Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 27
ganga upp á þakið og verður
gönguleið á þakinu lögð með gras-
steini. Í húsinu verður aðstaða fyrir
upplýsingagjöf, sýningarhald,
verslun, kaffihús, skrifstofu- og
starfsmannaaðstöðu, geymslu og
tæknirými.
Vatnajökulsþjóðgarður hefur sótt
um og fengið jákvæð svör við
mörgum öðrum verkefnum sem eru
komin af stað eða eru í bígerð. Þau
eru flest fjármögnuð úr sérstökum
innviðasjóði.
Við Dettifoss er fram undan að
byggja hús þar sem verða fjórtán
þurrsalerni ásamt geymslu, tækni-
rými og dagskjóli fyrir landverði.
Gunnlaugur segir að aðstaðan sé
hönnuð að finnskri fyrirmynd og
hafi reynst sérlega vel við að-
stæður í Finnlandi. Um er að ræða
stærstu einingu af þessum toga,
sem reist hefur verið. Fastefni
verða skilin frá og blautefni leidd í
púkk eða viðtaka í jörðu. Fastefnin
verða síðan notuð til uppgræðslu að
lokinni meðferð og niðurbroti og
verður það gert í samráði við
Landgræðsluna.
Efnið flutt með þyrlu
Miklar framkvæmdir hafa verið
við Dettifoss síðustu ár við gerð
göngustíga og fleira til að auka ör-
yggi, bæta aðgengi og vernda nátt-
úruna. Þremur áföngum af fimm er
nú lokið í grennd við Dettifoss og
segir Gunnlaugur áformað að hefja
framkvæmdir við fjórða áfanga í
sumar fáist fjármagn til þess, en
efnið þarf m.a. að flytja með þyrlu
á staðinn. Hönnun næsta áfanga
hafi verið mjög vel undirbúin þar
sem svæðið var fjölgeislamælt og
þrívíddarlíkan gert af því.
Fyrir norðan er einnig unnið að
gerð um 3.500 fermetra bifreiða-
stæðis við Gljúfrárstofu við Ás-
byrgi. Núverandi bifreiðastæði
anna ekki þeim gestafjölda sem
sækir staðinn auk þess sem komið
er að endurnýjun slitlags.
Þá er verið að undirbúa fram-
kvæmdir við hjóla- og göngustíg
sem áætlað er að nái frá Gljúfrár-
stofu að tjaldsvæði við Ásbyrgi.
Mál málanna á suðursvæði
Gunnlaugur segir að „mál mál-
anna“ á suðursvæði þjóðgarðsins
séu miklar fráveituframkvæmdir í
Skaftafelli. Verkið feli í sér upp-
setningu á fullkomnu hreinsivirki
en markmiðið sé að hreinsa seyr-
una þannig að hún verði nothæf til
uppgræðslu. Í samvinnu við Land-
græðsluna verði síðan fundið álit-
legt svæði til uppgræðslu í grennd
við Skaftafell þar sem seyrunni
verði plægt niður í jarðveginn. Að
hluta til verði eldri mannvirki nýtt,
en öðrum bætt við. Viðtaki verði
nær Skaftafelli heldur en áður, en
útgangspunktur í verkefninu sé
mikil hreinsun á því sem til fellur.
Á árinu 2019 komu tæplega 800
þúsund ferðamenn í Skaftafell.
Loks nefnir Gunnlaugur að
breyting á aðal- og deiliskipulagi
við Jökulsárlón sé á lokametrunum.
Hann segist gera sér vonir um að í
ár hefjist undirbúningur vegna
uppbyggingar grunninnviða á nýju
svæði sem verði framtíðarþjónustu-
svæði við Jökulsárlón. Það verði
aðeins austan við núverandi þjón-
ustusvæði, en á síðasta ári komu
ríflega 800 þúsund ferðamenn á
svæðið.
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Gunnlaugur Róbertsson hóf störf hjá Vatna-
jökulsþjóðgarði í byrjun ársins, en hann hafði
áður starfað í rúm fjögur ár sem skipulagsstjóri
Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Hann segist vera
hálfur Hornfirðingur, hafa gengið þar í gagn-
fræðaskóla í einn vetur og stundað síðan nám í
framhaldsskóla þar. Hann hafi stundað sjó-
mennsku frá Hornafirði og lært þar smíðar.
Kona Gunnlaugs er Hornfirðingurinn Laufey
Sveinsdóttir og eiga þau tvö börn. Hún er
menntaður gjörgæsluhjúkrunarfræðingur, en
starfar nú sem kennari við grunnskólann á
Höfn.
Þau fluttu 2005 til Kaupmannahafnar þar
sex starfsstöðvum innan þjóðgarðsins og á
aðalskrifstofunni í Garðabæ þar sem eru fjórir
starfsmenn. Á sumrin bætast við um 80 land-
verðir í tímabundin störf innan þjóðgarðsins og
er eftirsótt að sinna þeim störfum.
„Hjá Vatnajökulsþjóðgarði er nóg af verk-
efnum og þeim hefur stöðugt fjölgað eftir því
sem ég kynnist starfseminni betur. Það er gam-
an að koma inn í þetta umhverfi, en áður vann
ég einkum við ráðgjöf eða skipulagsmál sveit-
arfélaga,“ segir Gunnlaugur.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Vatna-
jökulsþjóðgarð síðasta haust kom fram að í
ljósi umfangs uppbyggingar innviða hjá
Vatnajökulsþjóðgarði væri mikilvægt að ráða
sem fyrst sérstakan verkefnisstjóra til þjóð-
garðsins sem eingöngu sinnti þessum verk-
efnum.
Gunnlaugur segist una hag sínum vel á skrif-
stofu Vatnajökulsþjóðgarðs í Gömlubúð á Höfn,
þar sem eru fjórir starfsmenn, en hjá þjóðgarð-
inum í heild starfa um 35 fastir starfsmenn á
sem Gunnlaugur lauk verk-
fræðiprófi frá danska
tækniháskólanum (DTU) ár-
ið 2011. „Það er ekki á
hverjum degi sem auglýst
er eftir verkfræðingi á Höfn
og þegar ég sá slíka auglýs-
ingu 2015 var valið ekki
erfitt,“ segir Gunnlaugur,
sem var ráðinn sem skipu-
lagsfulltrúi. Kona hans hef-
ur haldið tengslum við
hjúkrunarstörfin og m.a. starfað um tíma á
sumrin á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn.
UNIR HAG SÍNUM VEL Í GÖMLUBÚÐ Á HÖFN Í HORNAFIRÐI
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Jökulsárlón Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir
lónið árlega og nýtur einstakrar náttúrufegurðar.
Gunnlaugur
Róbertsson
Valið var ekki erfitt
Endurnýjanleg
orka í sjálfbærum
heimi
Meðvitund ummikilvægi loftslags-, umhverfis-
og samfélagsmála eykst ár frá ári og kröfur til
fyrirtækja aukast sömuleiðis. Hvernig náum við
jafnvægi milli hagsmuna loftslags, umhverfis,
samfélags og fjárhagslegra þátta? Hvert er mikilvægi
endurnýjanlegrar orku á tímum loftslagsbreytinga?
Hverjar eru áskoranirnar í viðskiptaumhverfinu?
Hver er ábyrgð Landsvirkjunar?
Bein útsending verður frá fundinum
á YouTube rás Landsvirkjunar.
ÁRSFUNDUR
2020
Bjarni Benediktsson
fjármála- og efnahagsráðherra
Ávarp fjármálaráðherra
Jónas Þór Guðmundsson
stjórnarformaður
Ávarp stjórnarformanns
Hörður Arnarson
forstjóri
Hlutverk okkar á tímum
loftslagsbreytinga
Jóna Bjarnadóttir
forstöðumaður umhverfis
og auðlinda
Kolefnishlutleysi 2025
Stefanía Guðrún Halldórsdóttir
framkvæmdastjóri markaðs-
og viðskiptaþróunarsviðs
Áskoranir í viðskiptaumhverfinu
Rafnar Lárusson
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Afkoma Landsvirkjunar 2019
Selma Svavarsdóttir
forstöðumaður á starfsmannasviði
Jafnréttið er að hraða
þróun vinnustaðarins
Kristín Linda Árnadóttir
aðstoðarforstjóri
Leiðin framundan
Fundarstjóri
Jóhanna Harpa Árnadóttir
Hilton Nordica
5. mars nk. kl. 10.00
Verið öll velkomin
Skráning á landsvirkjun.is