Morgunblaðið - 27.02.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.02.2020, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2020 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Kærunefnd útboðsmála telur að Borgarbyggð hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup með því að gera kröfu í útboðsskilmálum vegna kaupa á tryggingum fyrir sveitar- félagið að bjóðandi starfræki starfs- stöð í Borgarbyggð. Kærunefndin leggur fyrir Borgarbyggð að fella niður umrædda skilmála. Það hefur byggðarráð samþykkt að gera og framlengt tilboðsfrest til 3. mars. Málið á rætur í þeirri ákvörðun VÍS fyrir rúmu ári að breyta þjón- ustu á landsbyggðinni með því að loka útibúum á átta stöðum, þar á meðal á Akranesi og í Borgarnesi. Eftir það er ekkert útibú á Vestur- landi. Leiddi það til mótmæla sveitarfélaga víða um land, meðal annars Borgarbyggðar. Byggðarráð hvatti á sínum tíma fyrirtæki til að sýna samstöðu um að standa vörð um störf í sinni heimabyggð og úti á landsbyggðinni og tók undir áskorun um að endurskoða viðskipti við VÍS. Munur á gæðum þjónustu? Samningi við VÍS var sagt upp og efnt til útboðs á Evrópska efnahags- svæðinu. Í útboðsskilmálum var gert að skilyrði að bjóðandi „starfræki starfsstöð í Borgarbyggð með starfs- manni í a.m.k. 16 tíma á viku“. Var þetta rökstutt með því að sveitar- félagið er landstórt og með starfsemi á yfir 30 stöðum. Lögð er áhersla á aðgang að persónulegri nærþjón- ustu. Mikill munur sé á gæðum slíkrar þjónustu og þegar öll sam- skipti þurfi að fara fram í gegnum fjarskipti eða með rafrænum hætti. VÍS taldi ákvæðið í andstöðu við reglur útboðsréttar um jafnræði og meðalhóf. Með ákvæðinu væri fyr- irfram verið að útiloka að ákveðin fyrirtæki geti tekið þátt í útboðinu. Óheimilt sé að útiloka bjóðendur frá þátttöku á grundvelli búsetusjónar- miða. Var því mótmælt að munur væri á gæðum þjónustu eftir því hvort hún er veitt á tiltekinni starfs- stöð eða með rafrænum hætti. Mismuna fyrirtækjum Kærunefndin stöðvaði útboðið með bráðabirgðaúrskurði í desem- ber. Í endanlegum úrskurði sem nú liggur fyrir er á það bent að útboðið miði að því að koma á vátrygginga- samningi á milli sveitarfélagsins og tryggingafélags en ekki sé um að ræða beint samningssamband á milli íbúa sveitarfélagsins og vátrygginga- félagsins. Telur kærunefndin að ákvæðið um starfsstöð sé til þess fall- ið að mismuna fyrirtækjum sem veita vátryggingaþjónustu á grund- velli þess hvar starfsstöð þeirra er staðsett. Borgarbyggð hafi ekki sýnt fram á neitt sem geti réttlætt kröf- una. Borgarbyggð er gert að greiða VÍS 350 þúsund krónur í máls- kostnað. Útboðsskilmálar ólögmætir  Borgarbyggð ekki heimilt að gera að skilyrði í útboði trygginga að bjóðendur hafi starfsstöð í sveitarfélaginu  Byggðarráð hefur fellt skilmálana niður Morgunblaðið/Eggert Yfir bænum Borgarnes er fjölmennasti þéttbýliskjarninn í Borgarbyggð og á sér merka sögu. Borgarneskirkja stendur hátt og setur mikinn svip á gamla bæinn. Ofarlega til hægri sést til Borgarfjarðarbrúarinnar. Menntamálaráðuneytið, Samtök iðnaðarins og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa hrundið af stað aðgerðaáætlun sem miðar að því að auka áhuga ungs fólks á að hasla sér völl í tæknigreinum í krafti menntunar sinnar. Slíkt þykir vera mjög mikilvægt og sakir þess að ekki nógu margir fara í verknám er framleiðni á Íslandi undir meðaltali Norðurlandanna, að mati OECD. Með samkomulaginu sem Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra og formenn Samtaka iðnaðarins og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu í vikunni, það er syst- urnar Guðrún og Aldís Hafsteins- dætur, hvor fyrir sín samtökin, verður aukin áhersla á að allir grunnskólanemar fái kennslu í verk-, tækni- og listgreinum. Einn- ig stendur til að breyta lögum svo iðnmenntaðir njóti sömu réttinda og stúdentar til háskólanáms, ein- falda á skipulag starfs- og tækni- náms og bæta aðgengi að slíkri menntun út um land. Þá verður náms- og starfsráðgjöf í grunn- skólum efld, svo ungmenni og for- eldrar þeirra geti byggt námsvalið á góðum upplýsingum um nám, tækifæri og ýmsa starfsmöguleika. Ómetanlegt samstarf „Íslenskur iðnaður er uppspretta gífurlegra verðmæta í hagkerfinu, sem aðeins verða til þar sem færni og þekking er til staðar,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins. „Samstarf eins og þetta er því ómetanlegt, þar sem margir taka höndum saman til að fjölga starfs- og tæknimenntuðu fólki á vinnumarkaði. Menntakerfið á að styðja við hugvit og nýsköpun, bæði með því að hvetja ungmenni til náms og bjóða þeim starfs- menntunarúrræði sem eru fyrir starfandi í atvinnulífinu.“ sbs@mbl.is Sókn Sigurður Hannesson og Guðrún Hafsteinsdóttir frá Samtökum iðn- aðarins, Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra, Aldís Hafsteinsdóttir frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og Páll Magnússon ráðuneytisstjóri. Efla tæknimenntun  Bætt nám og breytt lög  Upp- spretta mikilla verðmæta  Hvatning Hinn nýi dráttarbátur Faxaflóa- hafna, Magni, er væntanlegur til hafnar í Reykjavík fyrir hádegi í dag, fimmtudag. Hann er væntan- legur að bryggju í Gömlu höfninni um klukkan 10.30. Magni kom til Rotterdam fyrir síðustu jól eftir langa siglingu frá Víetnam, þar sem hann var smíð- aður. Til stóð að hann legði af stað heim til Íslands strax eftir áramót. Hins vegar tafðist heimförin vegna stórviðra á hafinu allt til 18. febr- úar. Heimsiglingin hefur hins veg- ar gengið að óskum en verktakar á vegum Damen-skipasmíðastöðvar- innar sigla bátnum. Þjálfun skip- stjóra Faxaflóahafna á bátinn hefst á mánudag. Magni verður langstærsti dráttarbátur landsins. Hann er 32 metra langur, 12 metra breiður og með tvær 2.025 kW aðalvélar (samanlagt 6.772 hestöfl). Tog- kraftur dráttarbátsins er 85 tonn. sisi@mbl.is Magni til heimahafn- ar í dag Ljósmynd/Damen Nýr Magni Hinn öflugi bátur í reynslusiglingunni í Víetnam. Sundaborg 7-9 | 104 Reykjavík | Sími 511 4747 | www.northwear.is Starfsmannafatnaður Einkennisfatnaður
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.