaðalakk þar sem það er svo
svakalegur glans á því, eins og það sé
alltaf blautt. Svolítill forsetastíll á því.
En það heitir Helmi 80m,“ segir Sess-
elja.
Hver vegna skiptir máli að vera
með allt stíflakkað?
„Ég geri það alls ekki alltaf í verk-
efnum en mjög oft í svona gömlum
húsum. Gluggarnir eru auðvitað einn
besti kostur hússins og mikil birta. Til
þess að gera meira úr þessari fallegur
náttúrulegu birtu er best að hafa end-
urkastið sem mest í gluggunum.
Þetta var alveg heljarinnar vinna, ég
viðurkenni það, en algjörlega þess
virði. Aftur á móti kaus ég að lakka
gluggann í sjónvarpsherberginu
svartan og mattan af sömu ástæðu –
til þess að draga úr endurkasti sólar.“
Hvað finnst þér hafa komið best út
hvað litina varðar?
„Ég var ánægð með þá alla, enda
þú getur rétt ímyndað þér hversu
mikil hugsun fór í þetta hjá Fröken
Fix. En ætli ég sé ekki ánægðust með
að hafa kýlt á það að setja Glæsilegan
í sjónvarpsherbergið. Hann þjónar
algjörlega sínu hlutverki í því rými og
það kemur vel út að mála loft og
skápa í sama lit. En svo er ég líka
mjög hrifin af Temmilegum. Hann er
meira græntóna á sumrin þegar lauf-
in eru í trjánum fyrir utan og meira
grár á veturna sem tónar við snjóinn
og berar trjágreinarnar.“
Til að sjá meira af heimili Sesselju
getur þú farið inn á www.mbl.is/
smartland/heimilislif og horft á þátt-
inn í heild sinni.
Gamalt og nýtt Eldhúsið er ein-
staklega fallegt og vel skipulagt.
Skápurinn í horninu var lakk-
aður í gráum tón sem passar vel
við litina á veggjunum.
Ekta Fröken Fix Teppið á
stiganum er ekta Fröken Fix,
túrkísblátt og fagurt.
Upp á 10 Liturinn
Temmilegur prýðir
stofuna. Eins og
sést á myndinni fer
hann vel við hús-
gögn, skrautmuni
og listaverk.
Hlýlegt Blái liturinn í stofunni
heitir Dásamlegur sem er algert
réttnefni því hann er ekki of ljós og
ekki of dökkur. Liturinn er í lita-
korti Fröken Fix í Slippfélaginu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Byltingarkennd nýjung í
margskiptum glerjum
50–65% stærra lessvæði