Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 69
MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 við og er ánægður með hvað hlut- föllin séu „afgerandi rétt“ í mynd- inni. Daníel bendir svo á aðra ljós- mynd á andstæðum vegg og hvernig grænu, gráu og svörtu litirnir spili þar saman, í ákveðnum „hlutfalla- leik“. „Það má spyrja hvort þetta séu ekki allt abstrakt verk og jú, það má segja það, en ég vil frekar nálgast það upphafna sem birtist í þeim, stað og stund, ljós og vinkil, og uppgötva eitthvað. Kannski sögu sem þarf ekki að vera með neinum glæsibrag. Sjáðu þessa mynd hér, „Tungu Bakkusar“,“ segir hann og bendir á neðsta hluta bleikrar plastrenni- brautar sem stendur á grasflöt og vissulega má túlka sem tungu kölska sem rúllast hafi fram úr skolti hans. „Það er enginn glæsiboðskapur í þessu,“ segir Daníel og brosir. Hæfilega merkingarbært Flestir tengja ljósmyndun við skráningu á einhvers konar sögum eða atburðum en Daníel segist kjósa að sínar myndir séu bara „hæfilega merkingarbærar“. „Ef við hugsum um samfellda at- burðarás þá eru þessar myndir hér inni eins og lítil brot í henni. Þau segja ekkert lítil ein og sér en stækkuð svona upp ná þau vonandi að komast í þetta upphafna ástand sem ég talaði um og sækist eftir. Allir þessir rammar hér eru bara eitt skot: ég er á stað, sé áhugaverð- an ramma, geng að honum og tek mynd.“ Það hljómar vissulega einfalt, eins og lýsing á störfum flestra lista- manna getur verið. Daníel útskrif- aðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og vakti þá strax athygli fyrir verk þar sem íslensk menning var oftar en ekki til um- fjöllunar. Daníel var í byrjun þekkt- astur fyrir skúlptúra en í seinni tíð hefur hann einkum sýnt ljósmynda- verk. Samhliða myndlistinni hefur hann getið sér orð sem hagur hús- gagnasmiður og eru stólar hans vin- sælir og eftirsóttir. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Ljósmyndun er þjófnaður! Við för- um eitthvert og stelum,“ segir myndlistarmaðurinn Daníel Magn- ússon glaðbeittur þar sem hann stendur innan um verkin sín á sýn- ingunni sem hann kallar Transit og stendur nú yfir í Hverfisgalleríi á Hverfisgötu 4. Hann á við að við ljós- myndarar laumumst burtu af vett- vangi með stolin augnablik, með frosna ramma, rétt eins og þá sem hann hefur stækkað upp og sýnir. Þetta eru litljósmyndir, teknar á síðastliðnum áratug; formfastar og agaðar, nærmyndir af manngerðum heimi, hlutum og byggingum. Daníel hefur sagt um þessi verk að hver vinkill fyrir sig sé valinn til að hann fjalli á eins knappan hátt og hægt er um fyrirmyndina „sem afmarkast af formatinu og því sem vinkillinn spannar“. Skugginn segir sitt Með því að kalla sýninguna Tran- sit staðsetur Daníel verkin í ákveðnu millibilsástandi, hann segir ljós- myndirnar ekki beint fjalla um at- burð eða frásögn, en þær vísi hins- vegar allar til ákveðins framhalds. Daníel er mikill áhugamaður um stærðfræði og það kemur ekki á óvart að hann segist sækjast eftir að finna í þeim myndum sem hann tek- ur og velur að sýna visst upphafið form, „echelon form“ upp á ensku, form sem er meðal annars þekkt í stærðfræði sem hann segir skapa eins konar „höfugt ástand“. „Og ég vil að myndirnar virki frekar á kviðinn en höfuðið. Það er bassahljómur í þeim – formin eru mörg svo gróf og stór að þau minna á bassa,“ segir Daníel og veit vel eft- ir hverju hann er að slægjast í sínum myndheimi. „Þessa mynd þarna tók ég á leiðinni norður í jarðarför,“ seg- ir hann og bendir á eina sem sýnir húshorn, hellulögn og gras, og einn mjög hvassan dökkan skugga. „Skugginn segir sitt …“ bætir hann „Ég var byrjaður að taka ljós- myndir löngu áður en ég fór í Mynd- listaskólann,“ segir hann. „Ég átti orðið gríðarlegt safn af filmum en þegar ég fór að skoða þær krítískt þegar ég var í skólanum fannst mér það allt vera vonlaust,“ segir hann og hlær. „En svo fór ég að þroska rödd og að leita að einhverju ákveðnu og upp úr 1995-96 var ég smám saman farinn að skilja hvað ég vildi. Það var þetta hæfilega merk- ingarbæra og upphafna,“ segir hann og bætir við að mest myndi hann enn á filmumyndavélar. Horfir svo kringum sig á verkin í salnum og segir að á bak við smekkinn sem ráði þessu vali séu endalausar tilraunir, í leitinni að merkingu. „Auðvitað er alltaf einhver abstrakt hugsun líka, en sú maskína er ekki aðalaflið. Svo er eitt enn sem ég hafði að leiðarljósi við að velja saman þessar myndir en það er þögn og kyrrð. Fígúratífir vinklar segja alltaf eitt- hvað upphátt en þessa skerma ég af þannig að þeir þegi.“ „Ljósmyndun er þjófnaður“  Daníel Magnússon sýnir ljósmyndaverk í Hverfisgalleríi  „Ég vil að myndirnar virki frekar á kviðinn en höfuðið,“ segir hann  Kýs að fjalla á eins knappan hátt um fyrirmyndir og hann getur Morgunblaðið/Einar Falur Ljósmyndarinn Daníel Magnússon í sýningarsalnum. Hann leitar eftir myndum sem búa yfir þögn og kyrrð. Sigurður Magnússon myndlistar- maður opnar sýninguna Inngrip í Galleríi Gróttu í dag kl. 17. Sýningarsalurinn er á 2. hæð Eiðis- torgs í bókasafni bæjarins. Sigurður lauk MA-prófi í list- málun frá Central Saint Martins College of Art and Design í London árið 1996 og hafði áður stundað myndlistarnám í Goldsmiths Col- lege í sömu borg, á árunum 1993- 1994 og lauk námi í málun frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1991. Hann hefur haldið sýn- ingar bæði hér á landi og erlendis og eru verk hans í eigu safna, fyrir- tækja og einstaklinga. Í tilkynningu er vitnað í sýn- ingarskrá Sigurðar í Ásmundarsal árið 1998 og segir þar m.a. að fyrir tveim öldum hafi fegurðarskynið í íslensku bændasamfélagi verið bundið við lífsbjargir og engum hafi dottið í hug að fara á fjöll til að komast á tindinn og njóta útsýnis. Við þéttbýlismyndun hafi fólk farið að sakna náttúrunnar, sveitarinnar og sjá hana í upphöfnu ljósi. „Sjálfs- tjáning blómstrar og menn fara að mála og yrkja um heilög fjöll, ganga jafnvel enn lengra og fara að túlka óræð áhrif náttúrunnar með formum og litum. Akkúrat það sem Sigurður Magnússon gerir.“ Á sýningu Eitt af málverkum Sigurðar Magnússonar á sýningunni Inngrip. Inngrip í Galleríi Gróttu Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Skiltagerð Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.