Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 4
MARS MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 MARS APRÍL MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU SUN 30 31 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 Fyrirhuguð verkföll Eflingar og aðildarfélaga BSRB EFLING: Ótímabundið verkfall um 1.850 félags- manna Eflingar á 129 starfsstöðvum hjá Reykja- víkurborg hefur staðið yfir frá 17. febrúar. Atkvæðagreiðsla um verkföll stendur yfir 25.-29. febrúar hjá 270 félagsm. hjá Kópavogs- bæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðis- bæ og Sveitarf. Ölfus. Rúmlega 240 félagsmenn Eflingar hjá 21 einkareknum skóla í Reykjavík Garðabæ og Kópavogi greiða einnig atkvæði um samúðarverkfall. Ótímabundin vinnustöðvun myndi í báðum tilfellum hefjast mánud. 9. mars. BSRB: Verkfall 17.532 félagsmanna hjá 14 aðildarfélögum BSRB um allt land. Sjúkraliðafélag Ísl. á Landspítala og Heilbrigðisst. Norðurlands frá kl. 8-16. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna í verkfalli frá kl. 10-15. Starfsmenn í grunnskólum í Reykjavík og Seltjarnarnesi og starfsmenn í frístundaheimilum á höfuðborgarsvæðinu (fyrir utan Garðabæ). Starfsmenn á leikskólum í Kópavogi og Mosfellsbæ í verkfalli í hálfan dag. Félagsmenn hjá Skattinum (áður Ríkisskattstjóra og Tollstjóra), Sýslu- mannaemb., Þjónustu- og nýsköpunarsv. Reykjavíkurb. og Akranesbæ. Ótímabundið allsherjarverkfall allra aðildarfélaga BSRB frá þri. 14. mars. Heimild BSRB og Efling Ef þær vinnustöðvanir verða að veru- leika sem nú eru í undirbúningi með- al aðildarfélaga BSRB og félags- manna Eflingar, til viðbótar við yfirstandandi verkfall Eflingar hjá borginni, yrðu það viðtækustu verk- föll hér á landi í 38 ár. Er þá talinn sá fjöldi launþega sem mögulega mun taka þátt í verkföllunum, þótt algeng- ara sé að telja fjölda tapaðra vinnu- daga þegar áhrif verkfalla eru metin. Árið 1982 tóku um 41 þúsund laun- þegar þátt í verkföllum á vinnumark- aðinum og hafa ekki svo margir farið í verkföll á sama árstíma síðan þá. Núna gætu mögulegar verkfalls- aðgerðir náð til tæplega 20 þúsund launþega en aðeins ellefu dagar eru til stefnu þar til þær aðgerðir eiga að hefjast. Ótímabundið verkfall félagsmanna Eflingar hjá Reykjavíkurborg hefur staðið yfir í tíu daga en það nær til um 1.850 félagsmanna á 129 starfs- stöðvum borgarinnar. Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir til hádegis á laugardaginn um verk- föll um 270 félagsmanna Eflingar sem vinna hjá Kópavogsbæ, Sel- tjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hvera- gerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi sem starfa við umönnun, gatnavið- hald og fleira. Verði það samþykkt hefst ótímabundin vinnustöðvun þeirra á hádegi mánudaginn 9. mars. Kosning er einnig hafin á vegum Eflingar meðal rúmlega 240 félags- manna félagsins um boðun samúðar- verkfalls í 21 einkareknum skóla í Reykjavík, Garðabæ og Kópavogi. Þeirri atkvæðagreiðslu lýkur á laugardaginn og verði hún samþykkt hefst ótímabundin samúðarvinnu- stöðvun þessara starfsmanna 9. mars. Þeir starfa hjá einkareknum skólum sem eiga aðild að Samtökum sjálfstæðra skóla og eru með gildandi kjarasamning frá því sl. vor þegar Lífskjarasamningarnir voru undirrit- aðir. Víðfeðmustu verkföllin gætu hafist eftir ellefu daga en alls hafa 16 aðildarfélög BSRB boðað til sam- stilltra verkfallsaðgerða sem gang- settar verða 9. mars. Aðgerðirnar eru tvískiptar. Annars vegar mun þorri félagsmanna hjá ríkinu, sveitarfélög- um og borginni leggja niður störf á ákveðnum dögum í mars og apríl- byrjun. Minni hópar starfsmanna verða í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Hafi samningar ekki náðst skellur á ótímabundið alls- herjarverkfall BSRB-félaganna 15. apríl. Það nær til rúmlega 17.500 launþega hjá ríkinu, Reykjavíkur- borg og öðrum sveitarfélögum. Ekki leggja þó allir niður störf, þar sem stéttarfélögin eru með undanþágul- ista. Þannig munu t.d. slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn sinna grunn- þjónustu. omfr@mbl.is Gætu orðið víðtækustu verkföll í 38 ár  Eflingarverkfallið og aðgerðir í undirbúningi ná til allt að 20 þúsund manns  Tímabundnar vinnu- stöðvanir fram að allsherjarverkfalli 15. apríl  Grunnþjónusta slökkviliðs og sjúkraflutninga óröskuð 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 tunnur, því þegar sorpið liggur lengi fer að koma fýla frá því,“ segir Eiður Smári, sem kveðst hafa orð sér fróðara fólks fyrir því að þjónusta þessi sé ekki verkfallsbrot. Sem einyrkja í rekstri sé sér þetta heimilt. Kemur ekki til greina „Við höfum fengið fyrirspurnir um svona verkefni, en verkfallsbrot koma ekki til greina af okkar hálfu,“ segir Freyr Eyjólfsson, sam- skiptastjóri Terra. Fyrirtækið sinn- ir sorphirðu við heimili víða á höfuð- borgarsvæðinu, en ekki þó í Reykjavík. Það verkefni er í hönd- um borgarstarfsmanna sem eru í Eflingu og þar með verkfalli. dallana í móttökustöðina í Gufunesi, tæmdi þar og skilaði aftur á sama stað. Tunnur fyrir pappír og plast í sama húsi voru látnar óhreyfðar. Í einhverjum blokkum í borginni hef- ur aðgengi að sorprennum og -geymslum verið lokað. Þá hafa ver- ið settir upp miðar þar sem mælst er til þess að fólk fari sjálft með úr- ganginn á gámastöðvar. Verkefni Eiðs í gærmorgun sýnir í hnotskurn hvernig hagkerfið snýst, það er að þörf eftir þjónustu skapar viðskipti og tækifæri. „Svona ruslatunnudæmi eru að detta inn núna og væntanlega verð- ur mikið að gera í þessu ef verk- fallið dregst á langinn. Nú er orðið alveg bráðnauðsynlegt að tæma Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Tunnurnar voru alveg sneisa- fullar,“ segir Eiður Smári Björns- son sendibílstjóri. Menn í þeirri þjónustu hafa síðustu daga í nokkr- um mæli verið beðnir um að fara í Sorpu með rusl frá heimilum, sem ekki hefur verið tæmt síðan verkfall Eflingarfólks hjá Reykjavíkurborg hófst á mánudag í síðustu viku. Morgunblaðið hitti Eið Smára í Grafarholti í gærmorgun hvar hann var við fjölbýlishús með tveimur stigagöngum. Samtals 17 sorptunn- ur í byggingunni tóku ekki meira og íbúar gripu því til sinna ráða og hringdu í bílstjórann, sem fór með Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjónusta Bílstjórinn Eiður Smári Björnsson galvaskur með tunnur við fjölbýlishús í Grafarholti í gærmorgun. Sendibílstjóri í rusli  Eiður Smári tæmir tunnur  Íbúar í fjölbýlishúsum grípa til sinna ráða þegar tunnur fyllast  Hagkerfið snýst Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Komdu í kaffi Talið er að um 10 þúsund Reykvík- ingar hafi ritað nöfn sín undir ósk um að fram fari íbúakosning um breytingu á deiliskipulagi fyrir þró- unarreit við Stekkjarbakka þar sem til stendur að úthluta lóð undir mikla gróðurhvelfingu. Halldór Páll Gíslason, formaður Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins, viðurkennir að mikla þátttöku þurfi þá tvo daga sem eftir eru til þess að krafan nái fram að ganga, en um 20 þúsund undirskriftir þarf til þess. Frestur til að skrifa undir rennur út á miðnætti annað kvöld, föstudag. Síðdegis í gær höfðu um 8.500 Reyk- víkingar skráð nöfn sín á undir- skriftavef Þjóðskrár, skra.is. Auk þess höfðu samtökin safnað nokkuð á annað þúsund undirskriftum á lista. Halldór segir að á þeim listum sé nokkuð af fólki úr öðrum sveitar- félögum sem þurfi að vinsa frá. Hall- dór segir greinilegt að krafa um þátttöku 20% kosningabærra íbúa sé hár þröskuldur. Nær væri að miða við hlutfall af þeim sem kusu í síð- ustu kosningum. »10 Mikla þátttöku þarf til að fá íbúakosningu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.