Morgunblaðið - 27.02.2020, Side 22

Morgunblaðið - 27.02.2020, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 Hallur Már hallurmar@mbl.is Fjallgöngumaðurinn John Snorri Sigurjónsson hafði gert ráð fyrir því að standa á toppi K2 í Pakistan um þetta leyti en eins og fram hefur komið þurfti hann frá að hverfa þeg- ar leiðangurinn var skammt á veg kominn. Verkefnið var ærið, en K2 er al- mennt talið eitt hættulegasta fjall heims og hefur í ofanálag aldrei ver- ið klifið að vetri til. Grunur leikur á að ekki hafi allir leiðangursmenn verið í honum af heilum hug. Hópurinn samanstóð af átta klifr- urum. Þeir John Snorri, yfirlýstur leiðangursstjóri, og Tomaz Rotar, slóvenskur skurðlæknir og þraut- reyndur fjallamaður, komu frá Evr- ópu. Þrír klifurmenn voru nepalskir Sherpar, þeir Passang Namke, Tamting og Phur Galjen. Allir með mikla reynslu Þeir eru atvinnuleiðangursmenn sem fá borgað fyrir að ganga með hópnum og það sama er að segja um Pakistanann Serbaz. Þá eru eftir Kínverjinn Gao Li og Sherpinn Mingma G, sem er mjög þekktur fjallamaður. Allir hafa mikla reynslu af því að klífa fjöll sem eru yfir átta þúsund metra há og eru þau hæstu í heimi. „Þetta var sterkasti hópur sem ég gat hugsað mér að taka með á fjallið,“ segir John Snorri. Hann hefur lítið tjáð sig um hvað gerðist á fjallinu fyrir mánuði, en leiðang- urinn hafði eðlilega vakið mikla at- hygli bæði hérlendis og í háfjalla- mennskugeiranum. Sá sem verður fyrstur til að klífa K2 að vetrarlagi skráir nafn sitt í sögubækurnar. Dularfull meiðsli Í bréfi sem Tomaz hefur skrifað og sent fjölmiðlum sem fjalla um há- fjallamennsku setur hann spurn- ingarmerki við hvernig leiðangurs- mennirnir fyrir utan hann og John Snorra hafi nálgast verkefnið. Það sem helst bendi til þess að ekki hafi hugur fylgt máli sé að dvalarleyfi Sherpanna í Pakistan voru of stutt, dularfull meiðsli eins Sherpans og matarbirgðir sem ljóst var að dygðu ekki. Þetta þurfi að útskýra, þar sem kostnaðurinn af hálfu hans og Johns Snorra sé í kringum 12 millj- ónir króna. John Snorri segir það vel þekkt að fjallgöngumenn séu sviknir í leiðöngrum sínum og hið sama kemur fram í bréfi Tomazar. „Því miður er þetta þekkt hjá Sherpunum og það er stór ástæða fyrir því að þeir eiga í vandræðum með að kaupa tryggingar í leið- angra. Þeir fara með fólk upp í búð- ir þrjú og segja svo að ekki sé hægt að fara hærra af ýmiss konar ástæðum,“ segir John Snorri. John Snorri hefur þó ekki lagt ár- ar í bát og hyggst reyna við fjallið að ári en leggja þá fyrr af stað og vera einn ásamt 3-4 pakistönskum burðarmönnum. Mingma hefur einnig tilkynnt svipaðar áætlanir. Það er því ljóst að kapphlaupinu um hver verður fyrstur til að ganga á topp K2 að vetri til er hvergi nærri lokið. Á mbl.is í dag er farið yfir leið- angurinn og hvernig hann stöðvaðist áður en fjallið fór raunverulega að reyna á leiðangursmennina. Stöðvuðust í startholunum á K2  Leiðangur Johns Snorra á K2 í Pakistan gekk ekki upp  Telja sig svikna af leiðsögumönnum Lengri útgáfa af greininni verður birt á mbl.is. mbl.is Ljósmyndir/Aðsendar Hópurinn Leiðangursmenn sem ætluðu sér að vera komnir núna á toppinn á K2. John Snorri er annar frá vinstri og félagi hans, Tomaz Rotar, er fjórði frá hægri. Leiðangur K2 er talið eitt hættulegasta fjall heims, ekki síst að vetrarlagi. Klifur John Snorri kominn upp að búðum 1 í ferðinni upp K2. AÐALFUNDUR GEÐHJÁLPAR 2O2O Aðalfundur Landssamtakanna Geðhjálpar verður haldinn að Borgartúni 30, annarri hæð til hægri, laugardaginn 21. mars. kl. 14. Á dagskrá verða hefðbundin aðalfundarstörf, m.a. kosning nýrra fulltrúa í stjórn samtakanna, umfjöllun um ársskýrslu og ársreikning samtakanna. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Virðingarfyllst, stjórn Geðhjálpar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.