Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
K100 fagnar því að plötusnúðurinn
Dóra Júlía sé nú genginn til liðs
við útvarpsstöðina, en hún mun
stýra
Tónlistanum, með vinsælustu
tónlist landsins, á stöðinni á
sunnudögum.Tónlistinn Topp40 er
unninn af félagi hljómplötufram-
leiðenda og tekur hann mið af spil-
un á helstu útvarpsstöðvum lands-
ins og streymi á Spotify, og er því
eini opinberi vinsældalisti landsins
og spilunarlisti þjóðarinnar.
„Ég er mjög „peppuð“ fyrir
þessu. Mér finnst þetta passa mjög
vel við mig og það sem ég er að
gera og ég hlakka bara mjög mikið
til að keyra þetta í gang,“ segir
Dóra Júlía í samtali við K100.
Tekur upp þætti frá Balí
Segir hún að mikið sé á döfinni
hjá henni á næstunni, en hún er
fullbókuð langt fram á sumar og
ætlar að flytja til Balí í apríl, þar
sem hún mun stunda jógakenn-
aranám.
„Ég tek þættina upp þaðan
þannig að ég verð fersk og ótrú-
lega „zen-uð“ frá Balí að segja
ykkur frá tónlistinni,“ segir hún.
Sigurður Þorri Gunnarsson, dag-
skrár- og tónlistarstjóri K100, seg-
ir frábært að fá Dóru Júlíu til liðs
við útvarpsstöðina og segir við
hæfi að fá einn vinsælasta plötu-
snúð landsins til að kynna vinsæl-
ustu lögin á K100.
„Hún er mikið hæfileikabúnt og
öflugur liðsmaður. Það verður
gaman að vinna með henni að því
að stækka K100 enn frekar, en
stöðin hefur verið á mikilli sigl-
ingu og fagnaði núna í febrúar
hæstu hlustunartölum frá upphafi.
Dóra, sem er öflug og á miklu
flugi, er því frábær viðbót við stöð
sem er á miklu flugi þessa dag-
ana.“
Plötusnúðurinn Dóra Júlía
tekur við Tónlistanum
Ljósmynd/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Plötusnúður Dóra Júlía segist vera mjög „peppuð“ fyrir nýja starfinu á
K100 og hlakkar mikið til að stýra Tónlistanum næsta sunnudag.
Dóra Júlía, einn vinsæl-
asti plötusnúður lands-
ins, gengur til liðs við
K100 í vikunni. Hún mun
stýra eina opinbera vin-
sældalista landsins,
Tónlistanum Topp40,
alla sunnudaga frá
16.00–18.00.
Ómar Valdimarsson lögfræðingur
segir óhjákvæmilegt að allir muni
fá kórónuveiruna en segist kjósa
það að fá hana heldur á Íslandi.
Hann reynir nú eftir bestu getu að
koma sér og fjölskyldu sinni frá
Tenerife til Íslands. Ómar ræddi
stemninguna á
Tenerife í
morgunþætti Ís-
land vaknar í
gærmorgun.
Sagði hann
fjölskylduna vel
haldna, en þau
voru á leið í flug
til Gran Canaria
þegar náðist í
Ómar. Flug
þeirra til Íslands
féll niður á sunnudag vegna sand-
stormsins sem hefur plagað
Kanaríeyjar síðustu daga.
„Ég kannaði allar flugvélar sem
voru á leiðinni frá Tenerife síðustu
tvo daga og það var ekki hægt að
fá þrjú sæti þó að lífið lægi við til
nánast allra borga sem boðið er
upp á flug til,“ sagði Ómar. „Einu
flugferðirnar sem hægt var að fara
með til Íslands voru tengdar við
Moskvu og ég var ekki alveg að
nenna tuttugu tíma flugi til Ís-
lands í staðinn fyrir fimm.“
Sagði hann að auðvelt væri að
sjá á fólki á eyjunni að því væri
ekki sama.
„Á endanum er þetta þannig að
við munum öll fá þessa helvítis
kórónuveiru. Þetta verður kvef
fyrir okkur flest. Þetta drepur ein-
hverja örfáa af þeim sem fá þetta.
Ég held að þetta sé bara eitthvað
sem við þurfum að sætta okkur
við. Ég mun á endanum fá þetta
rétt eins og þið en ég kýs að vera
heldur á Íslandi þegar ég fæ
þetta.“
Ómar
Valdimarsson
AFP
Sóttkví Hótel Ómars var í 1-2 km
fjarlægð frá hótelinu H10 Costa
Adeje Palace þar sem smit fannst.
Kýs að fá kórónu-
veiruna á Íslandi
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði
Undirföt * Náttkjólar
Sundföt * Strandfatnaður
Nýjar sumarvörur frá