Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
Héraðið, kvikmynd Gríms Hákon-
arsonar, verður ein átta kvik-
mynda sem keppa um Drekaverð-
launin á kvikmyndahátíðinni í
Gautaborg sem hefst 24. janúar.
Verðlaunafé er ein milljón
sænskra króna, jafnvirði 13,4
milljóna íslenskra, og því til mik-
ils að vinna.
Aðrar kvikmyndir sem verða í
aðalkeppninni í ár eru Disco eftir
Jorunn Myklebust Syversen, Barn
eftir Dag Johan Haugerud, En
helt almindelig familie eftir
Malou Reymann, Games People
Play eftir Jenni Toivoniemi, Uje
eftir Henrik Schyffert, Charter
eftir Amöndu Kernell sem Sverrir
Guðnason leikur í og Psychosis in
Stockholm eftir Mariu Bäck.
Sænski leikarinn Stellan Skars-
gård hlýtur heiðursverðlaunin
Nordic Honorary Dragon Award
á hátíðinni að þessu sinni.
Tvisvar hefur íslensk mynd
unnið Drekaverðlaunin; kvikmynd
Dags Kára Péturssonar, Voksne
Mennesker frá árinu 2006 og Nói
albinói árið 2003. „Það er mikill
heiður fyrir okkur að keppa um
Drekaverðlaunin. Ég hef áður
sýnt myndir á hátíðinni en þetta
er í fyrsta skipti sem ég er með
mynd í aðalkeppninni, þannig að
maður er óneitanlega spenntur,“
er haft eftir Grími í tilkynningu.
Héraðið Arndís Hrönn Egilsdóttir og Sigurður Sigurjónsson í Héraðinu.
Héraðið keppir um Drekaverðlaunin
Bandarísku Rita-verðlaunin, sem
veitt eru fyrir bestu ástarsögur rit-
aðar á ensku og þykja þau virtustu
sinnar tegundar í heiminum, hafa
verið slegin af þar sem bæði dóm-
nefndarmenn hafa sagt starfi sínu
lausu og höfundar dregið bækur úr
keppni. Ástæðan er ákvörðun sam-
taka bandarískra ástarsagnahöf-
unda, Romance Writers of America
(RWA), um að ávíta rithöfundinn
Courtney Milan fyrir að saka
starfssystur sína Kathryn Lynn
Davis um kynþáttafordóma í bók
hennar Somewhere Lies the Moon.
Milan hefur lengi vel gagnrýnt ást-
arsagnahöfunda fyrir slíka for-
dóma og segir bækur Davis sýna
fordóma í garð kínverskra kvenna.
Davis og samstarfskona hennar
Suzan Tisdale svöruðu með form-
legri kvörtun til RWA og sögðu Mil-
an hafa skaðað feril þeirra. Stjórn
RWA komst svo að þeirri niður-
stöðu að Milan hefði skaðað sam-
tökin með hegðun sinni og bönnuðu
henni ævilangt að sitja í stjórn sam-
takanna. Hafa samtökin verið
gagnrýnd harðlega fyrir þessa
ákvörðun og m.a. af þekktum höf-
undum á borð við Noru Roberts.
Gagnrýnin Courtney Milan hefur sak-
að kollega sína um kynþáttafordóma.
Hætt við Rita vegna ávítunar RWA
Óperugagnrýnandinn
Amanda Holloway fer í
desemberblaði Opera
magazine og á menn-
ingarvefnum Critics
Circle fögrum orðum
um uppfærslu Íslensku
óperunnar á Brúðkaupi
Fígarós í Þjóðleikhús-
inu. Segir hún Brúð-
kaup Fígarós fullkomið
dæmi um háan gæða-
staðal Íslensku óp-
erunnar bæði hvað varð-
ar söng og leik. Af þeim
sökum sé tilvalið að
skipuleggja Íslandsferð
í tengslum við sýningar
Íslensku óperunnar.
„Nýja uppfærslan í leikstjórn
Johns Ramster er til þess gerð að
falla áhorfendum í geð. Hún sam-
einar hágæðaóperu, franskan farsa
og látbragðsleik,“ skrifar Hollo-
way og bendir á að Ramster hafi
nýtt sér hringsviðið til hins ýtrasta
til þess að undirstrika hraða at-
burðarásina. Segir hún Ramster
nota öll brögðin í bókinni áhorf-
endum til ánægju og yndisauka.
„Ungi bassabarítónsöngvarinn
Andri Björn Róbertsson er óvana-
lega tignarlegur Fígaró, vel til-
hafður og myndarlegur og með
háðskan tón í röddinni. Andstæðan
birtist í hinum hljómmikla mold-
óvska barítónsöngvara Andrey
Zhilikhovsky sem er fremur óhefl-
aður, jafnvel á mælikvarða hins
lostafulla greifa Mozarts, sleikj-
andi á sér varirnar og káfandi á öll-
um konum. Andstæðurnar milli
greifynjunnar og Súsönnu eru
einnig áberandi – hin smávaxna,
frakka og veraldarvana Þóra Ein-
arsdóttir myndar fullkomið mót-
vægi við hina óstyrku og ungu
greifynju Eyrúnar Unnarsdóttur.
Karin Björg Torbjörnsdóttir sýnir
gott vald á gamanleik í hlutverkinu
sem hinn dásamlegi, klaufalegi og
lostafulli Cherubino,“ skrifar
Holloway.
Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir
Hrifning Brúðkaup Fígarós fær lofsamlega
umfjöllun hjá Amöndu Holloway.
Fullkomið dæmi um
háan gæðastaðal ÍÓ
Tilnefningar til verðlauna Bresku
kvikmynda- og sjónvarpsakademí-
unnar, Bafta, hafa verið harðlega
gagnrýndar í fjölmiðlum í vikunni
fyrir einsleitni hvað viðkemur kyni
tilnefndra og kynþætti. Þykir mjög
hallað á konur, nú sem oftar, og
skrifar blaðamaður enska dagblaðs-
ins Guardian, Simran Hans, í pistli
um málð að Bafta þurfi að líta í speg-
il. Tilnefningarnar séu niðurdrep-
andi upphaf á nýju ári og meðlimir
akademíunnar, sem séð hafi um til-
nefningarnar, virðist hafa lítinn
skilning á því hvað teljist framúr-
skarandi. Skjannahvítt, karllægt og
óbærilega leiðinlegt val þeirra á til-
nefndum sé til vitnis um það.
Tvær hvítar með tvær hvor
Hans bendir á, máli sínu til stuðn-
ings, að þær 20 manneskjur sem til-
nefndar eru fyrir bestan leik séu all-
ar hvítar og að auki fái tvær leik-
konur tvær tilnefningar hvor, þær
Scarlett Johansson og Margot
Robbie. Í flokki tilnefndra leikstjóra
sé engin kona og öllum þeim kvik-
myndum sem tilnefndar eru í flokki
bestu kvikmyndar hafi verið leik-
stýrt af körlum. „Þetta kemur ekki
með öllu á óvart en er skammar-
legt,“ skrifar Hans.
Hún nefnir nokkrar kvikmyndir
sem konur leikstýrðu á nýliðnu ári
sem hún telur framúrskarandi líkt
og flestir gagnrýnendur. Þeirra á
meðal eru Atlantics, Booksmart,
The Farewell, For Sama, Little
Women og Portrait of a Lady on
Fire. Að vísu er For Sama tilnefnd
til Bafta-verðlauna sem besta
breska kvikmyndin, eins og Hans
bendir á.
Staðan betri í stuttmyndum
Sem fyrr segir eru allir tilnefndir
leikarar og leikkonur hvítir á hörund
og bendir Hans á að leikkonur á
borð við Lupitu Nyong’o, Jennifer
Lopez, Cynthiu Erivo, Alfre Wood-
ard og Marianne Jean-Baptiste hafi
allar staðið sig frábærlega á liðnu
ári, leikkonur sem eru dökkar á hör-
und.
Staðan er betri í nokkrum ónefnd-
um flokkum Bafta, verðlaunaflokki
fyrir bestu frumraun, bestu stutt-
mynd og bestu stuttu teiknimynd,
auk flokks rísandi stjarna. Fjórar af
þeim fimm myndum sem tilnefndar
eru sem besta stuttmynd eru eftir
konur og þrjár af fimm rísandi
stjörnum eru þeldökkar. Hans segir
þó slæmt að tölfræðin virðist ekkert
hafa breyst með árunum. Á undan-
förnum tíu árum hafi aðeins ein kona
verið tilnefnd fyrir bestu kvikmynd,
Kathryn Bigelow fyrir Zero Dark
Thirty. Ein kvikmynd af 50, bendir
pistilritari á.
Fleiri fjölmiðlar hafa tekið í sama
streng, m.a. dagblöðin Independent,
Telegraph og New York Times og
vefir Variety, BBC og Deadline.
Berry vonsvikin
Stjórn Bafta brást skjótt við
gagnrýninni og sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem hún sagðist
harma þennan skort á fjölbreytni.
Tilnefningar þyrftu að endurspegla
betur fjölbreytni í faginu hvað varð-
ar kyn og kynþætti. Framkvæmda-
stjóri Bresku kvikmynda- og sjón-
varpsakademíunnar, Amanda
Berry, sagðist í samtali við BBC
vera afar vonsvikin yfir tilnefning-
unum. Hún hefði vonast til að sjá
a.m.k. eina konu tilnefnda fyrir
bestu leikstjórn.
Bafta-verðlaunin verða afhent í
London 2. febrúar og er Hildur
Guðnadóttir ein fimm tónskálda sem
eru tilnefnd fyrir bestu tónlist í kvik-
mynd. Hin tónskáldin eru karlar,
nema hvað. helgisnaer@mbl.is
Ekki með Úr Little Women sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda.
Leikstjóri hennar, Greta Gerwig, er ekki tilnefnd til Bafta fyrir bestu leik-
stjórn og myndin er ekki tilnefnd sem sú besta á árinu 2019.
Ellefu Úr kvikmyndinni Joker sem
hlaut flestar tilnefningar til Bafta,
ellefu talsins. Ekki eru allir gagn-
rýnendur sáttir við það þar sem
kvikmyndin hlaut misjafna dóma.
Skjannahvítt,
karllægt og leiðinlegt
Tilnefningar til Bafta sæta harðri gagnrýni
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili