Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020
Í dag er merkisdagur í sögu Félags-
stofnunar stúdenta. Þá verður tek-
inn formlega í notkun Mýrargarður í
Vatnsmýrinni, stærsti stúdenta-
garður sem byggður hefur verið á
Íslandi.
Athöfn verður í dag klukkan 17,
þegar Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri leggur lokahönd á Mýrargarð,
eins og segir í boðskorti. Á laugar-
daginn verður svo opið hús klukkan
14-16, í tengslum við Háskóladaginn.
Eru allir velkomnir.
Mýrargarður stendur við Sæ-
mundargötu 21 í Vísindagarðahverf-
inu í Vatnsmýri. Þegar húsið hefur
verið tekið í notkun að fullu munu
búa þarna tæplega 300 manns, sem
er mesti fjöldi í einu húsnúmeri á
landinu. Í íbúðunum er allt til alls,
svo sem húsgögn, eldhúsáhöld og
leirtau. Leigjendurnir þurfa bara að
koma með sængurföt og tannbursta.
Mýrargarður er 14.700 fermetrar
að stærð á fimm hæðum með 244
leigueiningum fyrir tæplega 300
íbúa sem fyrr segir. Yrki arkitektar
teiknuðu Mýrargarð og Ístak byggði
húsið. Framkvæmdir hófust í októ-
ber 2017.
Í húsinu er m.a. boðið upp á nýtt
íbúðaform, þ.e. 10 herbergja íbúða-
klasa með sameiginlegu rými. Að
auki verður stór sameiginleg að-
staða fyrir alla íbúa hússins mið-
svæðis á lóðinni. Stúdentagarðurinn
er einungis fyrir barnlausa ein-
staklinga og pör og í fyrsta sinn
verður boðið upp á að vinir geti deilt
sameiginlegri aðstöðu. Tilgangurinn
er að hvetja til aukins samneytis
íbúa og vinna gegn félagslegri ein-
angrun.
Paraíbúðirnar eru rúmlega 40 fer-
metrar og einstaklingsíbúðirnar um
30 fermetrar. sisi@mbl.is
Eldhús og stofa Öll heimilistæki eru til staðar og sömuleiðis allt leirtau.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Borðstofan Íbúarnir deila sameiginlegu rými í Mýrargarði, þar á meðal borðstofu. Fjær má sjá sjónvarpskrókinn.
Allt er til staðar
í Mýrargarði
Mýrargarður Húsið er fimm hæðir og byggt í kringum skjólsælan garð. Í honum miðjum er samkomusalurinn.
sp
ör
eh
f.
Einstakt landslag Salzburgerlands í Austurríki er sérlega heillandi á þessum árstíma
þar sem allt er í blóma og Alpafjöllin skarta sínu allra fegursta. Í ferðinni upplifum við
ólýsanlega náttúrufegurð í Hallstatt við Hallstättersee, njótum lífsins í Portorož, skoðum
hina víðfrægu Postojna dropasteinshella og yndislega bæinn Sirmione við Gardavatn.
Verð: 224.400 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið!
Fararstjóri: Hólmfríður Bjarnadóttir
Sumar 13
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
31. júlí - 8. ágúst
Alpafegurð Austurríkis
Umferðaröryggi við Hringbraut er
eitt stærsta hagsmunamál Vestur-
bæinga. Þetta kemur fram í bókun
sem gerð var á síðasta fundi íbúaráðs
Vesturbæjar. Íbúaráðið leggur til að
aðgerðir til þess að tryggja um-
ferðaröryggi við Hringbraut verði
settar í sérstakan forgang.
„Þótt ákveðin verk hafi verið sett í
gang með samstarfi Vegagerðar og
Reykjavíkurborgar vantar heildar-
sýn og skýrari aðgerðaáætlun,“
segir ráðið. Íbúaráðið vill að endur-
bætur á gatnamótum Bræðra-
borgarstígs og Hringbrautar verði
settar fremst í forgangsröðunina.
Það sé mikilvægasta hjóla- og
gönguleið barna, ungmenna og
íþróttaiðkenda á leið í íþróttatíma,
skóla og frístund. Þá vill íbúðaráðið
að gerð verði heildarhönnun fyrir
Hringbraut með framtíðarsýn varð-
andi þveranir. Loks að upplýsinga-
gjöf um aðgerðaáætlanir og sam-
starf Reykjavíkurborgar og Vega-
gerðarinnar verði aukin.
Í fyrravor var hámarkshraði á
Hringbraut lækkaður úr 50 km í 40
km. Var sú ákvörðun tekin í kjölfar
þess að ekið var á stúlku sem var að
fara yfir götuna á gangbraut á
gatnamótum Hringbrautar og
Meistaravalla í janúar.
Engu að síður var hraðakstur
áfram vandamál á Hringbraut. Dag
einn í júlí var lögreglan við hraða-
mælingar á Hringbraut, nálægt
Furumel. Hraði 475 ökutækja var
mældur og var brotahlutfallið 26%,
en meðalhraði hinna brotlegu var 54
km/klst. Nítján óku á 60 km hraða
eða meira, fjórir á 70 km hraða eða
meira en sá sem hraðast ók mældist
á 80 km hraða. sisi@mbl.is
Umferðaröryggi
verði í forgangi
Vesturbæingar vilja aðgerðir við
Hringbraut Aukin upplýsingagjöf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hringbraut Vesturbæingar hafa
áhyggjur af umferðaröryggi þar.