Morgunblaðið - 01.02.2020, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. FEBRÚAR 2020
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Við opnun sýningar á verkum jap-
anskra ljósmyndara í Listasafni Ár-
nesinga í Hveragerði í dag klukkan
14 mun Inga Jónsdóttir kveðja sem
safnstjóri en hún hefur stýrt safninu
með myndarbrag, svo eftir hefur
verið tekið, í þrettán ár og sett á
þeim tíma upp fjölmargar athyglis-
verðar og metnaðarfullar sýningar.
Inga mun jafnframt kynna til leiks
við opnunina Kristínu Scheving, sem
tekur við stjórntaumum í safninu frá
og með 1. febrúar.
„Tilfinningin er góð,“ segir Inga
þegar hún er spurð hvernig það sé
að vera að fara að opna sína síðustu
sýningu í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði. Eins og fyrr segir eru
þrettán ár síðan hún tók við af for-
verum sínum, Hildi Hákonardóttur
og Birnu Kristjánsdóttur.
„Ég er sátt við mitt verk og mjög
sátt við nýjan safnstjóra sem tekur
við af mér svo ég get ekki annað en
verið kát. Þetta er orðinn langur
tími og alveg tímabært að annar taki
við,“ segir hún.
– Hefur þetta verið þægileg sigl-
ing í safninu síðustu 13 ár?
„Það eru alltaf áskoranir, og þær
halda áfram hér, en það hefur verið
gaman að því. Þegar ég byrjaði hélt
ég áfram, eins vel og ég gat, starfinu
sem Hildur og Birna höfðu hafið.
Ég finn fyrir væntumþykju
heimamanna gagnvart safninu og
þykir það mjög dýrmætt. Aðsókn
hefur aukist mjög á þessum árum.
Og ég hef haft að leiðarljósi að setja
upp ólíkar og fjölbreyttar sýningar,
það held ég að hafi skilað sér. Eins
og gengur eru sumir ánægðir og
aðrir síður með einstakar sýningar,
en ég held við höfum náð til breiðs
hóps sem hefur vanið komur sínar í
safnið. Margir koma á allar sýningar
þótt þeir tengi misvel við það sem
boðið er upp á hverju sinni. Það er
gott andrúmsloft hér.“
Þegar spurt er um samsetningu
gestahópsins segir Inga að Íslend-
ingar séu enn í meirihluta gesta. „Og
höfuðborgarsvæðið á vinninginn yfir
íbúa Hveragerðis og aðra Árnes-
inga. Þeir eiga svo margir leið hér
um og líta þá gjarnan inn. Þá lætur
listasenan úr Reykjavík mikið sjá
sig. En það er mikilvægt að geta
þess að aðsókn heimamanna hefur
aukist jafnt og þétt.“
Inga hefur sett upp sýningar með
innlendum sem erlendum listamönn-
um. Hefur sýningarstefnan gengið
upp, að hennar mati?
„Já. Og mér finnst mjög mikil-
vægt að sjóndeildarhringurinnn nái
stundum út fyrir svæðið. En þótt ég
hafi stundum sett upp sýningar með
verkum erlendra listamanna þá eru
mjög oft í þeim tengingar inn á
svæðið hér. Sýningin á japönsku
ljósmyndunum sem verður núna
opnuð er gott dæmi um það; mynd-
irnar eru frá svæði sem þekkt er fyr-
ir jarðskjálfta og heita hveri, nokkuð
sem við þekkjum vel hér. Þá er sam-
hljómur í landslaginu, hvort tveggja
eru eyjar – það eru ýmiskonar
tengsl sem gestir munu finna við
myndefnið og myndirnar.“
Inga segist hafa sótt alþjóðlega
ráðstefnu safnamanna í Japan í
fyrra þar sem mikið var rætt um
hvernig skilgreina ætti söfn. Þar var
hnykkt á því hversu mikilvægar
menningarstofnanir söfn væru, og
þjónustuhlutverkið mikið. „Í kjölfar
þeirrar ferðar finnst mér líka gaman
að enda með japanskri sýningu.
Í fyrstu sýningunni sem ég setti
upp hérna voru verk Ásgríms Jóns-
sonar í öndvegi en hann er auðvitað
„okkar maður“, fæddur í Árnes-
sýslu, og tilurð safnsins má rekja til
ættartengsla hans við Bjarnveigu
Bjarnadóttur sem lagði grunn að
safninu með stofngjöfinni. Á þeirri
sýningu voru verk Ásgríms og átta
samtímalistamanna og svo enda ég
nú með erlendri ljósmyndasýningu.
Ég byrjaði hér heima með verkum
mismunandi kynslóða og enda með
erlendri ljósmyndasýningu með
myndum frá um 1940 til okkar
daga.“
Í Listasafni Árnesinga eru ein-
hverjir fallegustu sýningarsalir
landsins. Hafa listamenn ekki falast
eftir að fá að sýna í þeim?
„Jú. Salirnir eru mjög góðir og
það er gaman að setja upp sýningar í
þeim. Ég hef á þessum tíma sýnt
verk margra og hefði viljað sýna
verk eftir fleiri en þau hafa bara ekki
passað við hugmyndirnar á hverjum
tíma. Þá standa sýningar nokkuð
lengi hér þannig að við setjum ekki
upp margar sýningar á ári.
Nú á ég von á því að Kristín komi
með nýjar og spennandi hugmyndir
inn í sýningahaldið, það er aldrei
stöðnun í safnastarfseminni.“
En hvað tekur svo við hjá Ingu
þegar hún kveður safnið í Hvera-
gerði?
Svarið er einfalt: „Ég ætla að
njóta lífsins og vera til! Ég er ekki
farin að hugsa langt og er tilbúin að
takast á við allar þær áskoranir sem
upp koma.“
Aldrei stöðnun í starfseminni
Inga Jónsdóttir kveður Listasafn
Árnesinga Hefur stýrt safninu í 13 ár
Lýkur með japönskum ljósmyndum
Morgunblaðið/Golli
Kveður Inga Jónsdóttir hefur nú
stýrt Listasafni Árnesinga í 13 ár.
Tohoku – Með augum japanskra ljósmyndara er heiti
sýningar með verkum níu japanskra ljósmyndara og
ljósmyndahóps sem verður opnuð í Listasafni Árnesinga
í dag, laugardag, klukkan 14. Ljósmyndararnir eru allir
virtir og vel kynntir í sínu heimalandi sem utanlands.
Sýningin er unnin að frumkvæði Japan Foundation sem
fól sýningarstjórnina virtum ljósmyndagagnrýnanda,
Kotaro Iizawa. Viðfangsefni sýningarinnar er lífið og
menningin í Tohoku, í fortíð, nútíð og jafnvel framtíð.
Tohoku er svæði á norðausturhluta eyjarinnar Honsu,
stærstu eyjar Japans. Ljósmyndararnir eru allir fæddir
þar á árunum 1917-1974.
Ljósmynd/Teisuke Chiba
Sýn ljósmyndara á lífið í Tohoku
Kvikmyndaverðlaun Sólveigar Ans-
pach voru veitt í fyrrakvöld við há-
tíðlega athöfn í Bíó Paradís og voru
þau liður í Franskri kvikmyndahátíð
sem lýkur á morgun. Verðlaunin
hlutu tvær ungar konur, þær Ève-
Chems de Brouwer frá Frakklandi
fyrir stuttmyndina Sous l‘écorce
(Undir berkinum) og Ninna Pálma-
dóttir fyrir stuttmyndina Blað-
berinn. Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra afhenti sigur-
vegurunum verðlaunin við hátíðlega
athöfn.
„Kvikmyndaverðlaun Sólveigar
Anspach hafa fest sig í sessi sem
stökkpallur fyrir ungar konur í leik-
stjórastétt. Að þessu sinni sendu
tæplega 100 þátttakendur inn mynd-
ir í keppnina og hafa aldrei verið
fleiri. Leikstjórarnir voru frá tíu
löndum í Evrópu og Afríku, auk
Kanada, og þar af tólf frá Íslandi.
Verðlaununum er ætlað að hvetja
ungar konur til dáða í kvikmynda-
gerð og eru veitt þeim sem eru að
stíga sín fyrstu skref í leikstjórn og
eiga mest þrjár myndir að baki. Ein
verðlaun eru veitt fyrir bestu stutt-
mynd á íslensku, önnur fyrir þá
bestu á frönsku,“ segir í tilkynningu.
Skáldið Sjón fór fyrir dómnefnd-
inni sem valdi fimm þátttakendur til
úrslita. Myndirnar fimm voru allar
sýndar við athöfnina í fyrrakvöld áð-
ur en tilkynnt var um sigurvegara.
Að athöfn lokinni var skálað í
frönsku freyðivíni.
Ljósmynd/AFI/Pálmi Jóhannesson
Hátíðarstund Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra með verðlaunahöfund-
unum Ève-Chems de Brouwer og Ninnu Pálmadóttur í Bíó Paradís.
Brouwer og Ninna hlutu
verðlaun Sólveigar