Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.02.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ragnar Bjarnason, einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar, lést síðast- liðið þriðjudagskvöld á líknardeild Landspít- alans í Kópavogi, 85 ára að aldri. Ragnar fæddist í Reykjavík 22. septem- ber 1934, sonur hjón- anna Bjarna Einars Böðvarssonar hljóm- sveitarstjóra og Láru Ingibjargar Magnús- dóttur, sem var ein fyrsta dægurlaga- söngkona landsins. Ragnar hóf tónlistarferil sinn sem trommuleikari á unglingsaldri og spil- aði m.a. með hljómsveit föður síns. Ragnar söng fyrst opinberlega með Sigurði Ólafssyni og hljómsveit föður síns í Útvarpssal 1950 og söng síðar m.a. með KK sextettinum, hljóm- sveitum Svavars Gests og Björns R. Einarssonar. Hann stofnaði eigin hljóm- sveit sem skemmti m.a. á héraðsmótum Sjálf- stæðisflokksins á lands- byggðinni. Hann fékk Ómar Ragnarsson og fleiri í lið með sér, en þeir Ómar stofnuðu síð- an Sumargleðina sem fór á hverju sumri um landið við feikilegar vin- sældir 1972-86. Ragnar ók leigubíl um langt árabil, rak bílaleigu 1995-2004, var bílasali hjá Sveini Egils- syni og Fiatumboðinu, rak um tíma söluturn í Breiðholtinu og var dag- skrárgerðarmaður á Effemm 95,7 og Aðalstöðinni. Sumargleðin kom aftur saman 1994 og hélt fjölda skemmtana á Hótel Íslandi. Þá kom Ragnar oft fram með Milljónamæringunum og tók upp lög með þeim. Hann kom fram í mörgum sýningum á leikritinu Elly í Borgarleikhúsinu. Síðustu tón- leika sína hélt Ragnar undir lok síð- asta árs í Hörpu í tilefni af 85 ára af- mæli sínu. Ragnar söng inn á sína fyrstu plötu 1954 og söng síðan inn á fjölda lítilla platna á sjötta og sjöunda áratugnum. Hann gerði fyrstu stóru plötu sína 1971 þar sem hann söng m.a. eigið lag við ljóð Steins Steinars, Barn. Hann stofnaði RB hljómplötur 1999 og sendi næstu árin frá sér margar plöt- ur, þar á meðal Dúetta árið 2012. Ragnar hlaut heiðursverðlaun Ís- lensku tónlistarverðlaunanna 1994; var sæmdur gullmerki FÍH 2004; var sæmdur fálkaorðunni 1.1. 2005 og var útnefndur borgarlistamaður Reykja- víkur 2007. Þá fékk Ragnar heiðurs- laun listamanna árið 2019. Eftirlifandi eiginkona Ragnars er Helle Birthe Bjarnason. Börn Ragn- ars eru Bjarni Ómar, Kristjana og Henry Lárus. »68 Andlát Ragnar Bjarnason Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur bbr ey s 60+ÁBENIDORM – fáðumeira út úr fríinu Verð frá kr. 168.995 Birgitte Bengtssonðgeturbb re ys með 19. APRÍL Í 16 EÐA 19NÆTUR Helgi Bjarnason Jóhann Ólafsson Sóttvarnalæknir ræður fólki frá því að ferðast að nauðsynjalausu til Suður-Kóreu og Írans. Eru þessi tvö ríki nú á svæði sem skilgreind eru sem áhættusvæði vegna kórónuveir- unnar ásamt Kína og fjórum héruð- um í norðurhluta Ítalíu. Þá mælist sóttvarnalæknir til þess að þeir sem hafa verið á þessum svæðum fari í fjórtán daga sóttkví og hafi samband við Læknavaktina eða heilsugæslu- stöð. Fólk sem dvalið hefur á H10 Costas Adeje Palace hótelinu á Tenerife fellur undir þessi tilmæli. Harðari en Norðurlöndin Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir sagði á blaðamannafundi í gær að aðgerðir stjórnvalda miðuðu að því að stöðva útbreiðslu veirunnar. „Við beitum harðari aðgerðum en ná- grannaþjóðir eins og Norðurlöndin beita,“ sagði hann. Hann lagði áherslu á að fólk færi eftir leiðbeiningum. Ekki væri mögu- leiki að gæta allra sem kæmu til landsins og almenningi væri treyst til þess að fara eftir leiðbeiningum. Hættumat er gert daglega enda er staðan síbreytileg. Stjórnvöld hafa skilgreint tvö áhættusvæði vegna kórónuveirunnar. Á framangreindum áhættusvæðum eru taldar miklar lík- ur á samfélagssmiti. Svæði þar sem tilfellum hefur fjölgað undanfarið en minni líkur eru taldar á almennu smiti falla undir lága áhættu. Það eru önnur svæði á Ítalíu en þau fjögur héruð sem eru á áhættusvæðinu en auk þess Japan, Singapúr, Hong Kong og Tenerife fyrir utan umrætt hótel. Ferðamenn sem eru nú þegar á þessum svæðum og þeir sem hafa ný- lega komið þaðan eru beðnir um að huga vel að persónulegu hreinlæti og sýkingavörnum, segir í tilkynningu samhæfingarstöðvar almannavarna. Ekki er talin þörf á sérstakri sóttkví fyrir þá sem eru nýkomnir frá þess- um svæðum. Í gær var staðfest sýking af völd- um kórónuveirunnar hjá liðlega 81 þúsund manns í heiminum og stað- fest var að 2.763 hefðu látist. Flest dauðsföllin eru í Kína. Nýgreindum í Kína fer nú fækkandi en á móti er veiran að greinast í fleiri löndum og fer fjölgandi í nokkrum löndum, sér- staklega Ítalíu og Suður-Kóreu. Flestar sýkingar í Evrópu má rekja til Ítalíu. Við upphaf faraldursins var talið að fólk sem smitaðist gæti smitað aðra í allt að tíu daga eftir að það yrði ein- kennalaust. Þetta mat hefur breyst. „Við teljum að fólk sem er einkenna- laust en gæti samt verið smitað sé ekki smitandi. Það ætti ekki að smita út frá sér í flugi eða við það að fara í gegnum Keflavíkurflugvöll,“ sagði Þórólfur á blaðamannafundi sótt- varnalæknis og almannavarna í gær. Tíu Íslendingar í sóttkví Veikin hefur verið að færast nær Íslandi. Þórólfur Guðnason benti í því sambandi á fjögur smit á hóteli á Tenerife þar sem margir Íslendingar búa eða heimsækja. Tíu Íslendingar eru í sóttkvínni í H10 Costa Adeje Palace hótelinu, þar af eitt barn. „Þau höfðu ekki yfir neinu að kvarta, nema þeim óþægilegu aðstæðum sem fylgja því að vera í sóttkví,“ sagði Þórólfur á blaðamannafundinum í gær en hann ræddi við fólkið símleið- is. Sjö Íslendinganna eru á vegum ferðaskrifstofunnar Vita-ferða og þrír á eigin vegum. Ráða ekki við ástandið Vopnaðir lögreglumenn standa vörð um hótelið og gæta þess að eng- inn yfirgefi húsið eða fari inn í það. Íslendingarnir hafa hvorki fengið upplýsingar frá hótelinu um það hversu lengi þeir eigi að halda sig inni á herbergjum sínum né hversu lengi sóttkvíin vari. Þetta segir Sigvaldi Kaldalóns, fararstjóri á Tenerife, við mbl.is en hann er í sambandi við tvo Íslendinga á hótelinu. Að þeirra sögn ráða starfsmenn hótelsins ekki lengur við að senda mat upp á herbergi til gestanna og því þurfti að opna veitingasalinn aftur um hádegi í gær. Segir Svali að Ís- lendingarnir furði sig á þessari meintu sóttkví því samgangur gest- anna verði óhjákvæmilega mikill þeg- ar fólk fari að sækja sér mat. Hættumat endurskoðað daglega  Suður-Kórea, Íran og eitt hótel á Tenerife nú skilgreind sem áhættusvæði auk Kína og héraða á Ítalíu  Fólki ráðið frá því að ferðast þangað og þeir sem þar hafa dvalið eiga að fara í hálfsmánaðar sóttkví Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ástand Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Rögnvaldur Ólafsson, verk- efnastjóri hjá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, kynna stöðu mála. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Hér gengur lífið sinn vanagang. Þeir Íslendingar sem búa hérna eru allir rólegir. Það er frekar að fólk sem hef- ur áformað að ferðast hingað sé óró- legt enda getur það átt á hættu að lokast í sóttkví á hóteli ef sjúkdómur- inn kemur þar upp,“ segir Herdís Hrönn Árnadóttir, sem ásamt sam- býlismanni sínum, Sævari Lúðvíks- syni, rekur Íslendingabarinn Nost- algia við Amerísku ströndina á Tenerife. Herdís telur að fréttir á Íslandi um kórónutilfelli á einu hóteli á Tenerife hafi verið í æsi- fréttastíl. Fólk þar úti sé rólegt yfir þessu. „Sandstorm- urinn sem gekk hér yfir olli miklu meiri vandræðum og hafði áhrif á fólk þar sem verslunum og verslunarmið- stöðvum var lokað. Það var erfiðara en kórónuvírusinn,“ segir Herdís. Barinn var lokaður í gær en Herdís sagðist sjá Breta og Ítali á spjalli á götunni, eins og alla aðra daga. Varla nokkur beri varnargrímur. „Þetta er bar Íslendinga og ólíklegt að fólk smitist hér. Fólk gætir sín sjálfsagt í samskiptum. Annars sjáum við þetta betur um helgina. Við verðum með grillveislu á föstudaginn eins og venjulega og eigum von á 300 manns á laugardaginn til að fylgjast með úr- slitum í Söngvakeppninni á Íslandi,“ segir Herdís. Engin ástæða fyrir panikk Anna B. Gunnarsdóttir,sem rekur hjóla- og rafskutluleiguna Tours and Bikes á Tenerife ásamt manni sínum, Jóhanni Kristjáni Kristjánssyni, hafði sömu sögu að segja af viðbrögðum Ís- lendinga. „Þeir sem búa hér og dvelja taka þessu af stóískri ró. Hvað á mað- ur annað að gera? Ég held að engin ástæða sé til að fara í panikk,“ segir Anna. Hún segist ekki hafa fundið fyrir samdrætti í viðskiptum. Febrúar sé almennt rólegur í hjólaleigunni og það sé vitað fyrir fram. Lífið gengur sinn vanagang hjá Íslendingum á Tenerife Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson Nostalgia Herdís Hrönn Árnadóttir, Hildur Ýr Aðalsteinsdóttir, dóttir Her- dísar, og Sævar Lúðvíksson, við barborðið á Amerísku ströndinni. Anna B. Gunnarsdóttir  Sandstormurinn hafði meiri áhrif en kórónuveiran
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.