Morgunblaðið - 27.02.2020, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 2 7. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 50. tölublað 108. árgangur
VILL BREYTA
HUGARFARI
FÓLKS
SKJALDBORG HLAUT
EYRARRÓSINA
SÖNG FYRIR
ÍSLENDINGA
Í 65 ÁR
AFHENDING Á BESSASTÖÐUM 62 RAGGI BJARNA 2 & 68ELEONORE LALOUX 36
Helgi Bjarnason
Sigurður Bogi Sævarsson
„Sú hætta að kórónuveiran berist til Íslands er
raunveruleg en framvindan ræðst fyrst og fremst
af því hvernig öðrum þjóðum gengur með varnir
og að einangra sig gagnvart veirunni,“ segir Ás-
mundur Jónasson, fagstjóri lækninga hjá Heilsu-
gæslunni í Garðabæ. Á heilsugæslustöðinni eins
og öðrum á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kom-
ið upp margvíslegum viðbúnaði gagnvart kórónu-
veirunni.
Tiltækir eru sloppar, hanskar, grímur og gler-
augu sem læknar og hjúkrunarfólk setja upp þeg-
ar þarf að sinna fólki sem huganlega er með veir-
una. Jafnframt er búnaður til sýnatöku á heilsu-
gæslustöðvunum.
Tíu Íslendingar í sóttkví á Tenerife
Nú hafa 38 sýni verið rannsökuð af sýkla- og
veirufræðideild Landspítalans og öll reynst nei-
kvæð. Ekki er heldur vitað til þess að Íslendingar
hafi veikst erlendis. Tíu Íslendingar eru nú í
sóttkví á hóteli á Tenerife.
„Það mæðir mikið á okkur í þessu starfi. Mikið
er að gera í símaráðgjöf sem veitt er í síma 1700 og
á heilsugæslustöðvunum. Fólki er líka beint inn á
stöðvarnar,“ segir Sigríður Dóra Magnúsdóttir,
framkvæmdastjóra lækninga hjá Heilsugæslunni
á höfuðborgarsvæðinu.
Sigríður Dóra segir að sýnin séu bæði tekin í
heimsóknum til veiks fólks og á heilsugæslustöðv-
unum. Starfsfólkið fer þá í hlífðargalla sem til eru
á öllum heilsugæslustöðvum og setur upp grímur.
Sigríður segir að reynt sé að hafa aðeins einn í
þessu hlutverki í hvert skipti, ekki aðeins til að
spara gallana, sem eru einnota, heldur ekki síður
til að draga úr hættu á að fleiri smitist. Starfsfólkið
þarf að fara úr göllunum á ákveðinn hátt til þess að
verjast smiti. „Fólk er mjög samstíga um að gera
þetta vel og fara eftir leiðbeiningum.“
Varað við Suður-Kóreu og Íran
Áhættan er nú metin daglega. Sóttvarnalæknir
ræður nú fólki frá því að ferðast að nauðsynjalausu
til Suður-Kóreu og Írans. Eru þessi tvö ríki nú á
svæði sem skilgreint er sem áhættusvæði vegna
kórónuveirunnar ásamt Kína og fjórum héruðum í
norðurhluta Ítalíu. Þá mælist sóttvarnalæknir til
þess að þeir sem hafa verið á þessum svæðum fari í
fjórtán daga sóttkví og hafi samband við Lækna-
vaktina eða heilsugæslustöð. Fyrsta tilfelli kór-
ónuveirunnar hefur greinst í Noregi. Tvö tilfelli
hafa greinst í Svíþjóð og í Finnlandi.
Hættan er raunveruleg
Mikið mæðir á starfsfólki heilsugæslustöðva vegna útbreiðslu kórónuveirunnar
Fer í galla til að taka sýni vegna hugsanlegs smits Smit hefur greinst í Noregi
Morgunblaðið/Eggert
Til í slaginn Starfsmaður heilsugæslustöðvarinnar í Garðabæ kominn í galla sem notaður er þegar taka þarf sýni úr fólki sem hugsanlega er smitað.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alvara Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir
blaðamönnum frá útbreiðslu kórónuveirunnar.
MHættumat endurskoðað daglega »2 og 34
Fjallgöngumaðurinn John Snorri
Sigurjónsson, og félagi hans, Tomaz
Rotar, telja að hugur leiðsögu-
manna, Sherpanna svonefndu, hafi
ekki fylgt máli í leiðangrinum á K2 í
Pakistan, eitt hættulegasta fjall
heims. Þeir hugðust vera komnir á
toppinn um þetta leyti, fyrstir
manna að vetrarlagi, en urðu frá að
hverfa í fyrstu búðum í fjallinu.
Þeir telja skýringar leiðsögu-
manna, á að hafa snúið við, ekki trú-
verðugar. Í ljós hafi komið að
dvalarleyfi Sherpanna í Pakistan
hafi verið of stutt, matarbirgðir ekki
verið nægar og meiðsli eins Sherp-
ans hafi verið grunsamleg.
Rætt er við John Snorra á mbl.is í
dag og einnig birt grein í blaðinu eft-
ir Tomaz Rotar. »22 og 41
Félagar John Snorri og Tomaz
Rotar urðu að snúa við á K2.
Ekki víst að
hugur hafi
fylgt máli
John Snorri ræðir
leiðangurinn á K2
Meirihluti
landsmanna er
fylgjandi því að
ríkið greiði lista-
mönnum starfs-
laun og hefur
stuðningur við
launin farið úr
39% í 58% á
undanförnum
áratug. Það er
niðurstaða könn-
unar sem MMR
gerði fyrir Launasjóð listamanna.
Sterk fylgni er milli menntunar og
jákvæðrar afstöðu til listamanna-
launa. 44% svarenda með grunn-
skólapróf eru fylgjandi laununum,
54% þeirra sem lokið hafa fram-
haldsskólanámi og 73% þeirra sem
lokið hafa háskólanámi. Lágt hlut-
fall stjórnenda, 42%, styður þó
launin. »64
Aukinn stuðningur
við listamannalaun
Listamannalaun
stuðla að atvinnu-
mennsku í listum.
Nautalundir
Danish Crown
2.999KR/KG
ÁÐUR: 4.999 KR/KG
EITTHVAÐ FYRIR ALLA Í NÆSTU VERSLUN NETTÓ!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 27. febrúar - 1. mars
-46% -40%
-30%
Grísabógur
499KR/KG
ÁÐUR: 924 KR/KG
BERJADAGAR
Úrval af berjum á afslætti