Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 9. J A N Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 7. tölublað 108. árgangur
MEISTARA-
VERKIÐ VANJA
FRÆNDI
FITA OG
FRÆ FYRIR
SMÁFUGLA
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
VETRARHÖRKUR 6 FINNA VINNU 6 SÍÐURMENNING 70
SÓLARÁFANGASTAÐIR
SUMARIÐ&PÁSKAR2020
SJÁNÁNARÍBLAÐINU!
„Maður verður fyrir miklum vonbrigðum þeg-
ar maður les um svona atvik og auðvitað þakk-
ar maður fyrir það að allir komust af heilir á
húfi. Það var alls ekki gefið,“ segir Þórdís Kol-
brún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráð-
herra, spurð um viðbrögð við því að bjarga
þurfti 39 manna hópi ferðamanna úr hrakn-
ingum við rætur Langjökuls í fyrrakvöld. Seg-
ist hún ekki sjá hvernig ferðaþjónustufyrir-
tækið Mountaineers of Iceland gat með réttu
tekið ákvörðun um að fara í ferð með fólkið
þegar óvissustigi hafði verið lýst yfir vegna
veðurs á Suðvesturlandi. Segir hún reglur
Ferðamálastofu um ferðaþjónustufyrirtæki
vera skýrar og bendir á að þar sé bæði gerð
krafa um það að fyrirtæki séu með öryggis-
áætlanir og taki mið af ytri aðstæðum. „Það er
skylda að taka mið af ytri aðstæðum og það var
auðvitað búið að gefa út viðvörun um veðrið,“
segir hún. »2
Ferðamálaráðherra gagnrýnir að farið var með 39 manna hóp í vélsleðaferð eftir veðurviðvörun
Skylda að taka mið af ytri aðstæðum
Landsbjörg
Björgun Mikill fjöldi björgunarsveitarfólks tók þátt í björgunaraðgerðum við erfiðar aðstæður í fyrrakvöld og fyrrinótt þar sem 39 ferðamönnum var bjargað við rætur Langjökuls.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, segir vís-
bendingar um breytt náttúrulegt at-
vinnuleysisstig á Íslandi. Þó sé of
snemmt að fullyrða neitt um það.
Ef atvinnuleysið fer undir nátt-
úrulegt atvinnuleysi eykst spenna á
vinnumarkaði. Við náttúrulegt at-
vinnuleysi helst verðbólga stöðug.
Atvinnuleysi hefur verið lítið á Ís-
landi í alþjóðlegum samanburði.
„Það má færa rök fyrir því að
mögulega – en ég ætla ekki að slá því
föstu – sé náttúrulegt atvinnuleysi á
Íslandi breytt til frambúðar, en það
er of snemmt að fullyrða það.“
Kemur í stað gengislækkunar
„Það birtist í að aðlögun að lakari
efnahagsaðstæðum fari fram í gegn-
um raunstærðir í stað verðbólgu og
gengislækkunar, sem í þessu tilviki
felur í sér aukið atvinnuleysi,“ segir
Halldór Benjamín um breytta stöðu.
Varnaðarorð SA hafi því ræst.
„Bæði Samtök atvinnulífsins og
Seðlabankinn vöruðu við því í að-
draganda kjarasamninga með mjög
skilmerkilegum hætti að aðlögun
hagkerfisins myndi fara fram í gegn-
um raunstærðir, fyrst og fremst í
gegnum atvinnuleysi, og það er að
ganga eftir,“ segir Halldór.
Ef náttúrulegt atvinnuleysi verð-
ur varanlega meira í framtíðinni
gæti það haft margvíslegar afleið-
ingar, til dæmis í velferðarkerfinu.
Aðlögun fækkar störfum
SA telja horfur á meira náttúrulegu atvinnuleysi á Íslandi
Spár um áhrif niðursveiflu á atvinnustig hafi gengið eftir
MLeiðir til meira atvinnuleysis »36
Kona sem telur sig hafa orðið fyrir
mistökum við læknisþjónustu sendi
kvörtun til Embættis landlæknis
vegna málsins í júnímánuði árið
2018. Hún bíður enn eftir niður-
stöðu embættisins átján mánuðum
síðar. „Svona mál eru viðkvæm og
það skiptir fólk máli hvort það þarf
að bíða í nokkra mánuði eða eitt til
tvö ár eftir niðurstöðu. Þessi bið
getur verið þungbær fyrir fólk,“
segir Berglind Glóð Garðarsdóttir,
lögmaður konunnar.
„Meðferðartími mála hjá embætt-
inu getur verið afar langur og er
það miður. Bið í 18 mánuði eftir
niðurstöðu er ekki óalgengur bið-
tími,“ segir Kjartan Hreinn Njáls-
son, aðstoðarmaður landlæknis. »4
„Þungbær“ bið sjúk-
lings í átján mánuði
Nýtt skipurit Seðlabanka Íslands
var kynnt í gær og tilkynnt að
átta starfsmenn muni hverfa frá
bankanum við breytingarnar.
Meðal þeirra sem munu láta af
störfum hjá Seðlabankanum eru
Jón Þór Sturluson, sem var fram
að áramótum aðstoðarforstjóri
Fjármálaeftirlitsins, Sigríður
Logadóttir, sem var fram-
kvæmdastjóri hjá Seðlabankanum
og yfirlögfræðingur, og Anna
Mjöll Karlsdóttir, sem var yfir-
lögfræðingur hjá Fjármálaeftirlit-
inu.
Einnig lætur af störfum Tómas
Örn Kristinsson, framkvæmda-
stjóri gagnasöfnunar og upplýs-
ingatækni hjá SÍ. »4
Lykilfólk hverfur frá
Seðlabankanum