Morgunblaðið - 09.01.2020, Blaðsíða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2020
6 rétta leyndarmáls
matseðill Matarkjallarans
7.990 kr. á mann með fordrykk
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
TILBOÐ
Sunnudaga – miðvikdaga í janúar
Vegan Vítamínúði
Sérstaklega samsett bætiefnablanda fyrir þá sem
eiga erfitt með að taka upp B12 og járn úr fæðunni
og þá sem neyta ekki dýraafurða.
ð
Valið BESTA NÝJA BÆTIEFNIÐ á Natural & Organics í London 2019
Hámarksupptaka tryggð þegar úðað er út í kinn.
Hröð ogmikil upptaka.
Betra og öruggara en töflur eða hylki.
Pakkningar gerðar úr endurunnu plasti úr sjónum
48 skammtar
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
• Vegan D3• B12• Járn & Jo
Íupphafi nýs árs strengjamargir sér nýársheit, hjámörgum tengjast slík heitbættri heilsu. Öll heilsubót er
af hinu góða en hafa ber í huga að
vænlegast til árangurs er að mark-
miðin sem sett eru séu bæði raun-
hæf og mælanleg. Áskoranir tengd-
ar lífsstílsbreytingum geta verið
margvíslegar og á þeirri vegferð ber
að varast að ætla sér ekki um of.
Líkamlegir, andlegir og félagslegir
þættir heilsunnar hafa áhrif hver á
annan og því skiptir máli að skoða
heilsuna í því samhengi.
Geðheilsa þín er mikilvæg á öllum
stigum lífsins, frá vöggu til grafar.
Áhrifanna gætir í hugsun, líðan og
hegðun í daglegu amstri. Jafnframt
hvernig tekist er á við streitu og
áskoranir og einnig í samböndum
þínum við aðra. Mikilvægt er að
þróa með sér færni til þess að hlúa
að geðheilsunni því ávinningurinn er
ótvíræður. Það eru margar leiðir
færar til þess að efla andlega líðan
en hér eru nokkrar þeirra:
Svefn
Svefn hefur mikil áhrif á geðheilsu
en á það til að lenda aftarlega þegar
kemur að forgangsröðun hjá mörg-
um. Rannsóknir hafa sýnt að svefn-
leysi hefur áhrif á skapsveiflur og
viðkvæmni fyrir streitu eykst svo
eitthvað sé nefnt. Streita er algeng
orsök tímabundins svefnleysis. Mik-
ilvægt er að skoða hvaða þættir eru
að hafa áhrif á svefninn. Gott er að
einsetja sér góðar svefnvenjur og
gera þær að rútínu.
Hreyfing
Hreyfing eykur endorfín í lík-
amanum sem eykur orku og hefur
jákvæð áhrif á skapsmuni. Hreyfing
dregur einnig úr streitu og bætir
svefn. Reglubundin hreyfing hefur
því fjölþættan ávinning fyrir heils-
una.
Núvitund
Núvitund felst í því að beina at-
hygli að líðandi stund með opnum
huga og án þess að dæma. Hljómar
einfalt en það krefst æfingar. Hægt
er að gera einfaldar en skemmti-
legar æfingar í hversdagslífinu sem
tekur einungis nokkrar mínútur.
Með reglubundnum æfingum og
tíma eykur það lífsgæði til muna.
Það dregur úr kvíða og streitu, auk
þess hefur það jákvæð áhrif á skap
og sjálfsmynd. Leiðin til þess að
þroska tilfinningagreind hefst með
núvitund.
Auka tilfinningavitund
Öll höfum við tilfinningar enda
eru þær órjúfanlegur partur af okk-
ar tilveru. Við stjórnum þeim ekki,
tilfinningar koma og fara. Því skiptir
máli að taka eftir þeim, setja orð á
þær og læra að umbera. Með því að
þekkja og taka eftir þeim erum við
líklegri til þess að beina þeim í rétt-
an farveg. Sú hæfni að þekkja og
nefna eigin tilfinningar og annarra
er ekki meðfæddur eiginleiki heldur
lærð færni sem allir geta tileinkað
sér. Tilfinningar eiga sér sterka
samsvörun í líkamanum. Því er
fyrsta skrefið í því að þroska betri
tilfinningavitund sú að beina athygl-
inni að líkamanum og taka eftir án
þess að dæma sig. Ávinningur þess
að þjálfa betri tilfinningavitund er
mikill fyrir geðheilsu. Auk þess sem
það bætir samskipti og eykur færni í
félagslegum samskiptum.
Ánægjulegar athafnir
Margar rannsóknir á und-
anförnum árum hafa fjallað um nei-
kvæð áhrif af of mikilli skjánotkun á
geðheilsu en mikilvægt er að stilla
notkun í hóf. Sérstaklega ber að
huga að skjátíma barna í því sam-
hengi. Við erum félagsverur og höf-
um þörf fyrir að eiga í beinum sam-
skiptum hvert við annað. Að gera
meira af því sem gleður, eins og
ánægjulegar stundir með fjölskyldu
og vinum eða eiga skemmtilegt
áhugamál, getur stuðlað að jákvæð-
um upplifunum og aukið vellíðan.
Samkennd með
sjálfum sér og öðrum
Sjálfsgagnrýni og neikvætt sjálfs-
tal ráða miklu um sjálfsmynd og líð-
an. Vertu þinn besti vinur og sýndu
sjálfum þér og öðrum samkennd og
velvild. Frekari upplýsingar og ráð
um bætta geðheilsu er að finna á
heilsuvera.is.
Heilsan á nýju ári
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Útivera Að eiga skemmtilegt áhugamál stuðlar að jákvæðum upplifunum
og aukinni vellíðan, segir sálfræðingur og kemur með góð ráð um heilsuna.
Heilsuráð
Íris Dögg Harðardóttir,
teymisstjóri geðheilsuteymis
Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðsins – suður.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðsins
Nú á fyrstu dögum nýs árs voru Berg-
lind Björg Þorvaldsdóttir, knatt-
spyrnukona úr Breiðabliki, og Valgarð
Reinhardsson, fimleikamaður úr
Gerplu, kjörin íþróttakona og -karl
Kópavogs 2019. Kjörinu var lýst á
íþróttahátíð Kópavogs þar sem af-
reksfólkið fékk farand- og eignar-
bikar. Þá afhenti Ármann Kr. Ólafsson
bæjarstjóri þeim hvoru um sig 200
þúsund króna ávísun sem viðurkenn-
ingu frá Kópavogsbæ.
Berglind Björg og Valgarð voru val-
in úr hópi 10 íþróttamanna sem
fengu viðurkenningu íþróttaráðs en
þeir voru valdir úr tilnefningum frá
íþróttafélögunum í Kópavogi.
Berglind Björg átti mjög gott tíma-
bil með liði Breiðabliks á liðnu ári, en
liðið hafnaði í 2. sæti í Pepsídeild
kvenna. Í 17 leikjum liðsins skoraði
hún 16 mörk og hreppti titilinn
markadrottning Pepsi-deildar kvenna
árið 2019. Breiðablik átti einnig góðu
gengi að fagna í Meistaradeild Evr-
ópu. Hún lék 10 A-landsleiki á árinu
og skoraði í þeim tvö mörk, en alls
hefur Berglind leikið 44 landsleiki
fyrir Ísland og skorað fjögur mörk.
Valgarð er fremsti fimleikamaður
landsins í dag. Hann varð Íslands-
meistari í fjölþraut á árinu, bikar-
meistari en hans stærsta afrek á
árinu var þó þegar hann komst í úr-
slit á gólfæfingum á heimsbikar-
mótinu í Koper í Slóveníu, þar sem
hann hafnaði að lokum í 6. sæti. Í lok
árs var Valgarð svo kosinn fim-
leikamaður ársins hjá Fimleika-
sambandi Íslands.
Íþróttafólk ársins valið í Kópavogi
Berglind Björg og Valgarð best
Kópavogur F.v. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri, Valgard Reinhardsson,
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Jón Finnbogason, formaður íþróttaráðs.